Bændablaðið - 11.04.2013, Blaðsíða 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. apríl 20132
Fréttir
Alifugla- og svínarækt skapa um
1.500 störf sem dreifast víða um
landið. Þessar tvær greinar standa
undir um helmingi framleiðslu
þess kjöts sem neytt er í landinu
og eru mikilvægur hlekkur, bæði í
íslenskum landbúnaði og atvinnu-
efnahagslífi þjóðarinnar.
Þetta kemur fram í auglýsingu
sem Félag kjúklingabænda og
Svínaræktarfélag Íslands sendu frá
sér á dögunum en auglýsingin var
birt undir yfirskriftinni „Í sannleika
sagt um kjúklinga- og svínakjöt.“
Tilefni auglýsingarinnar er umræða
síðustu vikna um búgreinarnar tvær
en sú umræða hefur ekki síst verið
leidd af talsmönnum Samtaka versl-
unar og þjónustu (SVÞ). Alifugla- og
svínabændur telja umræðuna vill-
andi, fullyrðingar misvísandi og oft
rangar.
Á aðalfundi SVÞ 21. mars
síðastliðinn sagði formaðurinn,
Margrét Kristmannsdóttir, að alifugla-
og svínarækt væri iðnaðarframleiðsla
sem ætti lítið skylt við landbúnað.
„Við viljum að hætt verði að slá
skjaldborg utan um laumufarþega
innan bændastéttarinnar s.s alifugla-
og svínaræktendur,“ sagði Margrét
í ræðu sinni. Þá hvöttu kaupmenn
til þess að tollar á innflutt matvæli
yrðu afnumdir í því skyni að lækka
verðlag. Var það gert með því að
bjóða vörur til sölu í Melabúðinni í
eina klukkustund á þeim verðum sem
kaupmenn töldu að væru raunhæf,
væru tollar, innflutningsgjöld og
innflutningshöft afnumin. Margrét
sagði við það tækifæri að það væri
í góðu lagið þó að drægi úr kaupum
á íslenskum landbúnaðarafurðum.
Tekjumissir ríkissjóðs, væru tollar og
vörugjöld afnumin, myndi jafnast út
með því að neysla á öðrum varningi
sem bæri hærri virðisaukaskatt
myndi aukast. Nefndi hún fatnað
sérstaklega í þessum efnum. Margrét
lagði þó ekki fram útreikninga máli
sínu til stuðnings.
„Það borgar sig að versla á
Íslandi“
Forsvarsmenn alifuglabænda og
svínabænda hafa bent á að fyrir
síðustu jól hleyptu SVÞ af stokk-
unum átaki undir yfirskriftinni „Það
borgar sig að versla á Íslandi“. Því
skjóti skökku við að samtökin höggvi
nú í íslenska alifugla- og svínarækt
sem skapi atvinnu, spari gjaldeyri
og séu mikilvægur þáttur í þjónustu
við íslenska neytendur og verslunina.
Neytendur og atvinnulífið séu hluti
af sömu keðjunni, eins og kom fram
í átaki SVÞ, og þar séu íslenskir
bændur og matvælaframleiðendur
ekki undanskildir.
Félag kjúklingabænda sendi frá
sér yfirlýsingu 1. apríl sl. þar sem
málflutningur Margrétar og SVÞ
var gagnrýndur. Í yfirlýsingunni
kom meðal annars fram að gæði
íslensks alifugla- og svínakjöts
og kröfur um framleiðsluaðferðir
í greinunum séu með þeim mestu
sem gerast í heiminum. Fjöldi fólks
hafi þá atvinnu sína af alifuglarækt
og afleiddum störfum. Málflutningur
SVÞ sé villandi en ekki sé verið að
bera saman sambærilegar vörur
þegar talað sé um að lækka megi verð
á svínakjöti og kjúklingum með því
að gefa innflutning frjálsan.
