Bændablaðið - 01.08.2013, Síða 31
31
2 1 9
4 2 7
6 9
5 7
3
8 6 1 3
4 8
9
5 3 7
9 1 2
3 8 9 6
7 8 6 1 2
2 7
2 5
1
8
4 6 7 8
7
3
55 4
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-
þrautirnar er að setja réttar
tölur frá 1-9 í eyðurn ar. Sama
talan má ekki koma fyrir
tvisvar í línu lárétt og lóð rétt
og heldur ekki innan hvers
reits sem afmarkaður er af
sverari lín um.
Þrautirnar eru miserfiðar,
sú sem er lengst til vinstri er
léttust og sú til hægri þyngst
en sú í miðjunni þar á milli.
Dagbjört Dís Pálsdóttir er fimm
ára gamall leikskólanemandi í
Grafarvogi í Reykjavík. Henni
finnst skemmtilegast að perla hjörtu
í leikskólanum en í sumar ætlar hún
að vera dugleg að fara í sund, ferða-
lög og vera mikið úti að leika sér.
Nafn: Dagbjört Dís Pálsdóttir.
Aldur: 5 ára.
Stjörnumerki: Hrútur.
Búseta: Reykjavík.
Skóli: Leikskólinn Funaborg.
skólanum? Að perla hjörtu.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Kettlingar og hvolpar.
Uppáhaldsmatur: Spagettí, pítsa,
hamborgarar, grjónagrautur en
lasanjað í leikskólanum er best.
Uppáhaldshljómsveit: Justin
Bieber.
Uppáhaldskvikmynd: Fiskamyndin
sem ég fór á í bíó og heitir Sammi.
Fyrsta minningin þín? Þegar ég gaf
jólasveinunum duddurnar mínar, ég
ég fékk dót í staðinn.
-
færi? Ég hef æft íþróttir í íþróttaskóla
og svo er ég stundum að sparka bolta.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú
gerir í tölvu? Að fara í leiki og horfa
á Matta morgun.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Listakona.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Þegar ég keyri niður
Laugaveginn með fjölskyldunni
minni, skrúfa niður rúðuna og segi
hæ við alla sem ganga framhjá.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
hefur gert? Að laga til en síðan er líka
leiðinlegt þegar einhver meiðir mig.
Ætlar þú að gera eitthvað sérstakt
í sumar? Ég ætla að vera úti að leika,
fara í ferðalög með fjölskyldunni og
síðan ætla ég að fara oft í sund.
PRJÓNAHORNIÐ
Mosi
Stærð
M/L og (XL/XXL)
Yfirvídd 98 (108) cm
Ermasídd 52 cm
Sídd á bol, undir handvegi 48 cm
Efni
Kartopu Gipsy grænt nr. K410 - 7/8 dokkur
PRJÓNAR
Hringprjónar nr. 8, 80 cm
Sokkaprjónar nr. 8
Prjónafesta
10 X 10 cm = 12 L og 17 umf slétt prjón. Notið
hálfu nr. stærri eða minni prjón eftir því sem við
á, ef prjónafestan passar ekki hjá ykkur.
Aðferð
Bolurinn er prjónaður fram og til baka, en ermar
er hægt að prjóna í hring.
Ein rönd er 12 umf = 10 sl umf + gatabekkur
og garðabekkur.
Bolur
Fitjið upp 113 (123)L á hringprjón nr 8 og prj
5 garða. Eftir þetta eru 7 fyrstu og 7 síðustu L
á hverjum prjóni alltaf prj sl, bæði á réttu og
röngu, og mynda garðaprjónslista.
Prj 10 umferðir sl á réttu og br á röngu. Í fimmtu
umf sem er á réttunni, er gert hnappagat í
garðaprjónslistann hægra megin. Þá eru fyrstu
3L prj, næstu 2 felldar af og umf prj til enda. Í
sjöttu umf er bandinu slegið tvisvar upp á prj
þar sem áður hafði verið fellt af.
