Bændablaðið - 11.04.2013, Blaðsíða 8

Bændablaðið - 11.04.2013, Blaðsíða 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. apríl 20138 Fréttir Aðalfundur Félags eyfirskra kúabænda haldinn í Hlíðarbæ: Ef við berum gæfu til að mjaka hlutum til betri vegar er ástæða til bjartsýni – segir Trausti Þórisson, formaður félagsins „Það er í raun margt sem brennur á nautgriparæktinni. Sumt þokast í rétta átt en annað ekki. Oft finnst manni að góðir hlutir gerist of hægt en ef við berum gæfu til að mjaka hlutum til betri vegar er ástæða til bjartsýni – enda nauðsynlegt að hafa hana að leiðarljósi,“ sagði Trausti Þórisson bóndi á Hofsá, formaður Félags eyfirskra kúabænda, á aðalfundi félagsins sem haldinn var í Hlíðarbæ. Náttúruöflin minna reglulega á sig Trausti kom víða við í skýrslu sinni, en í upphafi ræddi hann náttúruöflin og hvernig þau með reglulegu millibili minna rækilega á sig með tilheyrandi skakkaföllum í búskapnum. „Vel og snemma voraði árið 2012 og litu tún vel út og sáning var með fyrra fallinu. Miklir og langvinnir þurrkar herjuðu síðan á tún og akra víða hér norðanlands og var uppskera með minna móti þar sem jarðvegur er þunnur. Þar að auki setti hausthret strik í reikninginn þar sem bændur misstu bæði fé og stórgripi. Fyrir vikið var búfé víða komið fyrr á fulla gjöf og bætti það ekki ástandið,“ sagði Trausti. Til að bæta gráu ofan á svart eru miklar líkur á kali Hann nefndi að Bjargráðasjóður hefði að vissu marki bætt mönnum tjónið en eftir sæti að margir væru tæpir með hey og hefðu þurft að kaupa hey, mikið til af Vestur- og Suðurlandi. Ekki væri á þessari stundu vitað að hve miklu leyti bætur fengjust úr Bjargráðasjóði, sem ekki væri burðugur um þessar mundir. Því betur hefði aukafjárveiting úr ríkissjóði uppá 140 milljónir komið svo hægt væri að bæta bændum norðanlands tjón sem skapaðist af hausthretinu. „Til að bæta gráu ofan á svart eru líkur á kali miklar þar sem svell hafa víða legið. Snjóalög út með firði eru mikil og gæti rotkal orðið þar sem harðfenni liggur á þíðri jörð. Allt á þetta eftir að koma í ljós og verðum við að vona að vel vori og komandi sumar verði gott. Við eigum það alveg inni hjá máttarvöldunum,“ sagði Trausti. Ferðamenn eiga stóran þátt í söluaukningu Trausti fór yfir mjólkurframleiðslu liðins ár sem var með ágætum miðað við árin á undan og nam heildar- innvigtun 125 milljónum lítra. Innvigtun hjá MS Akureyri síðustu 12 mánuði var rúmir 38 milljónir lítra, sem er aukning upp á 0,88 % frá árinu á undan. Sala jókst í öllum flokkum nema drykkjarmjólk og sagði Trausti að vel horfði með sölu á þessu ári, sérstaklega væri áberandi hve mikið sala hefði aukist á fitugrunni og líkur væru á að jöfnuður myndi nást á árinu milli sölu á fitu og próteini. „Aukinn straumur ferðamanna til landsins á stóran hlut að máli í söluaukningunni og eru uppi hugmyndir um að kynna íslenskar mjólkurvörur sérstaklega fyrir erlendum ferðamönnum sem hingað koma,“ sagði Trausti. Minni ásetningur nautkálfa getur skapað skort eftir tvö ár Framleiðsla og sala á nautakjöti jókst töluvert á síðastliðinu ári, verð til framleiðenda hækkaði ögn, en Trausti sagði ástæðu til að hafa áhyggjur af því að dregið hefði úr ásetningi nautkálfa, sem myndi að öllu óbreyttu leiða af sér skort á kjöti innan tveggja ára. Við því þyrfti endilega að bregðast en menn hefðu gert sér vonir um að nefnd skipuð af ráðherra árið 2011 til að skila tillögum um innflutning á nýju erfðaefni til að efla holdanautastofninn myndi skila árangri. Engar tillögur, bara vangaveltur „Þess er skemmst að minnast að það tók starfshópinn 16 mánuði að skila af sér og var þar