Ummæli framkvæmdastjórans
byggja á fordómum
Við þessari yfirlýsingu brást Andrés
Magnússon framkvæmdastjóri SVÞ í
samtali við Morgunblaðið og endurtók
að þar á bæ teldu menn kjúklinga-
rækt iðnaðarframleiðslu. „Þetta er að
mestu leyti innflutt fóður. Við segjum
að þetta sé að mestu leyti innflutt
vinnuafl sem vinnur við þessar
greinar. Það er ekki með nokkru móti
hægt að leggja þessa starfsemi að
jöfnu við þennan hefðbundna gamla
íslenska landbúnað.“
Aðalsteinn Baldursson, formaður
Verkalýðsfélagsins Framsýnar,
gagnrýndi orð Andrésar um innflutt
vinnuafl harðlega og taldi að hann
ætti að biðjast afsökunar á þeim.
Ummælin byggðu á alvarlegum
fordómum í garð erlends starfsfólks
hér á landi. Athyglisvert væri að
ummælin kæmu úr þessari átt þar
sem verslun og þjónusta hefðu í
talsverðum mæli þurft að treysta
á innflutt vinnuafl, ekki síður en
umræddar búgreinar.
Út í bláinn að tala um einungis
nokkra tugi starfa
Áfram hélt hnútukastið í fjöl-
miðlum er Andrés svaraði og sagði
Aðalstein taka orð sín úr samhengi.
Í það sinn hélt Andrés því einnig
fram að aðeins væri um nokkra tugi
starfa að ræða í greinunum. Það hafa
alifugla- og svínaræktendur nú bent
á að sé fjarri sannleikanum.
Sveinn Jónsson framkvæmda-
stjóri Matfugls, eins af þremur
sláturleyfishöfum í alifuglaslátrun
á landinu, sagði t.a.m. í samtali við
Bændablaðið að aðeins hjá hans
fyrirtæki störfuðu um 150 manns
við slátrun, úrvinnslu, sölu og
dreifingu. Þá væri eftir að telja þá
bændur sem ræktuðu kjúklinginn
sem slátrað væri hjá fyrirtækinu.
Því væri út í bláinn að tala um að
einungis nokkrir tugir starfa væru í
greinunum.
Margir framleiðendur
Sveinn benti jafnframt á að það
væri ekki rétt sem SVÞ hafi haldið
fram, að aðeins tveir framleiðendur
stæðu fyrir 95 prósent af
alifuglaframleiðslu á landinu. Þrír
sláturleyfishafar væru starfandi í
greininni, Matfugl, Reykjagarður
og Ísfugl. Bak við þá væru bændur
víða um land sem ýmist framleiddu
fyrir fyrirtækin eða legðu inn hjá
þeim sína fugla.
„Þetta er eins og að segja að
Norðlenska, SS og Kaupfélag
Skagfirðinga væru þrír framleið-
endur á lambakjöti í landinu. Það
dettur hins vegar engum í hug að
halda slíku fram,“ sagði Sveinn
og bætti því við að málflutningur
SVÞ hefði komið illa við starfsfólk
Matfugls, því þætti að sér vegið.
Svínakjöt og fuglakjöt halda
neysluverðsvísitölu niðri
Hörður Harðarsson, svína-
bóndi í Laxárdal og formaður
Svínaræktarfélags Íslands, tekur í
sama streng og Sveinn. Á landinu séu
ellefu starfandi svínaræktendur sem
reki bú á hátt í tuttugu stöðum. Þar
sé verið að veita fjölda fólks atvinnu,
sem og í slátrun og úrvinnslu en þrír
sláturleyfishafar á fjórum stöðum
slátra svínum. Hörður bendir jafn-
framt á að stór hluti svínafóðurs sé
innlent korn. Til að mynda sé allt upp
í 80 prósent fóðurs á hans búi íslenskt
bygg og íslenskt hveiti.
Þá bendir Hörður á að frá því
í janúar 2008 hafi vísitala neyslu-
verðs hækkað um 45 prósent. Á
sama tímabili hafi svínakjöt hækkað
um 15 prósent og fuglakjöt um 33
prósent. Hins vegar hafi föt hækkað
um 75 prósent og raftæki um tæp 72
prósent. „Ekki eru tollar að þvælast
fyrir þar,“ sagði Hörður. /fr
Sjúkdómastaða íslenskra búfjár-
stofna er í mörgu tilliti einstök
og er auðlegð sem ber að verja
með öllum tiltækum ráðum. Þá
er meiri áhætta á að sýkjast af
innfluttum matvælum en inn-
lendum matvælum. Þetta kom
fram á fjölmennum hádegisfundi
Bændasamtaka Íslands 3. apríl sl.
um þá áhættu sem felst í því að
flytja inn hrátt kjöt til landsins.
