Bændablaðið - 11.04.2013, Qupperneq 24

Bændablaðið - 11.04.2013, Qupperneq 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. apríl 2013 Véla- og renniverkstæðið Kapp ehf. í Garðabæ varð til um síðustu áramót þegar Freyr Friðriksson keypti Véladeild Egils ehf.: Með áratuga reynslu í viðgerðum á vélum fyrir bændur Véla- og renniverkstæðið Kapp ehf. í Garðabæ tók til starfa sem sjálfstætt fyrirtæki um áramótin þegar Freyr Friðriksson keypti véla & renniverkstæðið út úr Agli ehf, áður Egill vélaverkstæði ehf. Kapp ehf. er nú með vélaverkstæðishlutann en Egill ehf. starfar eftir söluna á véladeildinni, einkum í viðgerðaþjónustu á sviði kæli-, raf- og heimilistækja, og er með CNC-verkstæði sem og framleiðslu á fiskvinnsluvélum. Freyr Friðriksson er eigandi Kapp. Hann segir að mikið hafi verið að gera í viðgerðarþjónustu fyrir bændur, m.a. í upptektum á vélum í dráttarvélar. Sjálfur þekkir Freyr ágætlega til í sveitum, enda kynntist hann sveitastörfunum vel sem vinnu- maður í nokkur sumur í Smáratúni í Fljótshlíð. Í Fljótshlíðinni á hann líka bústað og er um leið að eigin sögn frístundabóndi. Hann er mennt- aður vélvirki með framhaldsnám í Danmörku sem hann lauk árið 1999 og fór þá beint til starfa hjá Agli. „Ég hef verið framkvæmdastjóri Egils undanfarin þrettán ár og átti það fyrirtæki áður, en seldi það árið 2005 en sá áfram um reksturinn. Í janúar urðu kaflaskil í fyrirtækinu þegar ég keypti véladeildina út úr Agli vélaverkstæði. Það má því segja að ég sé kominn með Kapp eins og Egill var í upphafi. Við önnumst alla grunnvinnu í viðgerðum, slípum sveifarása, gerum við hedd, rennum ventla og ventilsæti ásamt því að plana og þrýstiprófa blokkir. Þá liggur mikil reynsla hjá okkur þegar kemur að rennismíði og alls konar reddingum er tengjast viðgerðum almennt, en fyrst og fremst er okkar sérfag ásprautun, þar sem við sprautum á slitfleti undan pakkdósa- og legusætum og gerum þannig notaðan skemmdan hlut að nýjum. Þetta var búið að vera okkar sérgrein í Agli síðan 1959.“ Þekktir fyrir ásprautun Ásprautunin sem Freyr nefnir er þannig framkvæmd að vír er rennt inn í ásprautunarbyssu sem bræðir vírinn og er málminum sprautað á öxla, tjakkstangir eða annað sem þarf að lagfæra. Síðan er viðkomandi hlutur slípaður niður í rétt mál og er viðgerður hlutur þá kominn með slitsterkara yfirborð en upphaflega. Segir Freyr að þetta sé oft mun ódýrara en að kaupa nýjan íhlut frá verksmiðju. Freyr segist vera mjög heppinn með starfsmenn, sem eru nú orðnir sex talsins og hafa sumir starfað hjá Agli um áratuga skeið. Þar má t.d. nefna Harald Guðjón Samúelsson sem fæddur er í Fremstuhúsum í Dýrafirði. Móðurbróðir hans var Drengur Guðjónsson, sem var vel þekktur þar um slóðir, en hann lést árið 1990. Drengur tók við búinu á Fremstuhúsum og stundaði auk þess akstur með farþega á milli Þingeyrar og Ísafjarðar. „Ég byrjaði að læra hjá Agli 2. júní 1969. Það hefur ýmislegt breyst í þessum geira síðan,“ segir Haraldur. „Ég er svo heppinn að vera með svona reynslubolta með mér ásamt yngri mönnum. Sú reynsla sem þessir karlar búa yfir finnst ekki víða.“ Freyr segir ekki spurningu um að upptekt og viðgerð á mótor úr dráttarvél eða vinnuvél geti margborgað sig. Slíkur mótor, eins og úr JCB-gröfu, geti hæglega kostað alltað fjórar milljónir króna, en umtalsverð viðgerð kosti kannski um einn fjórða af því verði. Segir hann að yfirleitt sé annað uppi á teningnum þegar komi að úrbræddum fólksbílavélum en þá sé oft hæpið að það borgi sig að gera við þær enda bílverðið það lágt að menn leggja ekki oft út í mikinn kostnað þegar kemur að heildarupptektum og slíku. Vel búið tækjum Kapp ehf. er vel búið tækjum sem flest tilheyrðu áður Agli. Þar má nefna planvél til að plana vélablokkir og hedd, auk borvélar til að bora út fyrir slífum í sílindra (strokka). Þá er Kapp með sérstakan suðuklefa fyrir pinna- og MIG-suðu. Hedd í nútíma jeppavélum eru flest smíðuð úr áli í dag og hætt er við að í þeim myndist sprungur. Þessar sprungur er oft erfitt að sjá þar sem þær opnast ekki nema við ákveðinn hita og þá undir álagi á vél. Kapp er með sérstaka þrýstiprófunarvél til að þrýstiprófa slík hedd. Flaggskip Kapp er svo slípivél, sem er nánast öll tölvustýrð og sú eina sinnar tegundar í landinu. Vönduð vinnubrögð skapar traust Freyr segir að lykillinn að vel- gengni sé að öðlast traust þeirra viðskiptavina sem unnið er fyrir. Þá dugi ekkert annað en vönduð vinnubrögð og lipur þjónusta. Það spyrjist síðan gjarnan út, sem sé besta auglýsingin sem hægt er að fá. Það hafi m.a. fleytt þeim áfram í þjónustu fyrir bændur og ýmsa vélainnflytjendur. „Við erum reyndar með slagorð sem er; þú finnur traust í okkar lausn,“ segir Freyr Friðriksson. „Ef við stöndum okkur ekki þá leita menn ekki til okkar aftur, svo einfalt er það.“ /HKr. Myndir / HKr.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.