Bændablaðið - 11.04.2013, Blaðsíða 31

Bændablaðið - 11.04.2013, Blaðsíða 31
31Bændablaðið | Fimmtudagur 11. apríl 2013 F R U M - w w w .f ru m .i s Kuhn taðdreifarar. Dreifa öllu taði og hálmskít. Thaler liðléttingar. Aflmiklir og lipir vinnuþjarkar. VERKIN TALA JCB skotbómulyftarar í mörgum stærðum. Redrock haugsugur og mykjudælur. Kuhn rótherfi og jarðtætarar. Brand haughrærur. Fjöldi gerða fyrir allar aðstæður. Aðalfundur Félags eyfirskra nautgriparæktenda: Skuldamálin þokast til betri vegar „Ég tel að þessi niðurstaða sé okkur hagkvæm eins og mál standa því meðan óvissa ríkir um svo margt í þjóðfélaginu er gott fyrir okkur að sjá þó ekki sé nema fjögur ár fram í tímann. Við verðum þó að gera okkur grein fyrir því að að þeim tíma liðnum verða væntanlega töluverðar breytingar á búvöru- samningum,“ sagði Trausti Þóris son á aðal fundi Félags eyfirskra nautgriparæktenda. Tímarnir breytast Vísaði hann þar til kosningu síðast liðið haust um fram- lengingu á lítt breyttum mjólkur- samningi til ársloka 2016. Kjör- sókn var dræm, en einungis 36% greiddu atkvæði. Já sögðu 386 og nei 49 og var framlengingin staðfest af Alþingi laust fyrir jól. „Tímarnir breytast og því óeðlilegt að samningar verði framlengdir lítt breyttir út í hið óendanlega,“ sagði Trausti. „Við þurfum því að nýta tímann vel sem núverandi mjólkursamningur gefur til að leggja niður fyrir okkur hvernig við viljum sjá mjólkurframleiðslu í landinu þróast.“ Að mörgu að hyggja Grunnurinn að þeirri umræðu mun verða viðhorfskönnun meðal mjólkurframleiðenda sem nú stendur yfir ásamt klásúlu í mjólkursamningnum sem kveður á um að aðilar meti allar forsendur og reynslu af gildandi samningi en þeirri rýnivinnu á að vera lokið á þessu ári. „ Að mörgu er að hyggja og er það visst áhyggjuefni að stór hluti ríkisstuðnings skuli fara í kaup á framleiðsluheimildum. Ef við aftur á móti ákveðum að leggja niður kvótakerfið mun það hafa í för með sér að hver og einn gerir viðskiptasamning um það mjólkurmagn sem tekið er á móti í afurðastöð sem væntan- lega útilokar mjólkurframleiðslu á þeim stöðum sem lengst liggja frá samlagi af þeirri einföldu ástæðu að afurðastöðvarnar sjá sér hag í að framleiðslan færist þeim nær.“ Allt hefur kosti og galla Trausti sagði það sama gilda um opinbera verðlagningu. Hún væri langt í frá gallalaus gagn- vart bændum en ef henni verður fórnað mun tollaverndin hverfa. „Það er í raun alveg sama hverju breytt verður – allt hefur sína kosti og galla en það er okkar að komast að skynsam- legri niðurstöðu. Hagsmunir ungu bændanna og þeirra sem búið hafa lengi og skulda lítið eru ekki alltaf hinir sömu svo nauðsynlegt er að fara bil beggja,“ sagði Trausti. /MÞÞ Trausti Þórisson, formaður Félags eyfirskra kúabænda, segir að nýta verði tímann sem núgildandi mjókursamningur gefur til að leggja línur um hvernig bændur vilja sjá mjólkurframleiðslu í landinu þróast. Formaður FEN telur mjólkursamning hagkvæman: Verðum að nýta tímann og sjá hvernig málin þróast Trausti Þórisson, formaður Félags eyfirskra kúabænda, segir skuldamál bænda vera að þokast í rétta átt. „Þeir sem tóku á sínum tíma gengistryggð lán hafa allflestir fengið leiðréttingu en því miður á það ekki við um hina sem eru með öll sín lán verðtryggð og óvíst að þeim bjóðist leiðrétting vegna forsendubrests sem hér vissulega varð. Þá ríkir algjör óvissa með svokölluð biðlán sem upphaflega voru veitt til þriggja ára, afborgunarlaus, en þau eru flest á gjalddaga á þessu ári og áskilur lánveitandi sér allan rétt til aðgerða, hverjar svo sem þær verða,“ segir hann. Nauðsynlegt að fá hækkun á mjólkurverð Trausti nefndi á aðalfundi félags- ins að nú væru fyrstu verðskrár frá áburðarsölum komnar og ljóst að áburður heldur áfram að hækka milli ára. „Eins er með öll önnur aðföng og er okkur bráðnauðsynlegt að fá hækkun á mjólkurverð. Allar hækkanir skila sér inn í verðlags- grundvöll kúabús og tel ég líklegt að við munum fá einhverja hækkun en í ljósi sögunnar skulum við ekki gera okkur of miklar vonir,“ segir hann. /MÞÞ Þann 1. janúar síðastliðinn tók til starfa nýtt fyrirtæki, Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins ehf, þar sem öll leiðbeiningaþjón- usta á landinu var sameinuð undir einn hatt, með það að leiðarljósi að auka skilvirkni og bæta nýtingu fjármuna sem í ráðgjöfina fer. Þessi ráðhögun hefur ýmsar breytingar í för með sér. Í fyrsta lagi er reiknað með að öll þjónustu- kaup verði samkvæmt gjaldskrá sem endurspegli kostnaðinn sem í hnot- skurn þýðir að bændur sem nýta sér ráðgjöf borga fyrir hana fullu verði. „Eðlilegt er að auknar kröfur verði gerðar til þjónustunnar og verður spennandi að fylgjast með fyrstu sporum fyrirtækisins. Menn gera sér almennt grein fyrir að fyrstu árin verði fjárhagslega erfið og tel ég þetta sameiningarskref mikla áskorun til ráðunauta og annarra hjá fyrirtækinu að standa sig í stykkinu,“ sagði Trausti Þórisson, formaður Félags eyfirskra kúabænda. „Við bændur þurfum líka að kunna að kaupa þessa þjónustu. Í öðru lagi er ljóst að búnaðarsamböndin munu eiga í hálfgerðri tilvistarkreppu eftir breytingarnar og óvíst að þau lifi þær af. Við verðum bara að vona að þetta sé spor í rétta átt.“ /MÞÞ Ráðgjafarþjónusta landbúnaðarins spor í rétta átt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.