Læknablaðið - 01.09.1963, Blaðsíða 69
LÆKNABLAÐIÐ
133
lagt að stcmma á að ósi með
því að stuðla að því, að hver
þjóðfélagsþegn eigi þess
kost að afla sér hollrar
og hæfilegrar fæðu, atvinnu
og athafnaslcilyrða, hentugs
fatnaðar, húsnæðis og heimilis-
tækja, svo og til að njóta nauð-
synlegrar livíldar og livers kon-
ar félagslegs öryggis og síðast,
en ekki sizt, þeirrar fræðslu,
sem er undirstaða sannfróðs al-
menningsálits.
Af þessu er ljóst, að heil-
brigðisþjónusta er ekki einung-
is i því fólgin að koma sjúk-
um til þeirrar heilsu og starfs-
krafta, sem framast er auðið
hverju sinni, heldur tekur hún
einnig lil aðgerða, sem miða
að eflingu almennrar heilbrigði
og hvers konar öryggis, svo og
að vörnum gegn sjúkdómum og
uppgötvun þeirra á byrjunar-
stigi.
Hinn fyrrnefndi þáttur lieil-
brigðisþjónustu, lækningar, er
fvrst og fremst miðaður við
þarfir einstaklingsins og per-
sónulegt samband lians við
lækna og hjúkrunarfólk. í öllu,
sem gert er þá við hann og
fyrir liann, er hann að meira
eða minna leyti óvirkur þátttak
andi.
llinn síðarnefndi þáttur heil-
brigðisþjónustu, heilsuvarnir,
er verkefni þjóðfélagsins i heild.
Administration eða framkvæmd
lieilsuvarna er því á ábyrgð
ríkisvaldsins, en jafnframl liáð
virkri þátltöku allra þjóðfélags
þegna. Virk þátttaka fæst þó
því aðeins, að almenningur liafi
glöggan skilning á samtvinnun
einstaklingsheilla og almenn-
ingsheilla. Skorti þann skilning,
verður bezt úr því bætt með
aukinni fræðslu um allt, sem
að heilbrigði lýtur, því að laga-
boð eru fjarri því aðveraeinblít.
Oft eru heilsuverndarráðstafan-
ir þess eðlis, að árangur kemur
ekki í ljós fyrr en að löngum
tíma liðnum. Reynir þá meira
en eila á skilning og virka sam-
vinnu af hálfu ahnennings.
„Fagnaður fyllstu auðinnar
heilbrigði telst til frumréttinda
allra manna,“ segir í stofnskrá
Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinn-
ar. Að því marki ber allri heil-
brigðisþjónustu að stefna, en
f rumskilyrði árangursríkrar
Iieilbrigðisþjónustu er góð „ad-
ministration“. Verður þá fyrst
fvrir að spyrja: í hverju er „ad-
ministration“ fólgin? Hverjar
eru almennar undirstöðureglur
hennar og slarfsaðferðir að því,
er tekur til heilbrigðismála?
Hugtakið „administration"
merkir alla ]iá starfsemi, sem
felst í framkvæmd áætlunar eða
stefnuskrár, hvort heldur á veg-
um einstaklinga eða hins opin-
bera. A íslenzku hefur það vei’-
ið útlagt stjórnsýsla.
Meginþættir stjórnsýslu eru
þrír:
1) Áætlunargerð,
2) Skipulagning,