Læknablaðið - 01.12.1960, Síða 32
158
LÆKNABLAÐIÐ
svokallað radiocinematograpli,
sem notað er við angiografi.
Ég ætla heldur að lvsa læknis-
þjónustu í sveit. Fyrirkomulagi
hennar kynntumst við í Ukra-
ínu. Við byrjuðum þann daginn
á því að skoða samyrkjubú og
sjúkraskýli fyrir verkafólkið,
sem þar vann. Sjúkraskýlin
voru tvenns konar: Annars
vcgar var skýli fyrir hjálp í við-
lögum og minni háttar áverka.
Var þar hiðstofa, aðgerðarher-
hergi og tvær sjúkrastofur með
4 rúmum liver, og lá þar fólk,
sem gert hafði verið á minni
háttar aðgerð, eða liafði orðið
fyrir áverka. Hins vegar var
skýli, sem hæði var fyrir ófríslc-
ar konur, er þurftu að hvíla sig
fvrir fæðingu, og fvrir sængur-
konur.
Á fyrrnefnda staðnum réð
liúsum maður, sem nú á dög-
um á ekki sinn lika vestan
Sovétríkjanna. Hann her tilil-
inn feltskeri, hinn sama litil og
Pareus hafði, en hann lifði frá
1510—90 og þótti mestur skurð-
læknir síns tima. Feltskerinn
hefir takmarkað lækningaleyfi.
Hann má veita hjálp í viðlög-
um, t. d. stinga á kýli og kippa
í lið. Til lians koma vitjana-
beiðnir úr nágrenninu. Hann fer
í vitjanir, en má ekki skrifa
lyfseðil. Hins vegar getur hann
vistað fólk beint á spítala. Hann
vinnur á áhvrgð og undir eftir-
liti lækna á poliklinikinni.
Á fæðingaheimilinu ræður
húsum Ijósmóðir, og er hún
undir eftirliti lækna frá poli-
klinikinni. Þar eru konur rann-
sakaðar vegna þunga, fylgzt
með þeim um meðgöngutímann
og þar geta þær fætt, ef allt er
með eðlilegum hætti. Þarna er
ungum mæðrum kennt að fara
með kornabörn, og eru þau und-
ir eftirliti heimilisins fyrsta ár-
ið. Læknar frá poliklinikinni
koma þarna reglulega. Skammt
frá var dagheimili fyrir börn,
og skoðuðum við það lauslega.
A spítala þessarar sveitar eru
100 sjúkrarúm fyrir lyflæknis-,
handlæknis- og kvensjúkdóma.
Þar er röntgendeild, poliklinik,
sanepid-deild og apótek. Yfir-
læknir spítalans er skurðlæknir.
Hann er um leið yfirlæknir allr-
ar sveitarinnar og áhvrgur fyrir
framkvæmd heilbrigðismála
þar. Hann hefir 4 aðstoðar-
lækna, skurðlækni, lyfiækni,
kvenlækni og harnalækni.
1 þessari sveit, sem í voru
70.000 íbúar, voru eftirtaldar
heilbrigðisstofnanir: Spítali
með 100 rúmum, poliklinik og'
sanepid-deild, 9 feltskera-skýli
með alls 100 rúmum, herkla-
varnarstöð, og á henni rúm fvr-
ir 50 sjúklinga, herklaspítali fvr-
ir 35 sjúldinga, 45 stöðvar fyr-
ir mæðra- og harnáyernd, 18
fæðingarheimili og 12 barna-
heimili, sem gátu liýst 200 hörn.
Auk þess voru 55 dagheimili
fvrir börn, en þau voru opin
aðeins um uppskerutimann.