Á fundinum höfðu fram-
sögu þeir Vilhjálmur Svansson
dýralæknir á Keldum og Karl G.
Kristinsson, prófessor og yfirlæknir
á sýklafræðideild Landspítalans.
Vilhjálmur spurði hvort smitsjúk-
dómastöðu íslensks búfjár væri
ógnað af innflutningi á hráu kjöti
en Karl fjallaði um innflutt matvæli
og sýkingarhættu.
Vilhjálmur sagði sjúkdómastöðu
íslenskra búfjárstofna í mörgu tilliti
einstaka og auðlegð sem bæri að
verja með öllum tiltækum ráðum.
Hann benti á að einn þáttur í því
að verja þá stöðu væri að sem
minnst væri flutt inn af hráum
ómeðhöndluðum dýraafurðum sem
mögulega gætu borið með sér smit.
Karl G. Kristinsson, yfirlæknir
á sýklafræðideild Landspítalans,
sagði sýkingaráhættu bæði tengda
innlendum og innfluttum afurðum
en innflutt matvæli valda nú þegar
hópsýkingum á Íslandi. Hann sagði
líkurnar aukast við aukinn inn-
flutning á fersku kjöti og tiltók sér-
staklega ýmsar sýklalyfjaónæmar
bakteríur sem væru alvarleg ógn við
lýðheilsu í heiminum nú um stundir.
Megum ekki láta blekkjast af
gróðahyggju
Augljóst var af viðbrögðum fundar-
gesta að erindi þeirra Vilhjálms og
Karls sýndu fram á alvarleika máls-
ins. Níels S. Olgeirsson formaður
Matvís, félags iðnaðarmanna í mat-
væla- og veitingagreinum, sagði
m.a. í samtali við Bændablaðið
að hann teldi ekki stætt á því að
krefjast þess að flytja inn hrátt kjöt
til landsins í ljósi þeirra upplýsinga
sem fram komu á fundinum. „Ekki
bara værum við að setja búfjárstofn-
ana í hættu heldur einnig lýðheilsu
landsmanna. Við þurfum að fara
mjög varlega í þessum efnum og við
megum ekki láta þrönga sérhags-
munahópa sem hafa skammtíma
gróðahyggju að markmiði ráða för.“
Sigurður Sigurðarson, fyrr verandi
dýralæknir sauðfjár- og nautgripa-
sjúkdóma, sat einnig fundinn, en
Sigurður er einna fróðastur Íslendinga
um baráttu gegn riðuveiki og öðrum
sauðfjár sjúkdómum. „Það er ekki
smekklegt að reyna að gera lítið úr
hættunni sem stafar af innflutningi
á hráum kjöti með því að tala um
að það sé annað sem skapi hættu,
s.s. komur ferðamanna, eins og einn
fundarmanna gerði í umræðunum
eftir framsögur,“ sagði Sigurður
og vísaði þar til orða Andrésar
Magnússonar, framkvæmdastjóra
Samtaka verslunar og þjónustu.
Sigurður sagði fundinn hafa verið
afar gagnlegan og lagði áherslu á
að sitt mat væri að berjast yrði gegn
innflutningi á hráu kjöti með öllum
ráðum. /fr
Sjá nánar á bls. 12
Góða sjúkdómastöðu íslenskra búfjárstofna
ber að verja með öllum tiltækum ráðum
Talsmenn SVÞ segja alifugla- og svínabændur laumufarþega innan bændastéttar og vilja afnema tolla:
Villandi umræða um alifugla- og svínarækt
– forsvarmenn búgreinanna segja samtökin fara með rangt mál og finnst að starfsfólki sínu vegið
Í kosningastefnuskrá Sjálfstæðis-
flokksins fyrir komandi kosningar
til Alþingis kemur fram að flokk-
urinn vilji lækka tolla og vörugjöld
sem muni leiða til lægra vöruverðs
og aukinnar samkeppni. Innan
landbúnaðargeirans hafa menn
sett spurningamerki við þessa
stefnu, ekki síst í ljósi málflutnings
Samtaka verslunar og þjónustu
upp á síðkastið en samtökin vilja
að tollar á innflutt matvæli verði
felldir niður. Slíkt gæti haft í för
með sér alvarlegar afleiðingar
fyrir íslenska búvöruframleiðslu.
