Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.08.2011, Qupperneq 6

Fréttatíminn - 26.08.2011, Qupperneq 6
Turninum | Smáratorgi 3 | 201 Kópavogi Sími 575 7500 | www.veisluturninn.is Ráðstefnur & fundir Fullkomin aðstaða fyrir allt að 500 manns Júlísprenging í sölu atvinnuhúsnæðis Haftaaflétting dregst á langinn Líklegt má telja að almenn aflétting gjaldeyrishafta dragist enn frekar á langinn eftir slaka þátttöku í gjaldeyrisútboði Seðla- bankans í síðustu viku, að mati Greiningar Íslandsbanka. Bankinn hafði áætlað að kaupa 72 milljónir evra og greiða fyrir með löngum, verðtryggðum ríkisbréfum. Með því átti að afla aftur 69 milljóna evra sem bankinn seldi eigendum aflandskróna úr gjaldeyrisforð- anum í skiptum fyrir krónueignir í júlí. Seinna útboðið, sem sniðið var að lífeyrissjóðum, hlaut dræmar undirtektir. Heildartilboð námu 3,4 milljónum evra og var þeim tekið. Viðskiptin rýrðu gjaldeyrisforðann um jafnvirði 10,8 milljarða króna. Greiningin segir að ýmsar ástæður kunni að vera fyrir litlum áhuga lífeyrissjóðanna, m.a. aðstæður á alþjóðamörkuðum, en ekki sé loku fyrir það skotið að áhugi sjóðanna á frekari skiptum erlendra eigna í bundin langtíma krónubréf sé takmarkaður. Spurningin sé því hver næstu viðbrögð Seðlabankans verði. - jh Markaður með atvinnuhúsnæði virðist vera að taka vel við sér, samkvæmt nýjustu veltutölum. Í júlí var þinglýst 107 kaupsamningum og afsölum með atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu, en svo mikill hefur þessi fjöldi ekki verið í einum mánuði frá því í janúar árið 2008, að því er fram kemur hjá Greiningu Íslandsbanka sem vitnar til talna Þjóðskrár Íslands. Til samanburðar má geta þess að fjöldinn var 43 í sama mánuði í fyrra og 25 í júlí 2009. Um gríðarlega aukningu er að ræða milli ára, og í raun er þetta næstmesti fjöldi slíkra samninga sem þinglýst hefur verið í júlímánuði frá árinu 2005. Greiningin tekur fram að horfa verði á tölur fyrir einstaka mánuði með ákveðnum fyrirvara um sveiflur sem geta verið á milli mánaða. Aukningin á við um höfuðborgarsvæðið en ládeyða er á markaði með atvinnuhúsnæði utan þess. - jh 107 ÞinGLýSTir kAUpSAMninGAr ATVinnUHúSnæðiS Júlí 2011 Greining Íslandsbanka Orkuveitan tapar 3,8 milljörðum Tap Orkuveitu reykjavíkur á fyrri hluta ársins nam rúmlega 3,8 milljörðum króna en á sama tíma í fyrra var hagnaður Or rúmlega 5,1 milljarður, að því er fram kemur í tilkynningu til kauphallar Íslands. Þar segir m.a. að vegna óhagstæðrar gengis- þróunar á fyrri helmingi þessa árs hafi fjármagns- liðir verið neikvæðir. Þetta hafi gerst þrátt fyrir hækkun álverðs á tímabilinu sem eykur bókfært virði innbyggðra afleiða vegna raforkusamninga til stórnotenda. regluleg starfsemi skilaði betri afkomu fyrstu sex mánuði ársins en í fyrra. Það má rekja til aukinna tekna og aðhalds í rekstri, segir í tilkynningunni. Handbært fé frá rekstrinum nam 8,9 milljörðum króna og hækkaði um rúma 2 milljarða frá sama tímabili 2010. - jh Hagnaður Varðar jókst um 36% Fimmtungsaukning varð á eigin iðgjöldum trygg- ingafélagsins Varðar á fyrra hluta ársins saman- borið við aðeins 5% aukningu tjónakostnaðar, samkvæmt árshlutareikningi Banknordik sem vefur VB greinir frá. Hagnaður Varðar fyrir skatta jókst um 36% á milli ára og nam 5 milljónum danskra króna, eða um 110 milljónum íslenskra króna. Banknordik er skuldbundinn til að kaupa 49% hlut í Verði á næsta ári en kaupverðið, sem er háð afkomu áranna 2010 og 2011, liggur á bilinu 1,1-1,6 milljarðar króna. Um 9% af hreinum rekstrartekjum Banknordik-samstæðunnar á fyrri hluta ársins komu frá Íslandi. -jh veður Föstudagur laugardagur sunnudagur Víðast bJartViðri, en meira skýJað og sValt norðaustan- og austanlands. HöfuðborgarsVæðið: n-GOLA OG LéTTSkýjAð. alVeg þurrt á lanidnu og léttir til norðan- og austanlands. sæmilega Hlýtt að deginum en Hætt Við næturfrosti, til landins. HöfuðborgarsVæðið: nOkkUð BjArT eðA SkýjAð AF Hærri SkýjUM. HæGUr VindUr. fremur Hæg sV og V-átt og bJart- Viðri um mikinn Hluta lands- ins. þungbúið og suddi Vestast. Hlýnandi. HöfuðborgarsVæðið: Að MeSTU SkýjAð OG SMáVæGiLeG VæTA. berjatínsla í skugga næturfrosts Þó berjaspretta hafi verið heldur lakleg nú miðað við fyrri sumur má þó víða finna ber, einkum sunnan- og vestanlands. Margir munu eflaust reyna um helgina, því spáð er ágætasta veðri og nánast úrkomulausu. dálítil breyting er í vændum, vindur snýst frá því að vera n- og nA-stæður yfir í SV- og V-átt og um leið er spáð