Bændablaðið - 01.08.2013, Page 18
18
Fjósbruninn á Egg í Skagafirði
„Hvarflaði aldrei að okkur að það gæti kviknað í úti í fjósi“
– Bændur á Egg ákveðnir í að setja upp brunavarnarkerfi eftir eldsvoða
„Framkvæmdir eru bara stopp
í bili. Við erum að bíða eftir
að smiðirnir klári þau verkefni
sem þeir eru í. Þakinu var bara
lokað og það er í lagi þannig
núna á meðan sumar er, meðan
kýrnar eru úti,“ segir Embla
Dóra Björnsdóttir bóndi á Egg
í Hegranesi í Skagafirði, en sem
kunnugt er kviknaði í fjósi á
bænum snemma í síðasta mánuði.
Þak á fjósinu skemmdist talsvert
og annað tjón varð á byggingum.
Bændur á nágrannabænum
Hamri urðu eldsins varir og
gátu gert viðvart en eldsins varð
vart um tvöleytið um nótt. Í
sameiningu náðu bændur á Egg
og Hamri svo að bjarga öllum
gripum úr húsunum án þess að
þeim yrði meint af.
Embla segir að hún viti í raun
ekki hvenær hægt verði að klára
framkvæmdir. Bæði sé beðið eftir
hlutum eins og loftræstikerfi en einnig
að þurfi að fá iðnaðarmenn á staðinn.
Þá þurfi að fara í framkvæmdir á fleiru
en beinlínis brann, t.a.m. rafmagni.
„Það hefur líklega komist vatn
inn á rafkerfið því það kviknaði í
rafmagnstöflunni viku eftir að bruninn
varð. Það sló út rafmagninu og hún
hreinlega byrjaði að bráðna. Sem
betur fer gerðist þetta um miðjan dag
og ég var stödd í mjólkurhúsinu. Við
gátum því strax slegið út og fengið
rafvirkja til að koma. Það var hægt
að mjólka í fjósinu um kvöldið. Ég
neita því hins vegar ekki að mér var
mjög brugðið og ég varð eiginlega
reið yfir þessu.“
Búið var vel tryggt
Embla segir að þau hjón, hún og
Davíð Logi Jónsson, séu vel tryggð
fyrir tjóni af þessu tagi. „Það
kom hér fulltrúi tryggingafélags
í fyrravor og tók út allt hjá okkur
og við gengum svo frá þeim
tryggingum sem við áttu. Þeir hafa
verið mjög liðlegir við okkur en
það á eftir að komast á hreint hvað
þetta mun kosta.“
Vaknar þrisvar á nóttu
„Ég sef ekki mikið á nóttinni núna,
ég vakna svona þrisvar á nóttu til að
fara út í fjós. Ég var svo taugaveikluð
strax eftir brunann og var alltaf að
fara út að líta eftir. Þá sögðu allir
við mig „það kviknar ekkert í aftur,
farðu bara að sofa“. Svo kviknaði
hins vegar bara aftur í, eða næstum
því. Ef ég hefði ekki verið þarna við
hefði kviknað aftur í. Svo nú sef ég
ekki neitt,“ segir Embla og bætir við
að þau hjón ætli sér nú að setja upp
brunavarnarkerfi í fjósið. „Við ætlum
að gera það. Svoleiðis kerfi kostar
einhverjar 200.000 krónur en það er
bara dropi í hafið miðað við tjónið
sem getur orðið. Þegar við keyptum
hér sagði enginn okkur að setja upp
brunavarnarkerfi og við vorum svo
reynslulaus að við hugsuðum ekki
út í það. Það eru reykskynjarar í
íbúðarhúsinu og við pössum að
skipta um rafhlöður í þeim og svona
en það hvarflaði aldrei að okkur að
það gæti kviknað í úti í fjósi.“
Borðuðu fjórtán kíló af kartöflum
á tveimur dögum
Þau hjón á Egg fengu mikla hjálp frá
vinum og ættingjum eftir brunann
við hreinsunarstörf og lagfæringar.
„Það fylltist hér allt af fólki til að
hjálpa okkur og við erum öllum mjög
þakklát. Á þessum tveimur dögum
eftir brunann borðuðum við fjórtán
kíló af kartöflum, sem dæmi um
hversu margir voru hér að aðstoða
okkur og voru í mat.“ / fr
Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 544 5466
Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.
ODORITE
ÖRVERUHREINSIR
MILDEX-Q
MYGLUEYÐIR
WIPE OUT
OFNA OG GRILLHREINSIR
NOVADAN
KLÓRTÖFLUR
- Í POTTINN
SEPT-O-AID
ÖRVERUR FYRIR ROTÞRÆR
HÁÞRÝSTIDÆLUR
ÚRVALS VÖRUR FYRIR VIÐHALDIÐ OG VERKIN Í BÚSTAÐNUM.
KÍKTU Í KEMI BÚÐINA OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ!
ERTU Á LEIÐ Í BÚSTAÐINN
Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri www.jotunn.is
Jötunn Vélar ehf. - Kt. 600404 2610
Hafðu samband við sölumenn í síma 480 0402.
Eigum á lager allar stærðir
Vinnslubreidd frá 3,80 - 8,80 m
Öll heyvinnutæki
eru afhent samsett! Stjörnumúgavélar
Stjörnumúgavélar í úrvali
Þak á fjósinu skemmdist talsvert og fyrsta verk eftir brunann var að loka því.
Mynd / Guðrún S. Helgadóttir