Einar Kristinn Guðfinnsson,
oddviti Sjálfstæðisflokksins í
Norðvesturkjördæmi, segir að ekki sé
stefnt að því að lækka tolla á innfluttar
búvörur sem séu í samkeppni við inn-
lenda framleiðslu. „Ég fullyrði að við
munum ekki standa að tollalækkunum
sem veikja samkeppnisstöðu íslensks
landbúnaðar. Við höfum alltaf fylgt
þeirri stefnu að standa vörð um
íslenskan landbúnað.“
Einar segir hins vegar að mark-
miðið sé að lækka tolla og aðflutn-
ingsgjöld á vörum sem keypt eru í
miklu mæli erlendis, til að stuðla að
því að sú verslun flytjist til landsins.
„Augljóst dæmi um þetta væru til
dæmis föt. Það er ljóst að ríkið hefur
ekki tekjur af slíkri verslun en fengi
hins vegar tekjur ef hún flyttist til
landsins, byggi hér til veltu og ný
störf.“
Það vekur hins vegar athygli
að Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, setti eftirfarandi
færslu inn á Facebook-síðu sína 30.
mars síðastliðinn: „Flott framtak hjá
Melabúðinni. Það þarf að taka vöru-
gjöld, tolla og skatta til endurskoð-
unar og lækka.“ Með færslunni birti
Bjarni frétt um að Melabúðinn hygðist
bjóða matvörur á stórlækkuðu verði
sem kaupmenn töldu að mætti ná
með því að fella niður tolla og vöru-
gjöld. Ekki náðist í Bjarna við vinnslu
fréttarinnar. /fr
Frambjóðendur
í ræðuþjálfun
Frambjóðendur í Norðvestur-
kjördæmi verða vel undirbúnir
undir setu á næsta þingi svo
framarlega að þeir njóti trausts
kjósenda tilað komaast þar inn
fyrir dyr. Alþjóðlegu samtökunum
POWERtalk hafa nefnilega sent
þeim boð á ræðunámskeið sem
haldið verður á Patreksfirði um
næstu helgi.
,,Okkur langar með þessu móti
að leggja okkur að mörkum til
frambjóðenda og vinna saman að
betri vinnubrögðum á Alþingi,“
segir Þórunn Pálmadóttir,
landsforseti POWERtalk á Íslandi.
Frá hádegisfundi Bændasamtaka Íslands þann 3. apríl síðastliðinn um þá
Mynd / HKr.
Ný Valtra N103
Fyrir áramót
kynnti Valtra
glænýja gerð af
hinni vinsælu
N línu sem
fengið hefur
tegundarheitið
N103 og er 111
hestöfl að því er segir í fréttatil-
kynningu frá Jötunn Vélum.
Meðal spennandi nýjunga í
þessari vél má helst nefna glænýja
þriggja strokka Valtra-dísilvél með
fjórum ventlum á strokk og Common
rail-eldsneytiskerfi sem gerir mót-
orinn samtímis mjög öflugan og
sparneytin. Síðan má nefna glænýja
hönnun á húddi vélarinnar sem nú er
niðursveigt fram sem eykur útsýni
stjórnandans til muna, sem skiptir
miklu við vinnu með ámoksturs-
tækjum. Fyrstu vélarnar af þessari
gerð eru væntanlegar til landsins
í lok maí og verð þeirra er frá kr.
9.250.000 + vsk.
Sjálfstæðisflokkurinn:
Vill tollalækkun