Bændablaðið - 01.08.2013, Side 7
7
Veðrið hefur verið upp og ofan í
Borgarfirðinum það sem af er sumri,
en þar er ýmislegt skemmtilegt að
finna fyrir þá sem hafa gaman
af sveitamenningu sumarsins.
Blaðamaður Bænda blaðsins var á
ferðinni í Reykholts dal á dögunum
og tók þessar myndir.
ú er tími útihátíða
vítt um land. Í öllum
meginatriðum ganga
þessi hátíðahöld út á
gamanlæti og gleði. Aflagðar eru
þó að mestu leyti samkomur úti á
víðavangi, en þess í stað færðar
frekar inn í þéttbýli þar sem
flestar fangageymslur nýtast vel.
Rómaðar voru útisamkomurnar í
Atlavík. Eitt sinn var Jóhannes
Sigvaldason tilraunastjóri þar
staddur og gaf þá samkomuhaldinu
þessa einkunn:
Í Atlavík er djöfladans,
drukkið fast og barist.
Menning okkar mæta lands
mun þar hafa farist.
Í danshúsi var stækja sterk,
stóðu menn í pressu.
Það má kalla kraftaverk
að komast lífs úr þessu.
Pálmi Hannesson rektor sótti
svosem ekki margar slíkar
samkomur, en ávallt í einum
tilgangi:
Ef þú daman ung og sæt
ert á gamanferðum,
þá er Amors „auto light“
á mér framanverðum.
Sturlaugur Jóhannsson man
svipaðar kenndir frá sumargleði:
Þú komst í sumar sumri lík,
og sólin skein.
Hver runni fylltist rómantík
frá rótargrein.
Og það fylgdi ilmur þér
í engri flík.
Enn að vitum angan ber
frá Atlavík.
Mörg farsæl hjónabönd urðu líka
til á útihátíðum, en önnur rofnuðu
með tilheyrandi sársauka. Næsta
vísa um tryggðarof er þó ort löngu
fyrir tíma útihátíða. Hallgrímur
Jónsson Thorlacius er var
skólastjóri á Hólum 1708 kvað,
er unnusta hans brá heiti við hann
af því hann hafði getið barn við
annarri:
Virtu það ekki mér til meins,
menn erum vér, þótt hrösum.
Þér kann að verða‘á annað eins
áður en lýkur nösum.
Af svipuðum toga er næsta vísa,
en þrátt fyrir leit fannst ekki
höfundur. Þar hermir að bóndi
nokkur hafi tekið framhjá konu
sinni, en tveim árum síðar komið
að konunni í mökum við annan
mann:
Dúkafreyja dörs hjá ygg
dúrinn þiggur fegin.
Saman beygja sæng á hrygg,
svona liggja greyin.
Nú fyrst kveðið er um klæðaleysi,
þá passar vísa Bjarna frá Gröf
vel við efnið:
Í kirkjuna ég kom og sá
konu, sem var nærri ber.
Það munaði ekki miklu þá
að maður bæði fyrir sér.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggd1@gmail.com
Líf og starf
MÆLT AF
MUNNI FRAM
N
Matur og menning í Reykholtsdal
Snæfellingar komu saman á sveitamarkaði
„Þetta gekk afskaplega vel, veðrið
lék við okkur og mikill fjöldi fólks
kom og átti hér góða stund,“ segir
Þóra Sif Kópsdóttir, ein þeirra
sem stóðu fyrir Sveitamarkaði í
Breiðabliki á Snæfellsnesi sem
haldinn var nýverið og þá í sjötta
sinn.
Þóra segir
að markaðurinn
sé afsprengi
verkefnisins
Lifandi land-
búnaðar, en
þátttakendur í
því verkefni á
svæðinu hafi
tekið sig saman
um að koma
m a r k a ð n u m
á. Hann er haldinn einu sinni að
sumarlagi og eins er opnaður
markaður á aðventu. Fólk úr héraði
safnast saman og hver kemur með
sitt, handverk, afurðir sem unnar
eru undir merkjum verkefnisins
Beint frá býli, eins og kjöt, sultur
eða bakkelsi af ýmsu tagi, og býður
gestum og gangandi til kaups.
„Það kennir ýmissa grasa á þessum
markaði, þarna er fjölbreytileikinn í
fyrirrúmi og auk þess hefur verkið
undið upp á sig þannig að við erum
með dagskráratriði sem fá fólk til að
staldra við og eiga með okkur góða
dagsstund,“ segir Þóra.
Meðal annars sýndi Guðný
Margrét Þóroddsdóttir listir sínar
og hests síns Háseta, sem hún fékk
í fermingargjöf, og vakti sýningin
mikla athygli. Þá var Svanur í Dal
með fjárhunda og fé og sýndi gestum
hvernig best er að bera sig að í
smalamennsku. Ungmennafélagið
var með leiki og Björgunarsveitin
Elliði sýndi nýtt tæki, Argo, sem
hún hefur nýlega eignast, en að sögn
Þóra hentar það t.d. ágætlega komi til
þess að bjarga þurfi hestamönnum úr
Löngufjöru. Grillvagn Landssamtaka
sauðfjárbænda var á staðnum og fengu
gestir að bragða á gómsætu lambakjöti,
Kvenfélagskonur bökuðu og seldu
vöfflur, sýnikennsla var í prjónaskap
og hvernig á að spinna og þá voru
félagar úr fornbílaklúbbnum með
gamla bíla og eldri landbúnaðarvélar
á staðnum. /MÞÞ
Myndir / Gréta Bergrún Jóhannesdóttir
fyrirtækið.
Björgunarsveitarinnar Elliða stendur
Myndir / Þóra Sif Kópsdóttir