Læknablaðið - 01.09.1961, Side 65
LÆKNABLAÐIÐ
133
að geyma 12—15 milligrömm
járns á dag, og í öðruni lönd-
um hafa menn komizt að svip-
aðri niðurstöðu. 1 Danmörku er
þó talið, að menn fái ekki nema
6—12 milligrömm á dag í fæðu
að jafnaði.
Af því járni, sem neytt er
í fæðu, er talið, að líkaminn taki
í sig nálægt y10 lduta sem tvígilt
járn, þ. e. nálægt 1,2—1,5 milli-
grömm daglega, og er því ljóst,
að ekki má mikið út af bera,
svo að ekki komi til járnskort-
ur, og er því vonlegt, að blóð-
leysi af þessum sökum sé al-
gengur kvilli. Þegar járnforði
líkamans minnkar, evkst liins
vegar hæfni lians til að taka til
sin járn úr fæðu. Af framan-
sögðu er ljóst, að járnskortur
stafar Iangoftast af blóðmissi
með einum eða öðrum hætti.
Eins og fyrr er sagt, tekur
líkaminn í sig járn í tvígildu
formi, aðallega í skeifugörn og
efri hluta mjógirnis, en lítillega
annars staðar í meltingarfær-
um. í slímhúð garnanna breyt-
ist járnið í ferrioxyd og binzt
eggjahvítuefni (apoferritíni).
Myndast þar með járn-fosfór-
eggjahvítuefni, sem nefnt er
ferritín. Þegar apoferritín er
fullsatt, hætta frumurnar að
taka til sín frekara járn, en
gevma það í þessu formi, þar
til líkaminn þarfnast þess og
járnmagn í blóðvatni lækkar.
Losnar þá um járnið í frumun-
um, og flyzt það til blóðmynd-
andi vefja, en apoferritínið er
þá á njT albúið að taka til sín
nýjan járnforða til að mæta
frekari þörf.
Hvetjandi áhrif á járnnýtingu
úr fæðu hafa ýmis þeklct efni,
svo sem blaðgræna, C-fjörvi,
kalk og gallsölt, auk þess sem
magasýra breytir þrígildum
járnsamböndum í fæðu í tvígilt
járn. Letjandi áhrif hafa liins
vegar lútkennd efni, phytinsam-
bönd, fosföt og aukin slímmynd-
un, sem fylgir sjúkdómum í
görnum. Illkynja sjúkdómar og
nýrnabilun minnka einnig nýt-
ingu járns úr fæðu.
Járnmagn nokkurra fæðuteg-
unda má sjá á töflu IV.
TAFLA IV.
Tegund fæðu Hæmoglobin aukning
grömm pr. dag (2. vikna eldistilraun)
Brauð 400 .................... 3
Brauð 350, smjör 100 .... 15
Mjólk 450, brauð 400 ...... 3
Spínat 200, brauð 300 .... 15
Rúsínur 200, brauð 300 ... 25
Aprikósur 200, brauð 300 .. 48
Egg 150, brauð 300 ........ 45
Fiskur 250, brauð 300 .... 13
Nautakjöt 250, brauð 300 .. 17
Svínakjöt 250, brauð 300 . . 30
Nautalifur 450 ............ 95
Auk þess rná nefna, að ýmsar
belgjurtir eru mjög járnauð-
ugar.
Helz.tu orsaltir til blóðleysis
vegna járnskorts eru taldar í
töflu V, en geta ber þess, að
á stundum eru orsakir algerlega
ókunnar.