Bændablaðið - 01.08.2013, Síða 19
19
Þorsteinn Guðmundsson og
Linda Björk Steingrímsdóttir
búa á bænum Ketilsstöðum í
Hjaltastaðaþinghá á Austurlandi.
Þau lentu í miklu kaltjóni og þurftu
að endurrækta um 90 hektara
lands í vor vegna kalskemmda.
Þorsteinn og Linda Björk reka
stórt kúabú og framleiða á sjöunda
hundrað þúsund lítra af mjólk á
ári, sem kemur þeim í flokk stærstu
kúabúa á Íslandi. Kostnað við
áburðar-, olíu- og frækaup vegna
jarðræktarinnar áætla þau á bilinu
8-9 milljónir króna. Þau segja tekjur
kúabænda ekki standa undir þeim
miklu verðlagshækkunum sem hafa
orðið á flestum aðföngum síðustu ár
og segja mikilvægt að bændur fái
hærra verð fyrir mjólkina.
„Við komum hingað austur árið
1993, keyptum jörðina og komum
okkur upp bústofni. Nú erum við
með um 120 kýr á fóðrum og tvo
mjaltaþjóna í fjósinu. Komu þeirra
hef ég líkt við þá byltingu þegar
mjaltavélin kom á sínum tíma,“ segir
Þorsteinn. Þau hjónin stækkuðu fjósið
árið 2005 og nú er verið að breikka
gamla fjósið til þess að bæta við
legubásum. Nautkálfa selja þau út af
búinu en ala kvígurnar upp.
Völdu þá leið að endurrækta
Kalskemmdirnar sem urðu á ræktun
á Ketilsstöðum í vetur og vor hafa
dregið dilk á eftir sér. Segja má að
bændurnir hafi þurft að endur rækta
flestöll tún og endurskipuleggja
fóðuröflun sumarsins í kjölfarið.
„Túnin hjá okkur voru alveg hvít-
kalin eftir veturinn. Það voru um
90 hektarar sem við sáðum í í júní-
byrjun og fram mánuðinn. Mest var
þetta hafrar og grasfræ í bland en líka
rýgresi og grasfræ. Þetta verður uppi-
staðan í fóðrinu næsta vetur, verkað
í rúllur. Trúlega fer ég að slá þetta í
endaðan ágúst eða í byrjun septem-
ber,“ segir Þorsteinn. Sumarið hefur
verið hagstætt og sprettutíð góð. „Það
bætti aðeins fyrir veturinn, góður raki
og hlýtt. Vorinu seinkaði raunar um
hálfan mánuð hér á þessum slóðum,“
segir Þorsteinn. Spurður hvernig til-
finning það sé að verða fyrir jafn
miklu tjóni svarar Þorsteinn því af
æðruleysi. „Það fylgir ákveðin ábyrgð
því að vera með þennan fjölda af
gripum og maður þarf að ákveða
hvaða leiðir á að fara í slíkri stöðu.
Það þarf að ná ákveðnu magni af heyi
fyrir næsta vetur. Hér á þessu svæði
voru kalskemmdir almennar, svo það
var ekki inni í myndinni að ná sér í
slægjur annars staðar. Það að endur-
rækta hér hjá okkur var sú leið sem
við völdum. Það er vissulega dýrt að
vinna upp svona mikið land og mikil
vinna.“ Hann segist hafa unnið verkið
að mestu sjálfur með sínu fólki en
flest jarðvinnslutæki eru til á búinu.
Þorsteinn ráðfærði sig við ráðunauta
á svæðinu sem hafa reynslu af kal-
skemmdum um val á frætegundum.
„Ég setti hafra og rýgresi niður ásamt
vallarfoxfræinu Snorra.“
Sem kunnugt er brugðust stjórn-
völd hratt við í sumar og tilkynntu
að bændur fengju í heildina 350
milljónir í aukna jarðræktarstyrki
vegna kaltjóna. Óvíst er enn hvernig
sú upphæð mun skiptast á milli bænda
en þó liggur fyrir að bú fá 60 þúsund
króna styrk á hvern hektara.
Kalið var fjárhagslegt áfall
„Beinn kostnaður við endurræktun
vorsins er á bilinu 8-9 milljónir vegna
kaupa á olíu á vélarnar, grasfræi og
áburði,“ segir Þorsteinn. Þarna er
ekki búið að taka með í reikninginn
vinnulaun bóndans eða vélavinnu.
Lesendur kunna að spyrja sig hvernig
bændur mæta þessum útgjöldum því
varla eru þetta upphæðir sem menn
liggja með á reikningum. „Nei, ég
held að yfirleitt sé það svoleiðis hjá
bændum að þeir fá gjalddaga fram á
haustið hjá fræ- og áburðarbirgjum.
