Bændablaðið - 11.04.2013, Blaðsíða 52

Bændablaðið - 11.04.2013, Blaðsíða 52
52 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. apríl 2013 Í síðasta blaði voru starfs- menn Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins sem starfa á Búfjárræktarsviði kynntir en nú er komið að starfsmönnum á sviði nytjaplantna sem og stjórn- endum og skrifstofufólki. Eins og áður hefur komið fram starfa hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins ráðunautar sem áður voru starfs- menn Bændasamtaka Íslands og búnaðarsambandanna um allt land. Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu RML, www.rml.is. Svið nytjaplantna RML Fagsviði nytjaplantna tilheyra faghópar í jarðrækt, garðyrkju og fóðurráðgjöf en einnig tilheyrir sviðinu ráðgjöf í landnýtingu. Ábyrgðarmaður leiðir starf hvers faghóps og situr hann jafnframt sem fulltrúi RML í fagráði viðkomandi greinar. Viðfangsefni fagsviðsins er einkum ræktun og nýting á landsins gæðum og aðferðir við að nýta upp- skeru til fóðrunar. Nafn: Borgar Páll Bragason. Starfsheiti: Fagstjóri nytjaplantna. Starfsstöð: Hvanneyri. Uppruni og búseta: Fæddur í Vopnafirði og uppalinn á Bustarfelli í þeirri sveit. Búsettur á Hvanneyri í Borgarfirði. Kvæntur Oddnýju Kristínu Guðmundsdóttir frá Hvanneyri og á með henni 2 börn. Menntun og fyrri störf: Stúdent frá Framhaldsskólanum á Laugum. Búfræðingur og búfræðikandidat frá Hvanneyri. Fyrri störf eru fjölbreytt, allt frá byggingavinnu og sjómennsku til sumarstarfa hjá Landgræðslunni og landbúnaðarstarfa á æskuslóðum sem enn eru starfrækt. Kom til RML frá Bændasamtökunum þar sem ég hef starfað síðan námi lauk árið 2005. Þar var ég verkefnastjóri og hafði meðal annars umsjón með verkefnum á sviði jarðræktar, landupplýsinga og jarðabótastyrkja. Faghópur í jarðrækt Jarðræktarráðunautar RML (faghópur í jarðrækt) sinna ráðgjöf sem snýr að jarðrækt og fóðuröflun. Meðal verkefna má nefna: Skurðamælingar og skipulag endurræktunar. Jarðvinnsla, val á tækjum og jarðvinnslutækni. Áburðarráðgjöf og áburðaráætlanir. Val á tegundum og yrkjum til ræktunar í kornrækt, túnrækt, grænfóðurrækt eða orkujurtaræktun. Aðstoð við skýrsluhald og skráningu í jörð.is G r e i n i n g a r á fóðuröflunarkostnaði. Að auki sinna ráðunautar RML hvers kyns ráðgjöf og upplýsingagjöf er varðar jarðrækt og fóðuröflun. Megináhersla ráðgjafar í jarðrækt er aukin hagkvæmni fóðurframleiðslunnar Nafn: Ingvar Björnsson. Starfsheiti: Ábyrgðarmaður jarð- ræktar. Starfsstöð: Akureyri. Uppruni og búseta: Fæddur og uppalinn á Hólabaki í Húnaþingi. Búsettur á Akureyri ásamt eigin- konunni Elínu Aradóttur og þremur börnum. Menntun og fyrri störf: Stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1993, búfræðingur frá Bændaskólanum á Hvanneyri 1996 og Búfræðikandídat frá Hvanneyri 1999. MSc gráða í plöntukynbótum frá University of Guelph í Kanada 2003. Hefur starfað hjá Búgarði ráðgjafar- þjónustu sem héraðsráðunautur í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum frá 2003 með árherslu á jarðrækt og búrekstur. Starfaði í hlutastarfi hjá RALA síðar LBHÍ sem sérfræðingur/ Lektor á árunum 2003-2006 við kennslu og rannsóknir. Ýmis fyrri