Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.08.2011, Síða 23

Fréttatíminn - 26.08.2011, Síða 23
viðtal 21 Helgin 26.-28. ágúst 2011 * Öll fargjöld miðast við fl ug báðar leiðir, skattar og gjöld innifalin, verð miðast við 20. júlí 2011 og er háð framboði. Um helgar og á almennum frídögum getur framboð verið takmarkað. Ferðatímabil: 1. október – 31. mars 2012 nema Peking og Tokyo sem verður 1. nóvember – 31. mars 2012. fl ysas.is Reykjavík Báðar leiðir frá* Haugasund Kr. 40,500 Bodø Kr. 52,800 Álasund Kr. 44,900 Bergen Kr. 39,200 Stafangur Kr. 39,200 Reykjavík Báðar leiðir frá* Þrándheimur Kr. 44,900 Tromsö Kr. 52,800 Peking Kr. 102,600 Tokyo Kr. 104,800 FULLT AF LÁGUM FARGJÖLDUM LIGGJA Í LOFTINU Bókaðu fyrir 29. ágúst 2011 Skoðaðu síðuna okkar í snjallsímanum þínum Sigurjón segir að það sé enginn hægðarleikur að fá hæfileikafólk í slíkum þungavigtarflokki saman í mynd. „Enda kosta svona leikarar 12 til 13 milljónir dollara en það tókst alla vega að koma þessu öllu saman.“ Fagmaður með skoðanir Þá vantaði þriðja manninn og Sigurjón frétti að De Niro væri laus og ákvað að reyna að nálgast hann. „Hann las handritið og fannst það áhugavert en gerði samt smá at- hugasemdir við sína eigin persónu. Við Gary ræddum við hann í fram- haldinu. Leikstjórinn var að sjálf- sögðu mjög stressaður því hann hafði aldrei leikstýrt mynd og nú þurfti hann að fara að svara spurn- ingum frá Robert De Niro, bæði um kvikmyndina og hvernig hans pers- óna ætti að vera og af hverju hún væri eins og hún væri. En það gekk bara mjög vel og De Niro sagðist ætla að hugsa málið. Eftir þennan fund var rullan hans stækkuð en hún var frekar rýr í byrjun. Þetta var gert í samvinnu við De Niro, þótt hann hafi auðvitað ekki skrifað neitt, en hann kom með ákveðnar athugasemdir og töluvert innlegg í persónuna sína. Hann spurði margra spurninga eins og kannski fagfólk gerir. Hann er fagmaður fram í fingurgóma. Hann kom svo mun betur undirbúinn en allir áttu von á í tökur. Ég veit samt ekki af hverju allir héldu að hann yrði ekki vel undirbúinn.“ Statham er grjótharður Jason Statham hefur fest sig í sessi sem einhver öflugasti hasarleikari síðustu ára og hefur farið hamförum í Transporter- og Crank-myndunum, The Expenda- bles og The Mechanic. Líkamlegt atgervi hans skemmir heldur ekki fyrir en hann keppti á árum áður með liði Breta í dýfingum á Ólympíuleikunum. „Jason tók mjög virkan þátt í þessu öllu vegna þess að hann kom fyrstur um borð og var með í ferlinu frá upphafi. Ég myndi nú ekki segja að hann væri ljúfur,“ segir Sigurjón þegar hann er spurður hvort Statham sé sami harðjaxlinn í eigin persónu og á hvíta tjaldinu. „Hann er aftur á móti afar flinkur og rosalega nákvæmur. Hann þekkir kannski hasarinn betur en flestir og hugar að öllum smáatriðum. Honum er til dæmis ekki sama hvernig menn eru kýldir og hvort eða hvernig vinstri handar höggi er fylgt eftir með hægri handar höggi, eða hvernig stýrinu er snú- ið eftir því hvort verið er að keyra á 50 kílómetra hraða eða 100, og hver viðbrögðin eru.“ Línudans með atvinnumönnum „Það er mjög gaman að vinna með svona leikurum enda eru þetta topp atvinnumenn og ég myndi segja að þeir hafi allir þrír borið gagnkvæma virðingu hver fyrir öðrum þótt þeir hafi aldrei hist áður. De Niro er auðvitað goð- sögn og þeir gerðu að sjálfsögðu allir sínar kröfur. Maður fer ekk- ert með þá eins og sauðfé í rétt. Þannig að þetta er ákveðinn línu- dans, og þá líka á milli þeirra allra þannig að þeim finnist þeim öllum gert jafn hátt undir höfði. Þetta á ekki síst við um hlutverk þeirra og persónur. Stundum stangaðist það sem Clive vildi að væri að gerast á við það sem Jason vildi og þá þurfti bara að fara sáttasemjaraleiðina í því. Kvikmyndagerð er samvinna en hún er ekki lýðræði og það er mikill munur þar á, og það er hlut- verk framleiðandans að sameina þessi öfl þannig að öllum finnist hlustað á þá en tryggja um leið að rödd leikstjórans og upphaflegur tilgangur handritsins glatist ekki. Það er stundum hætta á því.“ Í Killer Elite leikur Jason Statham fyrrverandi SAS-mann sem neyðist til að taka að sér það verkefni að elta uppi og drepa þrjá fyrrum kollega sína úr sérsveitinni til þess að bjarga lífi læriföður síns sem Robert De Niro leikur. Þessir þrír menn, sem eru vitaskuld bráðfeigir þegar Statham er kominn á hæla þeirra, hafa unnið það til saka að hafa drepið þrjá syni sjeiks í Oman í frægri árás sveitarinnar á Oman árið 1972. Clive Owen leikur svo SAS-mann sem tók ekki þátt í þeirri árás en stendur dyggan vörð um félaga sína sem eru orðnir að skotmarki í hefndarleiðangri sjeiksins. Þannig að óhætt er að segja að stálin stinn mætist þegar þessum þraut- þjálfuðu hermönnum lýstur saman 1980, átta árum eftir árásina í Oman. Sá sigrar sem þorir! Sérsveit breska hersins þykir ein sú besta á sínu sviði og í hana komast bara járngrimm hörkutól sem berj- ast undir slagorðinu Who Dares Wins. Sveitin á rætur að rekja aftur til ársins 1941 en varð heims- þekkt eftir frækilega árás á sendiráð Írans í London árið 1980 þar sem markmiðið var að frelsa 26 gísla. Árásin tók 17 mínútur, einn gíslanna féll og tveir særðust alvarlega en sérsveitin felldi alla hryðjuverkamennina nema einn. Robert De Niro og Jason Statham snúa bökum saman í grimmilegri baráttu við gamla félaga úr SAS. Vopnabræður berjast

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.