Hnappagötin eru gerð í miðjunni á annarri
hvorri rönd alla leið upp peysuna, endað í
garðaprjónskantinum í hálsmálinu.
Nú er komið að gataumf. Prj fyrstu 7 L slétt
og *prj svo tvær Lsaman, sláið bandinu upp á
prjóninn*, endurtakið frá *-* út umferðina þar
til kemur að lykkjunum 7 sem alltaf eru prj slétt.
Prj næstu umf á röngunni slétt þannig að það
myndist garður á réttunni.
Endurtakið þetta fimm sinnum í viðbót,
alltaf með 10 umf á milli, og munið eftir
hnappagötunum.
Eftir þriðja gatabekkinn eru teknar úr tvær
lykkjur í hvorri hlið strax í fyrstu umf eftir að
búið er að prj hann. Þetta er prj þannig; prj 27
(30) L, prj 2 L saman, prj 2 L , takið 1L óprj, prj
1 L, steypið þeirri óprj yfir, prj 49 (51) L, prj 2 L
saman, prj 2L , takið 1 L óprj, prj 1 L, steypið
þeirri óprj yfir, prj 27 (30) L.
Setjið prjónamerki milli úrtakanna og miðið
úrtökuna sem á að gera eftir fjórða gatabekk
við þessa. Útaukningar eru síðan á sömu stöðum
eftir fimmta og sjötta gatabekk. Aukið út þannig:
Prjónið uns 1L er eftir að merki, aukið út, prjónið
2L, aukið út, endurtakið þetta svo við næsta
merki.
Að þessu loknu eru prj 8 umf. Setjið 6
miðlykkjurnar undir handveginum, hvoru megin
á bolnum, á nælu. Geymið bolinn og prj ermar.
Ermar
Fitjið upp 22 (24) L, tengið í hring og prj 4 garða.
Aukið út um 6 L í fyrstu sléttu umf. Prj 10 sléttar
umf og prj svo gatabekk. Aukið út um 2L strax
að gatabekknum loknum. Prjónið 5 rendur í
viðbót og aukið tvisvar (þrisvar) enn út um 2 L
í senn. Í sjöundu og síðustu röndinni eru prj sl 8
umf, í staðinn fyrir 10 umf, og svo eru 6 L undir
erminni settar á nælu. Prj við bolinn. Prjónið
hina ermina eins.
Axlarstykki
Þegar búið er að sameina bol og ermar eiga
að vera 157 (175) L á prjóninum. Næst er prj 1
umf á röngunni til baka. Svo er prj gatabekkur
og ein rönd til viðbótar. Að henni lokinni eru *2
L prj saman og 4L prj slétt* út umf. Röndin er
kláruð og eftir síðasta gatabekkinn eru *2 L prj
saman og 1 L prj slétt* út umf. Prjónið næst 7
umf, í síðustu umf eru prj * 2 L prj saman og 1
L prj slétt*.
Nú er komið að hálsmálinu, þá eru prjónaðir
4 garðar, í þriðja garðanum þarf að gera ráð
fyrir síðasta hnappagatinu. Í síðustu umf fyrir
affellingu eru teknar úr 10 L jafnt yfir prjóninn.
Fellið af, gangið frá endum og lykkið saman
undir ermum. / Helena Eiríksdóttir
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Ætlar að verða listakona
2
Létt
1 5 2
5 9
7 6
1 6 5
6 3 5 2
8 3 9
6 8
7 2
4 3 8
ÞungMiðlungs
BÆKUR & TÍMARIT
Nýtt tölublað Dýraverndarans
er komið út, það fyrsta í 30
ár. Tímaritið kom fyrst út árið
1915 og var það gefið út af
Dýraverndunarfélagi Íslands (sem nú
heitir Dýraverndarsamband Íslands,
skammstafað DÍS). Tímaritið var
gefið út í um mannsaldur eða svo,
allt til ársins 1983 en varð þá hlé
á útgáfu í 30 ár. Margir sem eldri
eru muna vel eftir blaðinu og víst er
að það var kærkomin sending sem
barst reglulega inn á fjöldamörg
íslensk heimili. Útgefendur segja í
fréttatilkynningu að þeir hafi fengið
kveðjur frá eldra fólki sem gleðst
mjög yfir því að blaðið sé að koma
út aftur.
