Fréttatíminn - 26.08.2011, Side 22
De Niro og
Statham ekki
reknir eins
og sauðfé í
rétt
FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PAR-
KET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...
TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...
FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PAR-
KET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...
TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...
FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PAR-
KET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...
TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...
Þúsundir fermetra
af flísum með
20 -70% afslætti
Eikar plankaparket
kr 4.990 m2
Allar baðherbergisvörur
25% afsláttur
ÚTSALA
É
g keypti bókina með stráknum
sem leikstýrir myndinni, Gary
McKendry, og þetta er fyrsta
myndin hans í fullri lengd en við
höfum áður gert saman stuttmynd-
ina Everything in This Country Must sem var
tilnefnd til Óskarsverðlauna 2005. Sir Ranulph
er frændi Fiennes-leikarafjölskyldunnar og
bókin fjallar mikið um veru hans í SAS, og þá
sérstaklega þessa árás sem gerð var á Oman í
júlí 1972. Myndin gerist svo 1980 og fjallar um
málaliða sem sjeikinn í Oman ræður til þess að
drepa þrjá sérsveitarmenn sem drápu þrjá syni
hans í árásinni,“ segir Sigurjón og bætir því við
að þessi saga sé mjög áhugaverð, ekki síst í ljósi
þess að þrír af þeim níu SAS-mönnum sem tóku
þátt í árásinni létust á einkennilegan hátt árið
1980.
Killer Elite var mikið til tekin í Ástralíu en
einnig Jórdaníu og Marokkó. Þrátt fyrir um-
gjörðina, flóknar bardagasenur og glæsilegt
leikaralið er myndin ekki sú dýrasta sem Sigur-
jón hefur framleitt. „K-19 var til dæmis dýrari en
þetta er engu að síður stór fjárhagsáætlun fyrir
sjálfstæða mynd. Þetta er alveg 65 milljóna doll-
ara mynd, sem er ansi mikið.“
Að landa stórlöxum
„Þetta er nú eiginlega voðalega einfalt í lýs-
ingu,“ segir Sigurjón þegar hann er spurður
hvernig honum hafi tekist að ná jafn eftirsóttum
leikurum og Jason Statham, Robert De Niro og
Clive Owen saman í mynd. „Til þess að byrja
með verður maður að hafa gott handrit og leik-
stjórinn verður líka að vera góður. Síðan fer
maður bara að reyna að safna saman leikur-
unum og í þessu tilfelli tók það nú dálítið langan
tíma. Við vorum samt ekki búnir að senda þetta
á neinn nema Jason vegna þess að leikstjórinn
hafði alltaf viljað hann. Jason leist vel á þetta og
sagðist vilja vera með og þá byrjaði boltinn að
rúlla. Jason er auðvitað mikil aksjón-stjarna og
þegar hann var kominn um borð fóru fjármögn-
unaraðilar að sýna verkefninu áhuga. Holly-
wood er í raun mjög lítil þannig að þetta spurðist
hratt út og handritið fór að vekja áhuga.
Við höfðum líka áhuga á að fá Clive en hann
hafði verið upptekinn og svo sagði umboðsmað-
urinn hans mér að Clive myndi aldrei leika neitt
aukahlutverk á móti Jason. En við sýndum þeim
handritið og leikstjórinn útskýrði fyrir Clive að
hans rulla væri í raun ekkert aukahlutverk enda
er hans hlutverk líka mjög stórt og þetta endaði
með að hann sló til.“
Jason tók mjög
virkan þátt í þessu
öllu vegna þess að
hann kom fyrstur
um borð og var
með í ferlinu frá
upphafi. Ég myndi
nú ekki segja að
hann væri ljúfur.
Sigurjón Sighvatsson
keypti fyrir sjö árum
kvikmyndaréttinn að
bókinni The Feather Men
eftir ævintýramanninn
Sir Ranulph Fiennes sem
hefur meðal annars þjónað
í sérsveit breska hersins,
SAS. Sigurjón lauk nýlega
tökum á spennumyndinni
The Killer Elite sem byggð
er á bókinni og skartar
ekki ómerkari mönnum en
Jason Statham, Robert De
Niro og Clive Owen í aðal-
hlutverkum. Sigurjón fór
beint úr kvikmyndatökum
í Ástralíu á Snæfellsnesið
þar sem hann slakar á fyrir
frumsýningarhasarinn
sem brestur á í septem-
ber. Þórarinn Þórarinsson
ræddi við Sigurjón um
Killer Elite og samstarfið
við stórstjörnurnar þrjár.
Sigurjóni Sighvatssyni tókst að
fá stórstjörnurnar Robert De
Niro, Jason Statham og Clive
Owen til liðs við sig í Killer Elite
sem hann lýsir sem spennu-
mynd með hasarívafi en ekki
hasarmynd með spennuívafi.
20 viðtal Helgin 26.-28. ágúst 2011