Bændablaðið - 01.08.2013, Page 14
14
Notkun sýklalyfja í dýrum er minni
hér á landi en víðast hvar í Evrópu.
Þetta kemur fram í nýlegri skýrslu
Landlæknis um sýklalyfjanotkun og
sýklalyfjanæmi baktería í mönnum
og dýrum árið 2012, sem og í skýrslu
Lyfjastofnunar Evrópu um sölu
sýklalyfja fyrir dýr. Fram kemur
að sýklalyfjanotkun í dýrum hefur
dregist saman um 23% frá árinu
2010, eða um tæpan fjórðung. Yfir
helmingur þeirra sýklalyfja sem
notaður er hér á landi er úr flokki
pensilína. Á sama tíma hefur notkun
breiðvirkra pensilína aukist nokkuð,
sem veldur mönnum áhyggjum og
þarfnast frekari skoðunar.
Strangar reglur varðandi
afhendingu og notkun lyfja
Sigurborg Daða-
dóttir, yfir-
dýra læknir hjá
Matvælastofnun,
segir gott að fá
samanburð við
önnur lönd hvað
sýklalyfjanotkun
í dýrum varðar
og gleðilegt sé að
árangur Íslendinga
sé góður. „Þetta
sýnir að við erum á réttri leið, það
er vissulega góður árangur að dregið
hefur úr notkun sýklalyfja,“ segir hún.
Skýringar geti verið margar, m.a. þær að
dýrum hafi fækkað, sjúkdómstilfelli séu
færri eða hvort öðrum meðhöndlunum
sé beitt í ríkari mæli nú, t.d. hvort
júgurbólga sé læknuð án sýklalyfja.
Hún telur að dýrum hafi ekki fækkað
og skýringa því að leita annars staðar.
„Við búum við strangar reglur
varðandi afhendingu og notkun á lyfjum
í dýr, auk þess sem Dýralæknafélag
Íslands setti sér lyfjastefnu fyrir um
áratug og hafa flestir dýralæknar
unnið eftir henni síðan. Að mínu
mati er þessi góði árangur þessum
ströngum reglum og lyfjastefnunni
fyrst og fremst að þakka,“ segir hún.
Þá nefnir hún að dýrastofnar hér á landi
séu almennt heilbrigðir og smitvarnir
séu einnig góðar. „Það held ég að sé
meginskýringin á því að við notum
minna af sýklalyfjum en aðrar þjóðir,“
segir Sigurborg.
Hún segir að markmið og tilgangur
Dýralæknafélags Íslands með því
að setja sér lyfjastefnu varðandi
lyfjanotkun sé m.a. að hindra að
dýraafurðir séu mengaðar lyfjaleifum
og einnig að hindra myndun ónæmis
gegn sýklalyfjum, „með því að leggja
höfuðáherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir
og draga úr notkun sýklalyfja eins og
kostur er eykst möguleiki á að hægt sé
að nota þau í framtíðinni,“ segir hún.
Dýralæknar sjúkdómsgreini og hefji
meðferð á veiku búfé
Fram kemur í reglugerð að dýralæknir
skuli ávallt hefja meðhöndlun á
veiku búfé og sjúkdómsgreining
sé á hans könnu. Einungis sé hægt
að veita undanþágu frá þessu
ákvæði reglugerðarinnar þar sem
landfræðilegir staðhættir, veðurfar eða
aðrar ytri aðstæður hindri dýralækni
í að hefja meðferðina. Einkum segir
Sigurborg að undanþága þessi sé veitt
þegar sauðfjárbændur eigi í hlut á
sauðburði. „Eftir þessum reglum höfum
við unnið í áratug og greinilega með
góðum árangri,“ segir hún og bætir
við að dýralæknar hafi að leiðarljósi að
vísindaleg rök séu ávallt til grundvallar
ákvörðun um notkun á sýklalyfjum,
valið sé markvisst og þau lyf notuð sem
best virki á viðkomandi sýkil. „Pensilín
er alltaf fyrsti valkostur og dýralæknar
forðast almennt notkun breiðvirkra lyfja
og lyfja sem vitað er að valda frekar
myndun ónæmis en önnur. Breiðvirku
lyfin á eingöngu að nota gegn sýklum
sem eru ónæmir fyrir þröngvirkari
lyfjum,“ segir hún „Sýkla lyfja ónæmi
er ein alvarlegasta heilbrigðisógn sem
að okkur steðjar, þ.e. að örverur verði
ónæmar fyrir sýklalyfjum, það getur
hafa mjög alvarlegar afleiðingar í för
með sér.“
Gott innlegg í umræðuna
Sigurborg segir að þessi góði
árangur sem náðst hafi hér á landi
með minnkandi sýklalyfjanotkun sé
gott innlegg í umræðuna, en t.d. hafi
bæði Búnaðarþing og búnaðarsamtök
ítrekað sent frá sér ályktanir í þá veru
að bændur hafi frjálsari aðgang að
lyfjum, eflaust með þau rök að baki
að með því spari þeir sér kostnað við
komu dýralæknis heim á býli sín. „Það
hefur verið töluverð pressa frá bændum
og hagsmunasamtökum þeirra, sem
gjarnan vilja að yfirvöld slaki á kröfum.
