Læknablaðið - 01.09.1963, Síða 35
l,ÆKNABLAÐIÐ
111
ist nú þegar þau kjör, sem um kann
að semjast milli ríkisstjórnarinnar
og Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja eða ákveðin verða af kjara-
dómi samkvæmt 1. nr. 55, 28. apríl
1962 [ stað þess, sem aðrir starfs-
menn verða væntanlegra breytinga
ekki aðnjótandi fyrr en 1. júli 1963,
enda lýsi Bandalag starfsmanna
ríkis og bæja yfir, að það sé sam-
þykkt þessari sérmeðferð umræddra
lækna og muni ekki byggja kröfur
til annarra starfshópa á henni.
Læknarnir taki þegar í stað upp sina
fyrri vinnu og fái þær hækkanir,
sem um kann að semjast eða kjara-
dómur ákveður greiddar eftir á jafn-
skjótt og samningar hafa tekizt eða
ákvörðun kjaradóms liggur fyrir.
Formenn læknafélaganna og
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja tóku að sér að koma þessum
boðum áleiðis."
(Fréttatilk. 10. nóv. ’62.)
Ráðherrann tók fram, að á fundi
þessum talaði hann ekki eingöngu
sem heilbrigðismálaráðherra, heldur
einnig með umboði frá fjármála-
ráðuneyti.
Þann 12. nóv. ritaði lögfræðingur
lækna þeirra, er sagt höfðu upp,
eftirfarandi bréf til L. R.:
„Fyrir hönd lækna, sem sögðu
upp störfum sínum 12. og 13. april
1962, og með skírskotun til tilboðs
ríkisstjórnarinnar frá 10. nóv. s.l.
um lausn læknadeilunnar svonefndu,
en tilboð þetta barst læknunum fyr-
ir atbeina yðar, leyfi ég mér að til-
kynna yður eftirfarandi:
Læknarnir, sem hlut eiga að máli,
hafa rætt tilboðið. Þeir vekja at-
hygli á, að samþykki þeir tilboðið,
taki þeir á sig alla áhættu, þvi að
1) ekki er vitað, um hvaða kjör
verði samið eða ákveðin af kjara-
dómi, og 2) að slíkt samkomulag,
sem hér er stungið upp á, hlýtur að
vera bundið þvi skilyrði, að Alþingi
fallist á nauðsynlegar breytingar í
þessu skyni.
Læknarnir hafa átt þess kost að
kynna sér tillögur BSRB um launa-
kjör lækna í þjónustu ríkisins í
væntanlegum samningaviðræðum
milli BSRB og f jármálaráðherra, en
tillögur BSRB varðandi læknana
ganga eigi skemmra en þær kröf-
ur, sem læknarnir settu fram á
sínum tima. Með hliðsjón af þess-
um tillögum BSRB tjá læknarnir sig
búna til að ganga að tilboði ríkis-
stjórnarinnar, ef samþykktar verða
eftirgreindar smálagfæringar og
kveðið verði nokkru skýrar að orði
en nú er gert í tilboðinu:
1. Væntanlegar kjarabætur reikn-
ast frá 1. ágúst 1962.
2. Væntanlegar hækkanir nái til
þessara tekjustofna læknanna:
a) Föst laun,
b) Gæzluvaktir og önnur yfir-
vinna,
c) Bílastyrkur.
3. Samkomulag þetta nái til allra
þeirra lækna, sem létu af störf-
um 31. október 1962: Daníel
Guðnason, Valtýr Bjarnason,
Hannes Finnbogason, Árni
Björnsson, Friðrik Einarsson,
Jón Eiríksson, Gunnlaugur Snæ-
dal, Jón Hannesson, Stefán
Bogason, Björn Júlíusson,
Gunnar Guðmundsson, Arin-
björn Kolbeinsson, Þórarinn
Sveinsson, Guðmundur Georgs-
son, Baldur Johnsen, Ólafur
Bjarnason, Sigmundur Magnús-
son, Þorvaldur Veigar Guð-
mundsson, Þorgeir Þorgeirsson,
Árni Guðmundsson, Kolbeinn
Kristófersson, Kristján Jónas-
son, Theodór Skúlason, Ólafur
Ólafsson, Snorri P. Snorrason,
Jón Þorsteinsson, svo og Ás-
mundur Brekkan, Árni Kristj-
ánsson, Víkingur H. Arnórsson
og Sverrir Georgsson.