Bændablaðið - 11.04.2013, Síða 1
7. tölublað 2013 Fimmtudagur 11. apríl Blað nr. 392 19. árg. Upplag 28.000
Áætlað er að hægt verði að grisja
allt að 290 þúsund rúmmetra
af trjáviði á næstu 5-10 árum.
Lauslega áætlað er verðmæti
grisjunarviðarins um 3,8 millj-
arðar króna sem leggst við aðra
atvinnuskapandi og gjaldeyris-
sparandi verðmætaframleiðslu
á Íslandi. Gleðilegu tíðindin eru
þau að eftirspurn eftir trjáviði er
margfalt meiri en framboðið.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í verkefninu Íslensk skógrækt,
Ísú sem Rannsóknarstöð skógræktar
á Mógilsá hefur með höndum, en
þetta verkefni hefur staðið fyrir
úttektum á ræktuðum skógum hér
á landi með það að meginmarkmiði
að reikna út kolefnisbúskap þeirra.
Það er mikilvægur hluti í bókhaldi
gróðurhúsaloftegunda á Íslandi
sem yfirvöld hafa skuldbundið sig
til að gera með undirritun Kyoto-
bókunarinnar.
Þau gögn sem safnast við þessa
úttekt er hægt að nýta til að gefa
upplýsingar um margt annað í fari
ræktaðra skóga á Íslandi en kolefnis-
búskap. Þetta eru upplýsingar sem
lýsa stærð og ástandi skóga í þátíð og
nútíð og eru líka forsenda fyrir spá
fyrir um framtíð skóganna. Þannig er
m.a. hægt, með nokkurri nákvæmni,
að áætla flatarmál og til gamans
fjölda trjáa í ræktuðum skógum.
Yfir 6 milljónir plantna
gróðursettar 2007 en aðeins 3,5
milljónir á síðasta ári
Skipulög skógrækt hófst hér á
landi árið 1899 en fyrstu áratugina
var ræktun nýrra skóga með
gróðursetningu trjáplantna afar
takmörkuð. Þegar mest var, árið
2007, voru gróðursettar yfir 6
milljónir plantna. Afköst hafa
hins vegar dregist verulega saman
undanfarin ár vegna niðurskurðar
á fjárlögum og stefnir nú allt í að
árleg gróðursetning á þessu ári verði
einungis um 3,5 milljónir plantna.
56 milljónir gróðursettra trjáa á
Íslandi síðastliðin 114 ár
Í skógunum sem ræktaðir hafa
verið síðastliðin 114 ár standa nú
um 56 milljónir gróðursettra trjáa á
37.900 ha lands. Að auki er að finna
í þessum skógum um 12 milljónir
af sjálfsáðum trjáplöntum, aðallega
íslenskt birki. Þannig tekur náttúran
sjálf virkan þátt í skóggræðslunni.
/MÞÞ
– Sjá nánar á bls. 14 og 28
Hægt að grisja um 290 þúsund rúmmetra af trjáviði á næstu árum:
Verðmæti grisjunarviðar gæti
numið um 3,8 milljörðum
18
Frá grisjun í Vaglaskógi. Mynd / MÞÞ
Ný norsk rannsókn:
Repja í svínafóðri talin
gefa hollari afurðir
Í nýrri rannsókn sem gerð var
á repju í svínafóðri – og fjallað
er um í norska tímaritinu Svin –
kemur í ljós að grísir hafi ákjósan-
lega hæfileika til að framleiða hollt
kjöt og holla fitu. Prófanir á nýju
repjuríku svínafóðri, sem gerðar
voru í Øyer í Noregi, benda til að
framleiða megi svínakjöt sem sé
ríkara af æskilegum fjölómettuðum
fitusýrum.
Á blaðsíðu 38 þýðir og stað-
færir Hörður Harðarson, formaður
Svínaræktarfélags Íslands, þessa
grein. Þar kemur m.a. fram að
löngum hafi það verið talið æskilegt
að auka magn fjölómettaðra fitusýra
í svínakjötsafurðum. Það sé þó einnig
æskilegt að auka hlutfall omega-3 fitu-
sýra, þar sem omega-6 fitusýrur séu
orðnar yfirgnæfandi í mataræði hinna
velmegandi samfélaga. Í greininni
kemur enn fremur fram að jórturdýr
og önnur dýr sem alin eru á grænu
grasi gefi almennt af sér kjötafurðir
sem innihalda hollari fjölómettaðri
fitu en þau sem hafa verið alin á fóður-
blöndum sem innihalda korn og soja.