Ég brýni fyrir bændum að skoða
heildarmyndina og þessi niðurstaða er
verulega góð fyrir okkur Íslendinga og
sýnir að við stöndum okkur vel, betur
en nágrannaþjóðir okkar, og það er
vel,“ segir Sigurborg.
Hún segir að skoða þurfi aukna
notkun á breiðvirku pensilíni á
tímabilinu sem um ræðir. Heildar-
notkun í magni sé þó ekki mikil þó
að prósentutalan sé há, 38%, og að
á þessari aukningu geti verið ýmsar
skýringar. „Það er ástæða til að staldra
við og skoða málið en eins og staðan
er nú er ekki augljóst hvað veldur
þessari aukningu, þ.e. hvort notkun sé
t.d. staðbundin vegna sýkinga sem upp
hafa komið á ákveðnu býli eða svæðum
og menn hafi þar verið að bregðast við
erfiðum sýkingum þar sem önnur lyf
hafa ekki dugað eða hvort þetta sé
bundið við ákveðna dýrategund,“ segir
Sigurborg. / MÞÞ
Notkun sýklalyfja í dýrum minni hér en víðast í Evrópu
Góður árangur og sýnir
að við erum á réttri leið
– segir Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir hjá Mast
Sigurborg
Daðadóttir
Sýklalyfjaónæmi er
alþjóðlegt vandamál
Mikil áhersla hefur verið lögð á
það í alþjóðasamfélaginu undan-
farin ár að sporna við auknu
sýklalyfja ónæmi baktería, en
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
hefur skilgreint sýklalyfjaónæmi sem
eina af stærstu heilbrigðisógnunum
heims. Aukið ónæmi fyrir sýklalyfjum
veldur vandamálum við meðferð
sýkinga og hefur þar af leiðandi
slæmar afleiðingar fyrir heilsu manna
og dýra auk þess að valda auknum
kostnaði við heilbrigðisþjónustu.
Fram kemur í skýrslu Land læknis að
Sóttvarnastofnun Evrópu sambandsins
áætli að í Evrópu komi upp um það
bil 400 þúsund sýkingar á hverju ári
af völdum ónæmra sýkla sem leiða
til um 25 þúsund dauðsfalla. Með
auknum ferðalögum og viðskiptum
með matvæli og dýraafurðir
heimshorna á milli opnast leiðir
fyrir sýklalyfjaónæmar bakteríur til
að dreifa sér. Sýklalyfjaónæmi er því
alþjóðlegt vandamál.
Sýklalyfjanotkun er áhrifamesti
þátturinn í vali og dreifingu
sýklalyfjaónæmis. Röng eða of
mikil sýklalyfjanotkun eykur
hættu á uppkomu og útbreiðslu
sýklalyfjaónæmra baktería.
Forsenda markvissra aðgerða gegn
óskynsamlegri sýklalyfjanotkun
er að hafa góðar og áreiðanlegar
upplýsingar um notkun sýklalyfja
og þróun ónæmis gegn þeim.
Notkun sýklalyfja í búfénaði í 19 Evrópulöndum árið 2010. Mælt í mg/PCU.
Til að auðvelda samanburð milli landa er notkun sýklalyfja í búfénaði deilt í
Heimild: Embætti landlæknis, júní 2013.
Notkun sýklalyfja í búfénaði á Norðurlöndum árið 2010, mælt í mg/PCU.
Heimild: Embætti landlæknis, júní 2013.
Smiðjuhátíð Tækniminjasafnsins
var haldin á Seyðisfirði í sjötta sinn
um þarsíðustu helgi. Smiðjuhátíðin
hefur skapað sér sess sem ein
af skemmtilegri bæjarhátíðum
landsins en þar koma saman lista-
og ýmsir hagleiksmenn.
Boðið var upp á námskeið
fyrir þátttakendur sem koma
víða að. Í ár var m.a. haldið
byrjendanámskeið í eldsmíði,
prent- og bókverkanámskeið,
grunnnámskeið í málmsteypu og í
hnífasmíði.
Veitingahúsið Aldan sá til þess
að enginn fór svangur heim, en
boðið var upp á rammíslenskan
mat alla helgina. Á kvöldin voru
tónleikar og bryggjuball. Þar komu
fram valinkunnir hljómlistarmenn
eins og Kristján Kristjánsson, Elín
Eyþórsdóttir, hljómsveitin Stormur
í aðsigi, Blussbandið og Stórsveit
Eithor Storms.
Bæjarhátíð með göfugan tilgang
Læra handverk á
Smiðjuhátíð
handbrögð undir leiðsögn sérfræðinga. Myndir / TB
Þórunn Eymundardóttir og Helgi Örn
Pétursson við málmsteypu.
Í málmsteypunni gera menn mót
með örfínum leir.
Í Tækniminjasafninu gafst kostur á því að kynna sér prentlistina. Hér er
Rannveig Þórhallsdóttir til hægri og ensk ónafngreind kona henni við hlið
að útbúa prentgripi. Í bakgrunni er Jóhann Ludwig Torfason kennari.