Bændablaðið - 11.04.2013, Blaðsíða 44

Bændablaðið - 11.04.2013, Blaðsíða 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. apríl 2013 Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Rafrænar skráningar á kynbótasýningar Sú breyting varð um áramótin að allt ráðgjafarstarf búnaðar sambandanna og Bændasamtaka Íslands var flutt yfir í nýtt fyrirtæki sem fékk nafnið Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins ehf. (RML). Bændasamtök Íslands hafa falið því framkvæmd kynbótasýninga og munu búnaðarsamböndin því ekkert koma að því starfi. Skráningar verða nú loksins með rafrænum hætti og hér í þessum pistli verður kerfið kynnt. Opnað verður á skráningar á allar sýningar vorsins samtímis um miðjan apríl. Síðasti skrán- ingardagur er viku fyrir sýningar, nema í þeim tilfellum þar sem sýning fyllist þá lokast sjálfkrafa á sýninguna, þó svo skráningar- frestur sé ekki útrunnin og eigand- inn verður að skrá á aðra sýningu. Lena Reiher og Oddný Kristín Guðmundsdóttir munu leiðbeina þeim sem þess þurfa í síma 516- 5000, einnig verður hægt að senda þeim tölvupóst á netföngin lr@rml. is og rml@rml.is. Skráningarkerfið Víkjum nú að skráningarkerfinu. Einfaldasta leiðin er að skrá í gegn- um heimasíðu Worldfengs, www. worldfengur.com, (sjá mynd 1) en þar er hægt að smella á hnapp- inn Skrá hross á kynbótasýningu. Munið að hafa við hendina fæð- ingarnúmer hrossins og kennitölu knapa en það eru upplýsingar sem verða að koma fram. Eins og fram kemur á mynd 2 þarf að velja kynbótasýningar og síðan aðildarfélag/söluaðila sem er Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins ehf. Skrá knapa og fæðingarnúmer hrossins. Velja sýningu og merkja við hvort hrossið á að fara eingöngu í byggingardóm, hæfileikadóm eða fullnaðardóm þ.e. bæði byggingar og hæfileikadóm. Hafi hross verið fulldæmt á almanaksárinu getur eigandi valið að láta nýjasta byggingardóm úr fullum dómi standa við endursýningu. Ekki er hægt að koma með hross í byggingardóm og ætla síðan að koma á næstu sýningu með hrossið í reiðdóm. Þegar þessum aðgerðum er lokið er farið í reitinn setja í körfu. Hrossið færist þá í svo kallaða vörukörfu. Ef það á að skrá fleiri hross er aftur farið í að velja aðildarfélag/söluaðila og ferlið endurtekið þ.e. knapi skráður, hross og sýning valin og þannig koll af kolli þar til búið er að ská þau hross sem til stendur að sýna. Þá er næst að ganga frá greiðslu því skráning fer ekki yfir í WorldFeng fyrr en greiðsla hefur borist (sjá mynd 3). Aðeins endurgreitt ef tilkynnt er tímanlega um forföll Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina að látið sé vita um forföll fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir sýningu í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin lr@ rml.is og rml@rml.is . Endurgreitt er kr. 11.000,- fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og kr. 8.000,- fyrir hross sem aðeins hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði. Til að hægt sé að skrá hross á sýningu verður hrossið að vera grunnskráð og einstaklingsmerkt annars fer skráning ekki í gegn. Varðandi skráningu á stóðhestum í sýningu fer skráning ekki í gegn nema búið sé að uppfylla reglur um sönnun á ætterni, til sé blóð og búið sé að taka röntgenmynd af hæklum. Það heyrir nú sögunni til að hægt sé að mæta á síðustu stundu með vottorð um að þetta sé klárt, því það er einfaldlega ekki hægt að skrá hestinn á sýningu nema þetta sé í lagi. Allir stóðhestaeigendur eiga að vera meðvitaðir um þessi atriði því þau hafa verið við líði í nokkur ár. Vonandi á þessi nýjung eftir að mælast vel fyrir meðal knapa og hrossaeiganda. Röðun hrossa niður á daga mun svo verða birt á heimasíður RML www.rml. is nokkrum dögum fyrir sýningu. Sjáumst á kynbótasýningum vorsins. Halla Eygló Sveinsdóttir, hrossaræktarráðunautur Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins ehf. Mynd 1. Skrá hross í kynbótasýningu. Þegar það hefur verið gert opnast næsti gluggi (mynd 2). Mynd 2. Velja söluaðila, skrá knapa og hross. Velja sýningu og skrá hross í byggingardóm eða fullnaðardóm. Setja í körfu og ganga frá greiðslu þegar búið er að skrá öll þau hross sem á að sýna. á að vera er smellt á áfram. Áður er smellt er á áfram er gott að skoða vel þ.e. Reisa í fullnaðardóm og Móa eingöngu í byggingardóm o.s.frv. Með því að smella á ruslafötuna er hægt að eyða skráningu. Mynd 4. Hér eru skráðar upplýsingar um greiðanda og hægt að setja inn óskir um sýningardaga eða annað. Þegar það er klárt er smellt á áfram. Hér eru skráðar upplýsingar um greiðanda og hægt að setja inn athugasemdir með skráningu síðan er smellt á áfram. Þá kemur upp næsti gluggi (mynd 5). Mynd 5. Hér er greiðsluform ákveðið og smellt á greiða. Hér hefur verið ákveðið að greiða með millifærslu og þá birtist mynd 6, ekki stofnast krafa í heimabanka þannig að viðkomandi þarf að ganga frá millifærslu sjálfur og þá er mjög mikilvægt að númer pöntunar komi fram. Mynd 6. Hér má sjá reikningsnúmer og kennitölu Ráðgjafarmiðstöðvar land- búnaðarins. Munið að láta pöntunarnúmer fylgja með greiðslu. pöntunarnúmer fylgja í skýringu svo hægt sé að sjá fyrir hvað hross var verið að greiða. Eins og áður hefur komið fram færist hrossið ekki inn á sýningu fyrr en búið er að ganga frá greiðslu inn á þennan reikning. Það má því segja að einfaldast sé að greiða með kreditkorti því þá er hægt að ganga frá þessu öllu í einu. á mynd 5 verið hakað í að greiða með korti kemur upp eftirfarandi gluggi (mynd 7). Mynd 7. Hér eru settar inn upplýsingar um kortið og gengið frá greiðslu. Hrossið skráist um leið á viðkomandi sýningu. Hér eru gefnar upp upplýsingar um kortið og smellt á greiða núna. Þá kemur upp eftirfarandi gluggi ef allt hefur verið í lagi (mynd 8). Mynd 8. Hér kemur fram að allt er til reiðu fyrir sýningu. Hér er hægt að prenta rangt kortanúmer eða ekki er heimild á kortinu og þá verður viðkomandi að hafa samband við sinn viðskiptabanka.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.