Því sé gjarnan haldið fram að omega-
3 fitusýrur sé aðallega að finna í
fiski, en húsdýr geta gefið af sér
kjötafurðir sem innihalda nægilegt
magn omega-3 fitusýra, bara ef þau
eru alin á réttum fóðurefnum.
Rannsóknin sýndi fram á að
grísir sem fengu repjublandað kjarn-
fóður höfðu hagstæðari fitusýru-
samsetningu en grísir sem fengu
staðlaða kjarnfóðurblöndu. Fitan af
repju grísunum var aukinheldur mýkri
og léttara að skera í. Sjá á bls. 38.
Mynd / smh
„Þetta lítur því miður ekki
nægilega vel út. Það bendir allt til
þess að þetta verði mikið kalár,“
segir Bjarni E. Guðleifsson á
Möðruvöllum, en hann hefur fylgst
með þróun mála undanfarnar
vikur og er ekki bjartsýnn.
Svell eru að sögn Bjarna víða enn
undir snjó, en í hlákukafla sem gerði
í mars tók hann verulega upp sums
staðar. Ekki er útlit fyrir að snjó taki
upp í bráð, veðurspá er ekki hagstæð
næstu daga, en Bjarni segir að varla
komi í ljós fyrr en að hálfum mánuði
liðnum eða jafnvel þremur vikum
hvernig staðan nákvæmlega er.
Sýni voru tekin á Möðruvöllum í
febrúar og kom í ljós að sumar gras-
tegundir voru þá þegar dauðar enda
hefur svell legið yfir túnum meira og
minna í allan vetur. Svellþol jurta er
mismunandi, en túngrös eru almennt
afar þolin og er þumalfingursreglan
sú að þau lifa allt að þriggja mánaða
svell.
„Staðan er ekki góð, fátt bendir
til annars en að víða verði mikið um
kal hér í Eyjafirði, einkum þó í utan-
verðum firðinum, bæði austan- og
vestanmegin. Þetta verður að öllum
líkindum slæmt kalár,“ segir Bjarni.
Ástandið er skárra í innanverðum
Eyjafirði og þá nefnir Bjarni að mik-
ill snjór sé enn yfir í Svarfaðardal og
þar séu öll kurl ekki enn komin til
grafar. /MÞÞ
Útlit fyrir slæmt kalár
Fátt bendir til annars en að slæmt
kalár sé fram undan á norðanverðu
landinu. Mynd / Vikudagur
Hádeigsfundur um matvælaframleiðslu, tollvernd og fæðuöryggi:
Hver á að framleiða
matinn okkar?
Bændasamtök Íslands boða til
hádegisfundar mánudaginn 15.
apríl um fæðuöryggi og mikilvægi
þess að þjóðir nýti náttúrulegar
aðstæður til framleiðslu á mat.
Norski fyrirlesarinn Christian
Anton Smedshaug, sem hefur
komið hingað til lands áður og verið
sannspár um þróun mála, mun halda
erindi á Hótel Sögu. Á fundinum
verður meðal annars spurt hvaða
leiðir Íslendingar eigi að velja til að
tryggja fæðuöryggi og leggja sitt
af mörkum í matvælaframleiðslu
heimsins. Þá mun Christian Anton
ræða af hverju og hvernig tollum
er beitt sem stjórntæki til að verja
innlenda matvælaframleiðslu.
Fundurinn er öllum opinn og
hádegis hressing verður í boði bænda.
Nánar er fjallað um efni fundarins
á bls. 4.
Með áratuga
reynslu í
viðgerðum
á vélum
fyrir bændur
24
Nauðsynlegt að konur í landbúnaði
hafi fyrirmyndir til að horfa til
66
Bærinn
okkar
Hvannabrekka