Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.08.2011, Síða 16

Fréttatíminn - 26.08.2011, Síða 16
Tónsalir er ryþmískur tónlistarskóli þar sem leitast er við að viðhalda gleðinni í hljóðfæranáminu. Upplýsingar og innritun á www.tonsalir.is ...BARA GAMAN... Bæjarlind 12. Sími 534-3700. www.tonsalir.is Nú er tekið á móti umsóknum á eftirfarandi byrjandanámskeið: * Gítarnámskeið * Trommunámskeið * Partýgítarnámskeið * Gítarnámskeið fyrir leikskólastarfsfólk Námskeið fyrir fullorðna: Munið frístundakort ÍTR og endurgreiðslu stéttarfélaga! SKEMMTILEG TÓNLISTARNÁMSKEIÐ Næstu námskeið heast í september ! Í vor mátti lesa margar fréttir á íþróttasíðum blaðanna um fyrirhuguð kaup knattspyrnu-liðsins Ajax Amsterdam á Kolbeini Sigþórssyni. Knattspyrnu- áhugamenn kættust yfir því að einn efnilegasti leikmaður Íslands væri á leið í herbúðir eins sögufrægasta fótboltaliðs í heimi. Á sama tíma veittu fáir því athygli þegar Lincoln City féll úr ensku deildarkeppninni. Lincoln hafnaði í næstneðsta sæti í því sem lengi vel nefndist fjórða deild á Englandi, en heitir nú önnur deild, þökk sé mark- aðs- og auglýsingamönnum. Auðvit- að var ekki við því að búast að sögur af hnignun Lincoln City yrðu fyrir- ferðarmiklar í blöðunum. „Púkarnir“ frá Lincoln (sem draga viðurnefni sitt af þjóðsögu frá miðöldum um tvo púka sem gengu berserksgang í dómkirkju staðarins, en var breytt í stein) hafa aldrei verið nálægt því að komast í efstu deild og raunar lengst af leikið í tveimur neðstu deildunum. Í nærri 130 ára sögu sinni hefur Lin- coln ekki eignast einn einasta ensk- an landsliðsmann. Sumarið 1949 var málum nokkuð öðruvísi háttað. Lincoln og Ajax komu bæði í heimsókn til Reykavík- ur, en það var ekkert vafamál hvorir gestanna vöktu meiri áhuga heima- manna. Englendingar voru álitnir konungar fótboltans – svo góðir að fram til 1950 töldu þeir það fyrir neð- an sína virðingu að taka þátt í heims- meistarakeppninni í knattspyrnu. Þótt Lincoln kolfélli úr annarri deild- inni þetta sama vor var heimsóknin talin stórviðburður. Áhorfendur fjöl- menntu og góður hagnaður varð af ævintýrinu. Troðningur í Tívolí Öðru máli gegndi um Ajax. Liðið var vissulega kynnt sem eitt það besta sem hingað hefði komið (en það var reyndar sagt um alla gesti) og sér- staklega tiltekið hvað Hollending- arnir hefðu heimsótt mörg lönd í gegnum tíðina. Knattspyrnuáhuga- menn létu ekki platast. Aðsókn var undir væntingum og hefði orðið tap á förinni ef skipulagningarnefndin hefði ekki gripið til þess ráðs að selja alltof marga miða á kveðjuhófið sem haldið var í Tívolíinu í Vatnsmýrinni. Ekki var þó íburðinum fyrir að fara í tengslum við komu Ajax. 22 manna hópur leikmanna, liðstjóra og stjórn- armanna flaug með Geysi til Reykja- víkur og fór heim sjóleiðina með Heklu. Gist var á stúdentagörðum Háskólans. Miðasala á leikina fjóra átti að standa undir ferða- og uppi- haldskostnaði og var litið á heim- sóknir af þessu tagi sem vænlega tekjuöflun. Í fyrsta leiknum sigraði Ajax Ajax varð eitt sigursælasta lið í Evrópu með Johan Cruijff sem leikmann og þjálf- ara. Ljósmynd/Nordic Photos/Getty ImagesÞegar Rikki afgreiddi Ajax nýkrýnda Íslandsmeistara KR 2:0, nokkuð auðveldlega í leiðindaveðri. Því næst mættu gestirnir Valsmönn- um, sem sigruðu 1:0 með marki Halldórs Halldórssonar í hvínandi roki á Melavellinum. Þriðja leikinn vann sameiginlegt lið Fram og Vík- ings. Urðu þessi góðu úrslit til þess að glæða áhuga Reykvíkinga á loka- leiknum þar sem hálfgert landslið Íslands olli miklum vonbrigðum og fékk á baukinn, 5:2. Rikki og Bjarni Guðna Vert er þó að staðnæmast betur við þriðju viðureignina, milli Ajax