Læknablaðið - 01.09.1963, Blaðsíða 39
LÆKNABLAÐIÐ
113
að greiða sjúkrahúslæknum fyrr en
öðrum laun samkvæmt væntanleg-
um kjarasamningi eða dómi, og
samkomulag tekizt um nokkur
framkvæmdaatriði lausnarinnar.
Til viðbótar þessu skal tekið fram,
að framkvæmdaatriði þau, sem hér
ræðir um, eru þessi: 1. Þegar rætt
er um greiðslur þær, sem reiknast
skulu frá 1. ágúst s.l., samkv. því,
sem að framan segir, nær það einn-
ig til hugsanlegra greiðslna sam-
kvæmt 6. gr. laga nr. 55/1962. —
2. Fyrirhugað er, að þegar feng-
inni yfirlýsingu formanns BSRB um
samþykki stjórnar þess, að þeir
læknar, sem nefndir eru í 5. tölulið
bréfs yðar frá 12. þ. m., til Lækna
félags Reykjavikur, sem þessu ráðu-
neyti hefur borizt frá BSRB,
skuli verða aðnjótandi umræddra
greiðslna ásamt læknum þeim, sem
hlut hafa átt að deilunni.
3. Fyrirhugað er, að lagafrumvarp
til staðfestingar á heimild til þeirr-
ar lausnar á læknadeilunni, sem
samkomulag hefur orðið um, verði
lagt fram á Alþingi næstu daga.
4. Þá skal loks tekið fram, að svo
er litið á, að þar sem því ákvæði
15. gr. laga nr. 38/1954, um fram-
lengingu uppsagnarfrests úr þrem
mánuðum í sex hefur þegar verið
beitt gegn læknum í sambandi við
þessa deilu, verður ekki talið rétt,
að því væri aftur beitt í sambandi
við hana, þó svo að læknarnir segðu
upp störfum vegna óánægju um þá
samninga eða ákvörðun kjaradóms,
sem þeir hafa undirgengizt.
F. h. r.
Baldur Möller
Elías Elíasson.“
Þann 14. nóv. gaf ríkisstjórnin út
eftirfarandi fréttatilkynningu um
málið:
„Læknadeilan svokallaða hefur
nú verið til lykta leidd á grundveili
tilboðs ríkisstjórnarinnar frá 10.
nóvember með þeirri breytingu, að
væntanlegar kjarabreytingar skuli
reiknast frá 1. ág. s.l., enda hefur
stjórn BSRB lýst yfir, að það muni
ekki gera kröfur fyrir hönd annarra
starfsmanna, þótt ríkisstjórnin sam-
þykki að greiða sjúkrahúslæknum
fyrr en öðrum laun samkvæmt
væntanlegum kjarasamningi eða
dómi og samkomulag tekizt um
nokkur framkvæmdaatriði lausnar-
innar.“
Varðandi lækna þá, sem sagt
höfðu upp stöðum sínum við heil-
brigðisstofnanir Reykjavikurborgar,
ritaði lögfræðingur lækna eftirfar-
andi bréf til borgarlæknis:
„Reykjavík, 14. nóv. 1962.
Ég skírskota til samtals við yður
í dag, og samkvæmt ósk yðar sendi
ég hér með eftirtalin skjöl:
1. Afrit tilboðs ríkisstjórnarinn-
ar til lækna til lausnar lækna-
deilunni, frá 10. nóv. 1962.
2. Afrit bréfs mins til Læknafé-
lags Reykjavikur, ds. 12. nóv.
1962.
3. Afrit bréfs ráðuneytisins til
mín, ds. 13. nóv. 1962.
Læknarnir samþykktu að feila
niður lið nr. 6 og 8 í bréfi mínu til
Læknafélags Reykjavíkur frá 12.
nóvember s.L, sbr. 2) hér að ofan.
Fyrri hluti liðs 9 í bréfi breyttist á
þessa lund:
„Læknarnir gera það að skilyrði,
að ríkisstjórnin leggi eins fljótt og
unnt er fram frumvarp að þeirri
lagabreytingu, sem telst nauðsyn-
leg, enda verði málið afgreitt af
hálfu Alþingis á yfirstandandi
þingi ....“
Sem lögmanni læknanna hefur
mér verið falið, með vísan til 4. tl.
i bréfi mínu til Læknafélags Reykja-
vikur, að æskja skriflegrar stað-
festingar á því, að læknarnir, sem