Bændablaðið - 01.08.2013, Qupperneq 30
30
Kristinn Guðnason á Þverlæk
rak félagsbú með foreldrum
sínum frá 1983. Kona hans, Elín
Guðjónsdóttir, kemur svo inn í
búskapinn 1985 en árið 2001
keyptu þau búið af foreldrum
Kristins og hafa rekið það síðan.
Kristinn er fjórði ættliður sem
rekur búið frá aldmótum 1900.
Mjólkursala hófst 1944 og hefur
vaxið síðan með hverri kynslóð.
Á árunum 1998-2010 breyttu þau
hlöðu í mjaltabás með 12 tækjum,
byggðu við kúafjósið og breyttu
eldri fjósum í lausagöngufjós með
legubásum.
Býli? Þverlækur.
Staðsett í sveit? Í Holtum í
Rangárþingi ytra.
Ábúendur? Elín Guðjónsdóttir og
Kristinn Guðnason.
Fjölskyldustærð (og gæludýra)?
Við eigum tvö uppkomin börn,
Berglindi sem býr á Hrafnagili
í Eyjafjarðarsveit og Hafstein
sem vinnur heima á búinu. Fyrri
kynslóð, foreldrar Kristins, þau
Margrét Þórðardóttir og Guðni
Guðmundson, búa líka á bænum,
stunda skógrækt og hjálpa enn til
við bústörfin.
Stærð jarðar? 317 ha.
Gerð bús? Kúabú með bæði
mjólkur- og nautakjötsfram-
leiðslu.
Fjöldi búfjár og tegundir? Um
60 kýr, aðrir nautgripir um 160,
nokkrar pútur, tveir fjósakettir og
fáein hross upp á punt.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Það eru engir tveir dagur eins en
fastir liðir eru auðvitað mjaltir
kvölds og morgna og unnið þar til
dag þrýtur.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Skemmtilegast
er að slá upp á heiðum í
norðanþurrki og virða fyrir sér
allt Suðurlandsundirlendið og
fjallahringinn í hverjum hring.
Leiðinlegastar eru bilaðar búvélar
á annatíma.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir
fimm ár? Mjög svipaðan en betri
kýr, stærri tún og meira nautakjöt.
Hvaða skoðun hafið þið á félags-
málum bænda? Þetta er vanda-
samt en vanþakklátt starf.
Hvernig mun íslenskum land-
búnaði vegna í fram tíðinni?
Hann seiglast vonandi vel áfram
en það fer eftir veðri og pólitískum
vindum.
Hvar teljið þið helstu tækifærin
í útflutningi íslenskra búvara? Í
skyri, lamba- og hrossakjöti.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Íslenskt megrunarfæði: smjör, mikill
rjómi, KEA skyr, ostar og íslenskt
grænmeti.
Hver er vinsælasti maturinn
á heimilinu? Húsbóndinn vill
mauksoðnar karftöflur, lítið
eldað nautakjöt og súrt skyr
en frúin hægeldað lambæri
með smjörsteiktu grænmeti og
rjómasveppasósu.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Þau eru mörg en til að
nefna tvö var það eftirminnilegt
þegar fyrsta kýrin lagðist í mjúkan
legubásinn og lygndi aftur
augunum, einnig þegar kviknaði í
einum traktornum og hann keyrði
mannlaus sjö hringi logandi um
túnið þar til eldurinn sprengdi annað
dekkið, þá hjakkaði hann þar á
felgunni þar til slökkviliðið kom.
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
Nú er stærsta ferðahelgi ársins fram
undan. Þá er upplagt að undirbúa
ferðalagið heima í eldhúsi og elda
tandoori-kjúklingabringur. Þeir
sem vilja ekki sjá annað en íslenska
lambakjötið kaupa að sjálfsögðu
hryggvöðva og krydda hann með
blóðbergi beint úr náttúrunni.
Með báðum réttum er upplagt
að bera fram ferskt grænmeti,
villta sveppi og sprúðlandi
nýjar kartöflur. Síðan fylgir
ljúffengur bláberjaeftirréttur en
berjavertíðin nálgast óðfluga.
L a m b a h r yg g vö ð v i m e ð
blóðbergi
4 stk. lambahryggvöðvar
Kryddlögur
› 1 stk. hvítlauksgeiri
› 20 ml sojasósa
› 20 ml sítrónusafi og börkur
› 3 msk. Dijon-sinnep
› 2 msk. hunang
› 2 greinar blóðberg
› salt og pipar
Aðferð:
Afhýðið hvítlauk og pressið. Blandið
sojasósu, hvítlauk, sítrónusafa og
berki (notið rasp til að raspa niður ysta
lagið af sítrónunni), dijon sinnepi,
hunangi og blóðbergi saman í skál.
Kryddlöginn má geyma í ísskáp í 1-2
daga fyrir notkun. Grillið eða steikið
hryggvöðvana í um 2 mín. á hvorri
hlið og penslið með kryddleginum
jafn óðum, kryddið með salti og pipar
og berið fram með villisveppum og
fersku salati.
Tandoori-kryddaðar
kjúklingabringur
› 4 stk. kjúklingabringur, skinnlausar
› 2 msk. Tandoori-kryddblanda, sjá
uppskrift hér á eftir
› 2 msk. smjör eða ólífuolía
Aðferð:
Steikið kjúklingabringurnar stökkar
á pönnu og eldið síðan í ofni við
gegnumsteiktar. Svo er líka gott að
setja þær á kolagrill til að fá ekta
reykbragð og er það svipað og
Tandoori-ofnarnir sem elda á mjög
miklum hita.
Tandoori kryddblanda
› 1 tsk. karrý
› 2 tsk. paprikuduft
› 1 tsk. túrmerik
› 1 tsk. chili-duft
› ½ tsk. kumminduft
› ½ tsk. kóríanderduft
› ¼ tsk. hvítur pipar
› ¼ tsk. Cayenne-pipar
Aðferð:
Blandið öllum kryddtegundunum
saman ásamt örlitlu salti. Gott
er að rista kryddið á pönnu til að
ná fram meira bragði, en það er
ekki nauðsynlegt. Í staðinn fyrir
kryddblönduna má líka nota tilbúna
kryddblöndu.
Lagskiptur bláberjaeftirréttur
› 200 g bláber (sítrónusafi m. hrásykur)
› 1 dallur marscapone-ostur
› 1 peli þeyttur rjómi (eða þeytirjómi)
› Nokkrar súkkulaðikexkökur
› 1 stk. sítróna, safi og börkur (rifinn
með rifjárni utan af sítrónunni)
Aðferð:
Takið 4-6 glös eða sultukrukkur
og setjið 3 tsk. af bláberjamauki á
botninn á hverju glasi; notið teskeið
með löngu skafti. (Bláberjamauk er
hægt að gera með ögn af sítrónusafa,
bláberjum og smá hrásykri ef berin
eru súr).
Setjið marscapone-ostinn í
sprautupoka með löngum stút og
sprautið svolitlu af kreminu í hvert
glas.
Setjið 3 tsk. af nammikurli eða
súkkulaðikúlum ofan á marscapone-
ostinn og sprautið síðan öðru lagi af
þeyttum rjóma ofan á.
Skreytið glösin með muldu kexi,
sítrónuberki og berjum. Raðið
glösunum á bakka og kælið þar til
á að borða réttinn.
MATARKRÓKURINN BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI
Þverlækur
Þverlækur árið 1934.
Þverlækur árið 1980.
Hentugur matur í ferðalagið