Læknablaðið - 01.12.1960, Side 35
LÆKNABLAÐIÐ
161
um farið ört fjölgandi. Nú á
liver kona rétt á því að láta
fjarlægja fóstur, þó með þeim
skilyrðum, að hún iiafi ekki
gengið lengur með en 3 mánuði
og 6 mánuðir séu liðnir frá því,
að fóstri var síðast eytt.
Ekki gátuin við fengið heild-
artölur yfir það, hve margar
fóstureyðingar væru árlega
framkvæmdar í öllum Sovét-
rikjunum, en okkur var sagt, að
í Leníngrad og umhverfi, sem
i eru 3,3 milljónir íbúa, hefðu
þær verið milli 65—70 þúsund
árið 1958. Voru 8% aðgerðanna
samkvæmt læknisráði (medi-
cinsk indikation). Þrátt fyrir
þetta var fæðingartalan á þessu
svæði 25 %0. .
Ekki levndi það sér, bæði
þarna og víðar, þar sem þetta
bar á góma, að fóstureyðingar
eru Rússum dálítið viðkvæmt
mál, því að í raun og veru er
ríkisvaldið á móti þeim. Þegar
kona fer fram á að losna við
fóstur, er reynt að telja hana
af því. Henni er bent á hættur,
sem kunna að fylgja því, og að
hún geti afhent harnið ríkis-
stofnun, er sjái fyrir því, ef hún
vill það ekki sjálf.
Okkur var sýnd fræðslukvik-
mynd, mjög vel gerð, sem er
notuð við heilbrigðisfræðslu, t.
d. á kvikmyndahúsum. Ungu
fólki eru kenndar getnaðarvarn-
ir, en þó að undarlegt sé, þá tak-
mörkuðust þær að mestu við
karlmenn, og pessar cr lítið
notaður. Loks er konum, sem
hafa fætt mörg hörn, veittir
heiðurstitlar, sem á ensku voru
kallaðir „glory of mother-hood“,
„medal of motherhood“, og loks
er titillinn „mother heroine“
veittur konurh, sem hafa kom-
ið upp fleiri en 10 börnum;
tveimur fyrri titlunum fylgir
lieiðurspeningur, en liinum síð-
asta fjárfúlga að auki.
70% sovézkra lækna eru
konur. Læknafjöldinn er mik-
ill, 340.000, þegar sérfræðingar
i munnsjúkdómum eru taldir
með. Frá háskólum útskrifast
árlega í kringum 20.000 kandi-
datar. Það lætur nærri, að einn
læknir sé fyrir hverja 640 íbúa.
Til samanburðar má geta þess,
að í Bandaríkjunum er einn
læknir fyrir hverja 765 íbúa, í
Bretlandi, Frakklandi og Hol-
landi einn fvrir liverja 1100
íbúa, i Danmörku einn fyrir 800,
i Noregi einn fvrir 900, í Sví-
þjóð einn fyrir 1200 og á ís-
landi einn fyrir hverja 750 íbúa.
Skilyrði fyrir upptöku i
læknaskóla eru þau, að viðkom-
andi hafi lokið sjö ára almennu
skólanámi að viðbættu þriggja
ára námi, sem mun samsvara
gagnfræðanámi á Norðurlönd-
um. Undirbúningsmenntun er
því þrem árum skemmri en á
Norðurlöndum. — Neminn er
þannig 17 ára gamall, þegar
liann byrjar námið, en það tek-
ur 6 ár.
Sækja verður um upptöku i