háþrýstisvæði við landið. Um helgina rofar til og norðaustan- og austanlands og hlýnar jafnframt á sunnudag. Þegar þetta bjart er á landinu og hægur vindur er hætt við næturfrosti sem skemma ber, fella kartöflugrös o.s.frv. 12 9 8 8 14 11 10 12 12 13 11 11 15 15 12 einar sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is miðborgin okkar! Frábært veður í miðborg- inni alla helgina. Hundruð verslana og veitingahúsa bjóða vörur og þjónustu. Sjá nánar auglýsingu á bls. 49 og á www.miðborgin.is e fnahagsbrotadeild ríkislög-reglustjóra og embætti sér-staks saksóknara sameinast 1. september næstkomandi sam- kvæmt lögum sem þá taka gildi. Við gildistöku þeirra flyst rannsókn mála er undir efnahagsbrotadeild heyra og ákæruvald, og þar með sókn þeirra mála sem þegar sæta ákærumeðferð fyrir dómstólum af hálfu ríkislögreglustjóra, frá embætti hans til embættis sér- staks saksóknara. Þetta var m.a. meðal tillagna Valtýs Sigurðssonar, fyrrverandi ríkissaksóknara, en af minnisblaði hans og Sigríðar Elsu Kjartansdóttur, sem þá var settur ríkissaksóknari, í tilefni fundar í innanríkisráðuneytinu í febrúar síðastliðnum, má lesa það mat að efnahagsbrotadeild ríkislögreglu- stjóra hafi verið vanhæf og hafi um árabil skort faglega yfirstjórn og metnað. Í minnisblaðinu er getið skýrslu Sigríðar Elsu um stöðu efnahags- brotadeildar ríkislögreglustjóra frá því í október síðastliðnum. Skýrslan var gerð á grunni áhyggna ráða- manna af framgangi mála sem kærð höfðu verið þangað vegna brota gegn lögum um gjaldeyris- mál. Þar kom m.a. fram að meðferð mála stöðvaðist eftir að búið var að ákveða að taka þau til rannsóknar þar sem mál eru fleiri en rannsakendur anna. Þess var getið að níu mál vegna brota gegn lögum um gjald- eyrismál væru í deildinni en aðeins eitt hefði verið tekið til rannsóknar. Fyrir- sjáanlegt væri að deildin myndi ekki ráða við væntanlegan málafjölda. Fram kom að samskipti yfirmanna, þ.e. ríkislögreglustjóra og saksóknara, gengju ekki eðlilega fyrir sig. Jafn- framt var bent á hrokafulla afstöðu saksóknara [Helga Magnúsar Gunn- arssonar]gagnvart skýrsluhöfundi. Ríkissaksóknari hafði áður fundað með yfirmönnum ríkislögreglu- stjóraembættisins vegna samskipta- vandamála innan þess. Valtýr og Sigríður Elsa geta einnig í minnisblaðinu um tölvupóst Egils Stephensen frá því í október síðastliðnum þar sem bent var á að flest mál, sem send hefðu verið til efnahagsbrotadeildarinnar, hefði dagað uppi. Getið var niðurfellingar umfangsmikils tollsvikamáls eftir fimm ára rannsókn þar sem sönnun- arstaða hefði verið góð. Enn fremur er vísað til skattamála Baugs, en á fundi ríkislögreglustjóra með ríkis- saksóknara var tilkynnt að efna- hagsbrotadeildin myndi ekki fara með málið en komið var að munn- legum málflutningi. Borið var við að vinnuálag væri gríðarlegt. Í minnisblaðinu segir m.a.: „Það er mat ríkissaksóknara að efnahags- brotadeild hafi um árabil skort faglega yfirstjórn og metnað. Staða mála í deildinni og lítil tiltrú þeirra sem til þekktu áttu m.a. þátt í því að ákveðið var að stofna embætti sérstaks saksóknara í lok árs 2009 í stað þess að efla efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra.“ Haraldur Johannessen ríkislög- reglustjóri getur þess í ársskýrslu embættisins að á fyrsta fundi með Ögmundi Jónassyni innanríkisráð- herra hafi hann lagt til að verkefni efnahagsbrotadeildarinnar yrðu færð til embættis sérstaks saksókn- ara. Helgi Magnús Gunnarsson veitti efnahagsbrotadeild ríkislögreglu- stjóra forstöðu frá árinu 2007 en var í leyfi frá þeim störfum frá síðast- liðnu hausti er hann var kosinn vara- saksóknari Alþingis. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra skipaði Helga Magnús í embætti vararíkissaksóknara nú í ágústbyrjun. Ekki náðist í innan- ríkisráðherra við vinnslu fréttarinnar.  Minnisblað Mat Fyrrverandi ríkissaksóknara Efnahagsbrotadeild skorti faglega yfir- stjórn og metnað Í minnisblaði Valtýs Sigurðssonar, fyrrverandi ríkissaksóknara, og Sigríðar elsu kjartansdóttur, þá setts vararíkissaksóknara, í febrúar kom fram hörð gagnrýni á efnahagsbrotadeild ríkislög- reglustjóra. deildin hefur nú verið sameinuð embætti sérstaks saksóknara. Valtýr Sigurðsson, fyrrverandi ríkissaksóknari. Bent var á að flest mál sem send hefðu verið til efna- hagsbrota- deildarinnar hefði dagað uppi. Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is 4 fréttir Helgin 26.-28. ágúst 2011
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.