Þeir hafa sýnt þessu ástandi mikinn
skilning,“ segir Þorsteinn. Hann segir
að þrátt fyrir fjárhagsleg áföll sem
fylgi óneitanlega kaltjóni hafi enginn
bóndi í hans nágrenni brugðið búi af
þeim sökum.
Hætt í korninu
Í meðalári eru um 15 hektarar
endur ræktaðir á Ketilsstöðum, mest
túnrækt en ekki er ræktað korn á
býlinu. Tún og önnur ræktun á bæ-
num telur í heildina 120 hektara en
hjónin eru með slægjur víðar og eiga
einnig jörðina Ártún sem liggur að
Ketilsstöðum. „Ég er alveg hættur í
kornræktinni. Það er of mikil áhætta
að mínu mati, mikil fjárbinding í
henni og óvíst með upp skeru sem
nýtist ekki öll ár.“
Kýrnar á beit
Á Ketilsstöðum ganga kýrnar úti yfir
sumartímann. „Ég set kýrnar út um
tíu á morgnana og tek þær aftur inn
um sexleytið. Við erum með ágætar
aðstæður til þess að hafa kýrnar úti,
sem er sjálfsagt mál. Á vorin fara
þær fyrst á vallarfoxgras en seinnipart
sumars er þeim beitt á rýgresi.“
Vilja innflutning á erfðaefni og
telja kvótamarkaðinn afturför
Þorsteinn er þeirrar skoðunar að það
eigi að leyfa innflutning á erlendu
erfðaefni til að auka hagkvæmnina í
búskapnum. „Það væri mesta kjara-
bótin sem kúabændur gætu fengið.
Nýtt erfðaefni myndi efla ræktunina
og gera okkur kleift að bæta fram-
leiðsluna. Við getum fengið meira úr-
val að utan en við getum sjálf fengið
út úr stofni sem telur einungis um
tuttugu þúsund dýr. Fyrir mér er þetta
ekki tilfinningamál heldur rekstrar-
mál. Menn geta haldið í íslensku kúna
sem vilja.“
Bæði Þorsteinn og Linda segja
nýlegt fyrirkomulag með kvóta markað
í mjólk, sem haldinn er tvisvar á ári,
vera afturför. „Okkur finnst ekki vera
hvati í kerfinu til þess að ná kvótaverð-
inu neitt niður eins og tilgangurinn
var hugsanlega upphaflega. Nú þurfa
bændur að leggja út fyrir bankaábyrgð
og tilhneigingin virðist vera að bjóða
heldur betur en verðið var á síðasta
markaði,“ segir Linda Björk og bætir
því við að henni finnist slæmt að menn
geti ekki selt kvótann á sínum forsend-
um. „Segjum til dæmis að ef upp koma
slys eða veikindi og fólk þarf að losa
sig við greiðslumark. Þá er það ekkert í
boði því það getur tekið langan tíma að
losna við eignina,“ segir Linda Björk.
„Mér finnst orka tvímælis að tala um
aukna hagræðingu og ná fram meiri
framlegð í greininni að setja hömlur
á viðskipti,“ segir Þorsteinn og bendir
á dæmi. „Við megum til dæmis ekki
kaupa jörð með greiðslumarki og
framleiða mjólkina hér í fjósinu okkar.
Við yrðum að framleiða hana á við-
komandi jörð þó við gætum framleitt
mjólkurmagnið í fjósinu hér.“
Mjólkurverðið fylgi verðlagsþróun
Það er augljóst að bóndinn hefur
ákveðnar skoðanir á kjaramálum
bænda. „Mér finnst að verð á mjólk
eigi að fylgja verðlagsþróun í landinu.
Það eiga ekki að gilda önnur lögmál
um mjólk en aðrar vörur. Á sama tíma
og verð á mjólk helst nánast óbreytt
kaupir fólk hálfs lítra vatnsflösku á
150 krónur úti í búð. Það er eitthvað
bogið við það og það kvartar enginn
yfir því!“ segir Þorsteinn Guðmunds-
son að lokum. /TB
Sími: 414-0000 / 464-8600
ALLT Í HEYSKAPINN
TINDAR
HNÍFAR Í ÚRVALI
Eigum til gott úrval
í flestar gerðir
heyvinnuvéla
Krone - Fella - Kuhn - Welger
Deutz Fahr - PZ Fanex
Vicon Springmaster og Acrobat
BINDINET
BINDIGARN
KEÐJUR
KEÐJULÁSAR
Framúrskarandi
5 laga rúlluplast
SUPERGRASS
RÚLLUPLAST
Mikið úrval
í rúllubindivélar
DEKK UNDIR
HEYVINNUVÉLAR
www.VBL.is
REYKJAVÍK
S: 414-0000
AKUREYRI
S: 464-8600
Bændurnir á Ketilsstöðum í Hjaltastaðaþinghá
Endurræktuðu 90 hektara af túnum eftir stórfellt kaltjón
– Beinn kostnaður á bilinu 8-9 milljónir króna
Myndir / TB