Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.08.2011, Side 28

Fréttatíminn - 26.08.2011, Side 28
PI PA R\ TB W A · SÍ A · 11 21 74 b m va lla .is Sími: 412 5050 Fax: 412 5001 sala@bmvalla.is BM Vallá ehf. Bíldshöfða 7 110 Reykjavík Gluggar eru ekki bara gler Veldu háeinangrandi PRO TEC Classic glugga sem spara orku BM Vallá býður vandaðar glugga lausnir frá PRO TEC í Danmörku. Gluggarnir eru úr áli og tré og henta vel fyrir íslenskar aðstæður. PRO TEC gluggar hafa verið seldir á Íslandi frá 1993 og verið prófaðir og vottaðir gagnvart íslensku vind- og slagregnsálagi. Glerið er háeinangrandi sem lækkar hitunar kostnað og sparar orku. Hver gluggi er sér smíðaður eftir óskum viðskipta vinar um stærð, lit og lögun. Kynntu þér PRO TEC hjá BM Vallá áður en þú velur glugga. Það gæti borgað sig.  Fótbolti Stórleikur í enSku úrvalSdeildinni Helvíti og himnaríki Líf knattspyrnustjóranna Alex Ferguson og Arsene Wenger er ólíkt nokkrum dögum fyrir stórleik Manchester United og Arsenal á Old Trafford á sunnudag. a lex Ferguson og Arsene Wenger eru tveir sigur- sælustu og virtustu knatt- spyrnustjórar í ensku úr- valsdeildinni. Þeir hafa eldað grátt silfur saman undanfarin sextán ár – fjandmenn innan vallar en miklir mátar utan hans. Lið þeirra, Manchester United og Arsenal, hafa borið höfuð og herðar yfir andstæð- inga sína í deildinni undanfarin hálf- an annan áratug þótt heldur hafi dregið í sundur með þeim, United í hag, á síðustu árum. Sjaldan eða aldrei hefur þó staða þeirra verið ólíkari heldur en nú. Á meðan ann- ar stýrir liði sem virðist einungis verða betra og betra, þarf hinn að horfa á eftir bestu leikmönnum sínum til annarra liða. Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur átt erf- itt ár. Í febrúar átti liðið möguleika á því að vinna alla fjóra titla sem í boði voru. Í maí stóð það uppi með engan titil eftir að hafa hrunið eins og spilaborg á lokasprettinum. Sú stað- reynd blasti við að sæti í meistaradeildinni var ekki einu sinni tryggt – erfitt umspil beið Arsenal nú í haust. Hafi vorið verið vont fyrir Wenger þá var sumarið verra. Sápuóperan í kringum fyrirliðann Cesc Fabregas hélt áfram og að lokum gerð- ist hið óumflýjanlega – hann var seldur til Barcelona. Annar lykilmaður, Samir Nasri, var líka seldur nú í vikunni til Manchester City. Áður hafði vinstri bakvörðurinn Gael Clichy farið sömu leið og Kamerúnanum Emmanuel Eboue var grýtt til Galatasary. Í þeirra stað hafa kom- ið Fílabeinsstrendingurinn Gervinho, sem er frægastur fyrir ljótustu hárgreiðsluna í boltanum, og tveir unglingar, Alex Ox- alade-Chamberlain frá Southampton og Carl Jenkinson frá Charlton. And- og að- gerðarleysi Wengers á leikmannamark- aðnum hefur gert marga stuðningsmenn Arsenal brjálaða. Wenger er varkár, sennilega varkárari en góðu hófi gegnir, með peninga félagsins og hefur marg- oft lýst því yfir að Arsenal verði að vera sjálfbært félag. Launastefna félagsins er stíf og ein af ástæðum þess að Nasri fór og illa gengur að laða toppleikmenn til félagsins. Hriktir í stoðum Byrjun tímabilsins hefur verið slæm. Jafntefli gegn Newcastle og tap gegn Liverpool þykir ekki merkilegt hjá félagi eins og Arsenal sem stefnir á enska meistaratitilinn á hverju ári. Fyrstu góðu fréttirnar í lang- an tíma komu þó á miðvikudags- kvöldið þegar liðið sló út Udinese í umspili meistaradeildarinnar. Sá árangur er ágætis veganesti í leikinn gegn Manchester United á sunnudag- inn. Ýmislegt bendir þó til þess að ekki sé allt með felldu hjá Arsenal. Lykilmenn eru horfnir á braut, illa gengur að fá nýja menn og í fyrsta sinn frá því að Arsene Wenger kom til félagsins eru uppi efasemdaraddir um hann. Í fyrsta sinn eru menn farnir að velta þeim möguleika fyrir sér að hann sé ekki óskeikull. Til að bæta gráu ofan á svart virðast sam- skipt i Wengers við stjórn félagsins vera stirð. Þegar öllu er á botninn hvolft lítur út fyrir að Wenger hafi átt sælli daga í stjórasætinu hjá Arsenal – svo ekki sé fastar að orði kveðið. Á bleiku skýi Á öðrum stað í Englandi svífa menn hins vegar á bleiku skýi. Í Manc- hester-borg undir- býr Alex Ferguson atlöguna að tuttug- asta meistarat it l i Manchester United. Sæluvíma Fergusons er í hróplegu ósamræmi við vonbrigði Wengers. Ferguson kaupir leikmenn til að styrkja liðið og missir engan. Liðið í ár lítur út fyrir að vera sterkara en það var í fyrra. Ungir leikmenn, á borð við Phil Jones og As- hley Young, líta út fyrir að hafa spilað með United- liðinu í áratug. Ungir leik- menn á borð við Tom Cle- verley og Danny Welbeck hafa stigið fram sem full- burða leikmenn og aðrir verða bara betri og betri. Byrjunin á tímabilinu lof- ar líka góðu. Tveir sigrar í tveimur leikjum og sig- ur á grönnunum í Manc- hester City í leiknum um Samfélagsskjöldinn. Lífið gæti einhvern veg- inn ekki verið betra fyrir Ferguson – sannkallað himnaríki samanbor- ið við helvíti Wengers. oskar@frettatiminn.is Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur átt betri daga. Ljós- mynd/Nordic Photos/Getty Images Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur sjaldan lifað betri daga. Ljós- mynd/Nordic Photos/ Getty Images Á meðan annar stýrir liði sem virðist einungis verða betra og betra þarf hinn að horfa á eftir bestu leik- mönnum sínum til annarra liða. 26 fótbolti Helgin 26.-28. ágúst 2011

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.