engar tillögur að finna heldur einungis vangaveltur um stöðu holdanautakynjanna í landinu. Þó komst hópurinn að þeirri niðurstöðu að skyldleikaræktun væri ógn við áframhaldandi ræktun, enda erfða- efnið sem okkur stendur til boða komið nálægt tvítugu. Má með sanni segja að þessi vinna hafi verið til einskis og stendur nú fyrir dyrum að koma á fót nýjum starfshópi með aðkomu LK, BÍ, Landssambandi sláturleyfishafa og Matvælastofnunar,“ sagði Trausti. Hlutverk starfshópsins væri að rýna nýframkomna skýrslu um nautakjötsframleiðsluna, móta tillögur um hvernig standa skuli að innflutningi á erfðaefni til eflingar holdanauta- stofnsins í landinu, leggja drög að kynbótaskipulagi svo innflutningur erfðaefnisins komi að tilætluðum notum, koma með tillögur að breyttu og bættu kjötmati (EUROP-kerfis) og móta tillögur um hvernig stuðla mætti að aukinni fagmennsku við framleiðslu á nautakjöti. Hópnum er ætlað að hraða störfum sínum og skila af sér skýrslu eigi síðar en 1. júní næstkomandi. Getum staðið okkur betur „Það ætti að vera öllum ljóst að við getum staðið okkur betur í framleiðslu á nautakjöti. Víðast hvar er þessi framleiðsla afgangsstærð en reynsla og árangur þeirra sem best standa sig sýnir að bætt fóðrun frá fæðingu til slátrunar skilar sér margfalt til bóndans. Gæði gróffóðurs skipta verulega miklu máli og þótt kjarnfóður sé dýrt skilar það sér til baka. Það sem okkur vantar er ráðgjöf og öflugar rannsóknir sem taka mið af aðbúnaði, mismunandi kjarnfóðurgjöf (eða korngjöf) á vaxtarhraða og fóðrun á mismunandi orkuríku gróffóðri. Það breytir þó ekki því að við verðum hreinlega að fá nýtt erfðaefni,“ sagði Trausti. /MÞÞ Þekkingarsetrið á Blönduósi hefur ráðið Jóhönnu E. Pálmadóttur í 50% starf í þrjá mánuði vegna uppbyggingar á listamiðstöð fyrir textíllistamenn í Kvennaskólanum á Blönduósi. Listamiðstöðin verð- ur markaðssett og auglýst bæði innanlands og utan og mun undir- búningi verða lokið fyrir sumarið. Sagt er frá þessu á vef Þekkingarsetursins. Þar kemur fram að í nokkur ár hafi verið starfandi vísir að listamiðstöð á textílsviði á Blönduósi á vegum Textílseturs Íslands. Verkefnið hafi þó aldrei komist mikið lengra en á byrjunar- reit. Þekkingarsetrið hafi ákveðið að taka þátt í frekari uppbyggingu verkefnisins þess vegna að hlutverk Þekkingarsetursins samkvæmt sam- þykktum sé m.a. að hafa frumkvæði að rannsókna- og þjónustuverkefnum á sérsviðum setursins sem eru textíll, strandmenning og laxfiskar. Á vefnum segir að markmiðið með ráðningu Jóhönnu E. Pálmadóttur sé að gera textíllistina sýnilegri með uppbygginu lista miðstöðvar í textíl og efla samstarf viðkomandi stofnana á svæðinu. Listamiðstöð fyrir textíllistamenn í Kvennaskólanum: Ráðið í stöðu sérfræðings Sunnlenski sveitadagurinn haldinn í fimmta sinn Sunnlenski sveitadagurinn verður haldinn á Selfossi í fimmta sinn þann 4. maí næstkomandi. Hefur þessi hátíð fest sig í sessi sem einn stærsti viðburður á Suðurlandi. Jötunn Vélar og Vélaverkstæði Þóris standa saman að deginum, en hann verður nú haldin í fimmta sinn. Sunnlenski sveitadagurinn er óður til landbúnaðarins og er haldinn á athafnasvæði fyrirtækjanna tveggja við Austurveginn á Selfossi. Á Sunnlenska sveitadeginum, sem í ár ber upp á laugardaginn 4. maí, gefst sunnlenskum fyrirtækjum tækifæri til að kynna fyrir gestum eigin framleiðslu og þjónustu en rúmlega tíu þúsund manns hafa sótt sýninguna á undanförnum árum enda er eftir mörgu að slæðast. Á dögunum var Auður I. Ottesen, ritstjóri tímaritsins Sumarhúsið og garðurinn, ráðin sýningarstjóri sýningarinnar. Leita allra leiða til að viðhalda góðri ímynd íslenskrar nautgriparæktar Á aðalfundinum voru samþykktar nokkrar tillögur sem allar voru samþykktar samhljóða. Í þeirri fyrstu segir að aðalfundurinn leggist eindregið gegn öllum hugmyndum um að selja hluta Landsvirkjunar til lífeyrissjóða. Í greinargerð með þeirri tillögu segir að ljóst sé að lífeyrissjóðir muni gera meiri arðsemiskröfur en nú verandi eigandi „sem þýðir einfaldlega að raforkuverð mun hækka.