störf s.s. kennsla og rannsóknir við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri 1999-2000 og störf fyrir Landgræðslu ríkisins og Skógrækt ríkisins með námi. Nafn: Kristján Bjarndal Jónsson. Starfsheiti: Ráðunautur í jarðrækt. Starfsstöð: Selfoss. Uppruni og búseta: Fæddur í Neðra-Dal, Biskupstungum. Faðir hans var þaðan, en Aðalheiður móðir hans er frá Böðmóðsstöðum í Laugardal. Búsettur á Selfossi frá 1973. Kvæntur Sigrúnu Jensey Sigurðardóttir. Menntun og fyrri störf: Búfræðingur frá Hvanneyri 1968. Var við nám í Danmörku 1968 til 1969. Búfræðikandídat frá Hvanneyri 1973. Ráðunautur, einkum í jarð- rækt frá 1973 til ársloka 2012 hjá Búnaðarsambandi Suðurlands. Nafn: Sigurður Jarlsson. Starfsheiti: Ráðunautur í jarðrækt. Starfsstöð: Ísafjörður. Uppruni og búseta: Fæddur í Reykjavík 18. ágúst 1950. Búsettur á Ísafirði frá árinu 1975. Menntun og fyrri störf: Búfræðingur frá Bændaskólanum á Hvanneyri 1970 og Búfræðikandidat þaðan 1975. Ráðunautur frá útskrift hjá Búnaðarsambandi Vestfjarða og til ársloka 2002. Ráðunautur hjá Búnaðarsamtökum Vesturlands frá 2003 til ársloka 2012. Faghópur í fóðrun RML býður upp á ráðgjöf varðandi framleiðslu og val á hentugu fóðri fyrir jórturdýr og hross. Boðið er upp á fóðuráætlanir fyrir nautgripi, sauðfé og hross. Fóðuráætlanir fyrir mjólk- urkýr eru unnar í Opti-for Island sem byggir á norræna fóðurmats- kerfinu NorFor. Ráðunautar RML eru reiðubúnir að koma á fundi með hverskonar fræðsluerindi um fóður og fóðrun búfjár. Nafn: Eiríkur Loftsson. Starfsheiti: Ábyrgðarmaður í fóðrun. Starfsstöð: Sauðárkrókur. Uppruni og búseta: Er frá Steinsholti í Gnúpverjahreppi Árnessýslu og uppalinn þar. Búsettur í Beingarði í Hegranesi, Skagafirði. Kvæntur Stefaníu Birnu Jónsdóttur og á með henni þrjú börn á aldrinum 15 til 23ja ára. Menntun og fyrri störf: Hóf skóla- göngu í Ásaskóla og síðan Flúðaskóla. Stúdent frá Menntaskólanum að Laugarvatni 1982 og búfræðikand- ídat frá Hvanneyri 1987. Starfaði hjá Bútæknideild RALA á skólaárum á Hvanneyri og til vors 1989. Vann hjá Búnaðarsambandi Suðurlands í hlutastarfi veturinn 1988-1989. Ráðunautur í Skagafirði frá 1989 lengst af í nautgriparækt og jarðrækt. Nafn: Hrafnhildur Baldursdóttir. Starfsheiti: Ráðunautur í fóðrun. Starfsstöð: Selfoss. Uppruni og búseta: Frá Litla-Ármóti í Flóahreppi en þar er stundaður kúabúskapur. Menntun og fyrri störf: Lauk BS-90 námi í búvísindum frá Hvanneyri vorið 2007. Flutti til Noregs haustið 2007 til að stunda mastersnám í fóður- fræði og lauk því 2010. Vann á kúabúi samhliða náminu í Noregi sem fóður- ráðgjafi ásamt almennum bústörfum. Fyrir sameiningu starfsmaður hjá Búnaðarsambandi Suðurlands í fóður- leiðbeiningum, aðallega þó fóðuráætl- anir í fóðurmatskerfinu NorFor. Nafn: Jóna Þórunn Ragnarsdóttir. Starfsheiti: Ráðunautur í fóðrun. Starfsstöð: Selfoss. Uppruni og búseta: Fædd, uppal- in og búsett á Selfossi með viðkomu í Noregi. Ættuð af Ströndum og Austur-Skaftafellssýslu í föðurætt en frá Noregi og Þýskalandi í móðurætt. Menntun og fyrri störf: Stúdent frá Fjölbrautaskóla Suðurlands 2005. Búfræðingur 2008, B.Sc. í búvísindum og frjótæknir 2011 frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Ráðunautur í fóðrun og fóðurverkun hjá Búnaðarsambandi Suðurlands og RML frá 2012 auk ýmissa starfa í landbúnaði. Garðyrkja Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins sinnir almennri ráðgjöf í ylrækt grænmetis og blóma, ræktun úti- matjurta og garð- og skógarplantna. Auk þess ráðgjöf um áburðargjöf, varnir gegn sjúkdómum, meindýrum og illgresi. Nafn: Ægir Þór Þórsson. Starfsheiti: Ábyrgðarmaður í garð- yrkju. Starfsstöð: Reykjavík. Uppruni: Fæddur og uppalinn í Reykjavík. Menntun og fyrri störf: Líffræðingur frá Háskóla Íslands, lauk þaðan doktorsprófi (Ph.D) 2008. Vann í Háskóla Íslands þar til ég hóf störf hjá Bændasamtökum Íslands 2010 sem landsráðunautur í garðyrkju. Nafn: Magnús Ágúst Ágústsson. Starfsheiti: Ráðunautur í garðyrkju. Starfsstöð : Reykholt í Bláskógabyggð. Uppruni og búseta: Fæddur 1950 á Löngumýri á Skeiðum og uppal- inn þar en á auk Árnessýslu ættir að rekja til Austur- og Suðausturlands. Bjó í Hveragerði í rúm 30 ár en býr nú ásamt eiginkonu, Rannveigu Árnadóttur og syni í Reykholti í Bláskógabyggð. Menntun og fyrri störf: Stúdent frá ML 1970. BSc (120 ) í líffræði frá HÍ vorið 1975, og nam við háskólann í Reading í Bretlandi 1975. Var aðstoðarmaður við tilraunastöð Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins frá júní 1973, stundakennari við búvísindadeildina á Hvanneyri veturinn 1973-74 og ráðinn tilraunastjóri hjá RALA við tilraunastöð Garðyrkjuskóla ríkisins 1975 og gegndi því starfi til ársloka 1985. Stundakennari við Garðyrkjuskóla ríkisins 1986-1990. Garðyrkjubóndi í Lindarbrekku í Hveragerði frá 1985-1993. Landsráðunautur í ylrækt hjá Búnaðarfélagi Íslands síðar Bændasamtökum Íslands frá 1990-2003 og sem landsráðunautur í garðyrkju frá 2003. Sinnti auk þess stundakennslu við Garðyrkjuskóla ríkisins á árunum 1996-2003 og var fagdeildarstjóri ylræktarbrautar 2001- 2003. Er í hlutastarfi hjá RML frá ársbyrjun 2013. Stjórnendur og skrifstofufólk Nafn: Karvel Lindberg Karvelsson. Starfsheiti: Framkvæmdastjóri og ráðunautur í svínum og alifuglum. Starfsstöð: Hvanneyri. Uppruni og búseta: Fæddur á Akranesi 1971, ólst þar upp en var með annan fótinn í Borgarfirði frá unga aldri. Bjó í Hálsasveit í Borgafirði frá því skömmu fyrir síðustu aldamót en hefur búið á Akranesi síðustu 2 árin. Giftur Lindu Björk Pálsdóttur og eiga þau tvö börn. Menntun og fyrri störf: Stúdent frá Fjölbrautaskóla Vesturlands Akranesi 1992, búfræðingur frá Hvanneyri 1995 og BS í búvísindum frá Hvanneyri 1999. Tók hluta af námi við KVL í Danmörku sérmenntun í svínarækt á masterstigi. Er að klára meistaranám í verkefnastjórnun (MPM) frá Háskólanum í Reykjavík. Byrjaði sem bústjóri á Hýrumel í Hálsasveit 1999, varð síðar bóndi og framkvæmdastjóri Grísagarðs og starfaði við það til ársins 2010. Hóf störf sem landsráðunautur í svína og alifuglarækt 2011. Var ráðinn framkvæmdastjóri RML við síðustu áramót en er jafnframt ráðunautur alifugla og svína hjá RML. Nafn: Vignir Sigurðsson. Starfsheiti: Fjármálastjóri. Starfsstöð: Akureyri. Starfsmenn RLM á sviði nytjaplantna ásamt og stjórnendum og skrifstofufólki Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.