Markmið útgefandans er að gefa
blaðið út tvisvar á ári. Félagar í DÍS
fá það sent heim til sín en áskriftar-
gjald er innifalið í árgjaldi. Það er
einnig selt víða, m.a. í Eymundsson.
Allir sem láta sig málefni dýra
varða geta sent greinar til birtingar,
sögur, hugleiðingar og annað efni.
Aðstandendur láta sig varða málefni
allra dýra, villtra, búfjár og gælu-
dýra, en aðaláhersla er á góða með-
ferð og umgengni við dýr.
Fyrsta tölublað Dýraverndarans
er aðgengilegt á timarit.is
Dýraverndarinn kemur út
eftir 30 ára hlé
Sauðfjárrækt
á Íslandi
Bókaútgáfan Uppheimar hefur
gefið út bókina „Sauðfjárækt á
Íslandi“ en hún er sannkallaður
fróðleiksbrunnur um búgreinina.
Bókin er alhliða fræðslurit um
sauðfjárrækt og er bæði ætluð
starfandi bændum og öllu áhuga-
fólki um sauðkindina.
Í henni er m.a. fjallað um sögu
og uppruna, fóðurþarfir og fóðrun
sauðfjár, afurðir, mörk, merkingar og
fjallskil, úthagabeit og sauðfjárbeit
í skóglendi. Ítarlega er sagt frá
kynbótastarfi og rætt um frjósemi,
sæðingar og erfðafræði sauðfjár. Þá
er kafli um sjúkdóma, húsakost og
tækni, lífræna ræktun, hirðingu og
framleiðsluhætti. Að auki er stuttur
kafli um tamningu fjárhunda o.fl.
Ritið er prýtt fjölda ljós- og
skýringarmynda. Það er Ragnhildur
Sigurðardóttir, sauðfjárbóndi,
umhverfisfræðingur og kennari hjá
Landbúnaðarháskóla Íslands, sem
ritstýrði bókinni fjöldi höfunda
lagði til efni. Þeir voru Árni
Brynjar Bragason, Bjarni Diðrik
Sigurðsson, Emma Eyþórsdóttir,
Eyjólfur Kristinn Örnólfsson,
Guðmundur Hallgrímsson,
Jóhannes Sveinbjörnsson, Jón
Viðar Jónmundsson, Ólafur
R. Dýrmundsson, Sigurður
Þór Guðmundsson og Svanur
Guðmundsson. Bókin er gefin út í
samstarfi við Landbúnaðarháskóla
Íslands og er 300 blaðsíður að lengd.
Hún var gefin út með stuðningi
frá Leonardo, starfsmenntahluta
menntaáætlunar Evrópusambandsins
auk þess sem styrkur úr Minningar-
sjóði Halldórs Pálssonar fékkst til
þess að gera bókina sem veglegasta.
Fáið bókina senda heim á hlað
Bókina er hægt að nálgast með því
að panta hana á netinu á vefsíðunni
www.uppheimar.is. Einnig er hægt
að panta bókina símleiðis í síma
511-2450.
5
Fyrsta minning Dagbjartar Dísar
er þegar hún hætti að nota snuð,
gaf Stekkjarstaur allar duddurnar
sem hún átti og fékk dót frá honum
í staðinn.
Dýraverndarinn
Dýravernd í fortíð og framtíð
Ill meðferð á íslenska hestinum
Geta öll dýrin í skóginum verið vinir?
Tímarit dýravina á Íslandi. 70. árgangur, 1. tbl 2013. Verð 1.299 kr.
Amma mús – handavinnuhús
Áteiknaðir
dúkar