“ Slíkt sé ekki viðunandi og telur fundurinn eðlilegt að renta af fallorkuauðlind þjóðarinnar renni milliliðalaust til kaupenda, þ.e. fólksins í landinu, í formi lægra raforkuverðs. Umræður, fræðsla og áróður besta forvörnin Þá beinir aðalfundurinn því til stjórnar LK að komið verði á fót hugmyndabanka um lokaverkefni frá Landbúnaðarháskóla Íslands sem styrkhæf séu frá Fagráði í nautgriparækt. Eins hvetur aðalfundurinn stjórn LK til að leita allra leiða til að viðhalda góðri ímynd íslenskrar nautgriparæktar í hugum neytenda. „Skammt er síðan tvö bú misstu mjólkursöluleyfi vegna ítrekaðra brota á Reglugerð um aðbúnað nautgripa. Augljóst er að öll umræða er varðar slæma umhirðu húsdýra á lögbýlum skaðar gott orðspor sem fer af íslenskum nautgripaafurðum. Umræður, fræðsla og áróður eru besta forvörnin og ættu Leiðbeiningar um góða framleiðsluhætti í nautgriparækt, sem eru nú í vinnslu, að geta nýst til góðra hluta,“ segir í greinargerð með þeirri tillögu. Loks var samþykkt tillaga þar sem aðalfundur Félags eyfirskra kúabænda krefst þess að stjórn LK þrýsti á að fá leiðréttingu á mjólkurverði til framleiðenda sem fyrst. Þá ítrekar fundurinn nauðsyn þess að skilaverð á nautakjöti hækki frá því sem nú er. Vill meiri samvinnu Í umræðum undir liðnum önnur mál lagði Þórður Þórðarson til að samin yrði tillaga um verðlagsmálin og vildi að meiri samvinna væri með félögum kúabænda á Norðurlandi. Sigurgeir Hreinsson ræddi um BSE og framtíðarhorfur þess. Trausti ræddi hugmyndir um að sameina alla sæð- ingarstarfsemi á landinu. Taldi hann nauðsynlegt að leita allra leiða til að hagræða á þeim svæðum þar sem starf- semin er dýrust áður en farið væri í allsherjarsameiningu – svo menn vissu frekar um hvað væri að ræða. Einnig minntist hann á tryggingamál gagnvart gripatjónum og vonaðist til að þau mál yrðu í höfn á þessu ári því bætur frá Bjargráðasjóði væru oft litlar. /MÞÞ – Meira á bls. 31 Jóhanna E. Pálmadóttir hefur verið ráðin til að byggja upp listamiðstöð fyrir textíllistamenn í Kvenna- skólanum á Blönduósi. Guðbrandur Björnsson Smáhömrum, formaður Félags sauðfjárbænda í Strandasýslu, færir Jóni Bjarnasyni, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, þakkarviðurkenningu fyrir vel unnin störf í þágu bænda. Félag sauðfjárbænda í Stranda- sýslu veitti á dögunum Jóni Bjarna- syni, fyrrverandi landbúnaðar- ráðherra, þakkarviðurkenningu fyrir vel unnin störf í þágu bænda. Guðbrandur Björnsson Smá- hömrum, formaður Félags sauðfjár- bænda í Strandasýslu, veitti Jóni viðurkenninguna á aðalfundi sauðfjárbænda í Bændahöllinni þann 5. apríl. Á viðurkenningarskjalinu stendur: „Jón Bjarnason alþingismaður. Aðalfundur Félags sauðfjárbænda í Strandasýslu, haldinn í Sævangi 10. mars 2013, færir þér bestu þakkir fyrir vel unnin störf í þágu bænda og auðsýnda staðfestu þína gegn aðild að Evrópusambandinu.“ /HLJ Veittu Jóni Bjarnasyni þakkarviðurkenningu Trausti Þórisson bóndi á Hofsá, Þórir L. Þórarinsson hjá Vélaþjónustu Þóris, Auður I. Ottesen, sýningarstjóri Sunnlenska sveitadagsins, Guðmundur Þór Guðjónsson, fjármálastjóri Jötunn Véla, og Össur Björnsson hjá Jötunn Vélum á fyrsta fundi sýningarstjórnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.