og Fram/Víkings. Henni lauk með stórsigri Reykjavíkurliðanna. Ajax skoraði tvívegis en Framarar og Víkingar fimm sinnum. Samkvæmt frásögnum sumra dagblaðanna skor- aði Framarinn Ríkharður Jónsson öll mörk leiksins, þar af fjögur eft- ir sendingu frá Víkingnum Bjarna Guðnasyni (síðar fræðimanni við Háskólann og alþingismanni). Fréttaritari Morgunblaðsins treysti sér þó ekki til að skera úr um hver hefði potað inn einu markinu, sem kom úr þvögu. Í ljósi þess sem síðar gerðist, hljóta þessi úrslit að vekja furðu. Árið 1949 var Ísland þróunarland á knattspyrnusviðinu, þar sem bestu félagslið voru vart komin af því stigi að leika á jafnréttisgrundvelli gegn áhöfnum erlendra skipa. Hvernig má þá skýra stórsigur á Ajax Amster- dam, liði sem tuttugu árum síðar var talið það besta í heiminum og varð þrefaldur Evrópumeistari 1971 til 1973? Sú spurning vaknar eðlilega hvort Ajax hafi í raun og veru sent sitt besta lið til Íslands sumarið 1949. Það var þó raunin. Leikmenn Ajax í Íslands- förinni voru flestir fastamenn í mót- um heima fyrir. Engin ástæða er til að ætla að leikirnir í Reykjavík hafi ekki verið teknir alvarlega. Hér verður að hafa í huga að árið 1949 voru Hol- lendingar fjarri því sú knattspyrnu- þjóð sem síðar varð. Landslið þeirra var eitt hið lakasta í Vestur-Evrópu og félagsliðin veik. Hollenskir knatt- spyrnumenn voru áhugamenn til árs- ins 1954, þegar sérkennileg útfærsla af hálf-atvinnumennsku var heimiluð og deildarkeppnin endurskipulögð í framhaldinu. Ajax sigrar heiminn Hálf-atvinnumennskan var ríkjandi í Hollandi fram á miðjan sjöunda áratuginn. Samhliða knattspyrn- unni sáu leikmenn sér farborða með því að reka búðarholur eða sinna auðveldum störfum í fyrir- tækjum í eigu stjórnarmanna lið- anna. Johan Cruijff, sem fæddur er 1947, er sagður annar hollenski at- vinnumaðurinn í heimalandi sínu á eftir liðsfélaga sínum hjá Ajax, Piet Keizer (f. 1943). Þeir Keizer og Cruijff voru einmitt lykilmenn í þeirri byltingu sem átti sér stað hjá Ajax um og eftir 1965. Það ár tók ungur þjálfari, Marinus Jacobus Hendricus Michels, við stjórn liðsins. Hann þróaði þegar sitt eigið leikkerfi – totalvoetbal – sem fólst í hröðum samleik þar sem hver útileikmaður var fær um að gegna hvaða stöðu sem var á vell- inum. Undir stjórn Michels um- breyttist Ajax á örfáum misserum úr því að vera lið á pari við sterk- ari félög Norðurlanda yfir í að vera besta og mest spennandi félagslið Evrópu. Hollenska landsliðið tók viðlíka framförum og í byrjun átt- unda áratugarins var Holland það land í heiminum sem knattspyrnu- áhugamenn horfðu til sem upp- sprettu nýrra hugmynda og snjallra leikmanna. Umskiptin voru ótrúleg, ekki hvað síst fyrir Rinus Michels, sem hefur varla getað látið sig dreyma um slík metorð á Melavellinum sumarið 1949 þegar hann lék á miðjunni í lánlausu Ajax-liði og horfði á Ríkharð Jónsson skora að vild. Og þótt leitað væri í öllum ís- lenskum einkaskjalasöfnum er ólíklegt að nokkurs staðar leynist eiginhandaráritun Hollendings- ins Michels, páruð á leikskrá frá 1949. Öllu meiri von væri til að finna snepil með undirskrift Tonys Emery, því eins og sagði í auglýs- ingu: „Tony Emery, sem leikur mið- framvörð annað kvöld með Lincoln City er 20 ára gamall. Þekkt breskt knattspyrnufjelag bauð ¼ milljón krónur í hann, um leið og hann var að leggja af stað í Íslandsferðina, en því var neitað. – Sjáið snillinginn!“ Stefán Pálsson ritstjorn@frettatiminn.is Um Íslandsheimsóknir knattspyrnumanna 1949 og breyting- arnar hjá hollenska stórliðinu Ajax á sjöunda áratugnum 14 fótbolti Helgin 26.-28. ágúst 2011

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.