Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.08.2011, Qupperneq 30

Fréttatíminn - 26.08.2011, Qupperneq 30
Með hjartað á réttum stað Á ég ekki bara að vera hippaleg í myndatök- unni?“ spyr Hend- rikka Waage í síman- um daginn áður en við hittumst. En „hippi“ er kannski ekki fyrsta orðið sem manni kem- ur í hug þegar þessi svartklædda fegurðardís skálmar inn á fundar- staðinn í slá úr léttu, gegnsæju efni sem liðast á eftir henni eins og kolsvört þokuslæða. Vissulega má þó fallast á að tilvísanir í tíma- bil friðelskandi blómabarna séu til staðar í klæðaburði hennar. Fyrir það fyrsta er Hendrikka með að minnsta kosti þrjú, ef ekki fleiri, hálsmen sem minna á verndargripi af einhverju tagi. Það glampar á stórar, ferkantaðar málmflögur, sem við nánari skoðun eru úr silfri og ristar dularfullum austur- lenskum táknum. Öll eru þessi dýrindis hálsmen úr hennar eigin skartgripalínu, Hendrikka Waage Talisman Collection, og við gerð hennar sótti Hendrikka innblástur til Tíbet, Afríku og Arabíu. Sumarfríi Hendrikku á Íslandi er að ljúka. Hún á bókað flug heim til Bretlands daginn eftir viðtalið og segist hafa átt ljúfan mánuð í faðmi fjölskyldu og vina. Fjöl- skyldan er sá strengur sem togar hvað fastast í hana frá Íslandi. Hér heima á hún foreldra og þrjár syst- ur og þegar hún er á landinu gistir hún yfirleitt hjá einni systur sinni. Úti í Bretlandi býr hún með syni sínum, Guðjóni Kjartani, í litlu sveitaþorpi rétt fyrir utan London. Hendrikka er með vinnuaðstöðu á heimili sínu en segist svo sem geta unnið vinnuna sína hvar sem er í heiminum. Sem hún hefur líka gert svikalaust því störf hennar í gegnum tíðina hafa meðal annars leitt hana til Japans, Bandaríkj- anna, Indlands og Rússlands. Rikka fer til Japans Í október kemur út þriðja barna- bók Hendrikku í bókaflokknum Rikka og töfrahringurinn en í bókunum ferðast sögupersónan Rikka um víða veröld. Sögusviðið í fyrri bókum hennar var Ísland og Indland en að þessu sinni liggur leiðin til Japans. Inga María Brynj- arsdóttir teiknar myndirnar og hluti af höfundarlaununum rennur til góðgerðarsjóðs Alþingis barna (Kids Parliament). Hendrikka er forseti samnefndra góðgerðarsam- taka og stýrir þeim en þau standa m.a. fyrir alþjóðlegu barnaþingi á ári hverju. Þú hagnast ekkert á þessari bókaútgáfu sjálf? „Nei, þetta er nú eiginlega bara hugsjónaverkefni,“ svarar Hend- rikka að bragði og brosir. „Þetta er áhugamálið mitt. Ég held að þetta sé skemmtilegasta og mest gefandi verkefnið mitt hingað Hendrikku Waage, skartgripahönnuði og athafnakonu, vex fátt í augum. Henni gæti til dæmis hugkvæmst að taka upp símtólið og fá Dalai Lama eða Sameinuðu þjóðirnar til að starfa með sér að góðum málefnum. Og þá gerir hún það bara. Hendrikka sagði Heiðdísi Lilju Magnúsdóttur frá hugsjónaverkefnunum sem hafa hertekið líf hennar síðustu árin. Myndir/Hari til. Þetta er ekki spurning um að hagnast á neinu. Maður verður svo sem ekki milljónamæringur á því að vera barnabókahöfundur á Íslandi. Þetta er bara eitthvað sem mig langar til að gera,“ segir Hendrikka og nefnir að í haust komi einnig Rikku-tækifæriskort í verslanir. Sameinuðu þjóðirnar völdu fyrstu bók Hendrikku, Rikka og töfrahringurinn á Íslandi, til að auka skilning á menntunar- og um- hverfismálum á heimsvísu. Þetta var tilkynnt með formlegum hætti í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóð- anna í New York þegar bókin kom út árið 2010. „Mér var boðið að kynna út- gáfu bókarinnar hjá Sameinuðu þjóðunum í New York, sem gekk mjög vel. Ég fékk stuðning þaðan af því að Sameinuðu þjóðirnar eru með okkur í Kids Parliament-verk- efninu,“ útskýrir Hendrikka. Hvernig byrjaði það verkefni? „Hugmyndin kviknaði á Íslandi, fyrir þremur árum, þegar ég var stödd á Þingvöllum með nokkra útlendinga sem eru mjög virkir í góðgerðarsamtökum. Ég var að útskýra fyrir þeim að Alþingi væri elsta, starfandi þing í heim- inum og í bílnum á leiðinni heim kom þessi hugmynd upp. Oft eru margir að vinna hver í sínu horni í stað þess að stilla saman strengi í skemmtilegu og gefandi verkefni. Þannig að hugmyndin að Alþingi barnanna kviknaði á Þingvöllum.“ Við höfðum bara sam- band við Dalai Lama og hann vildi vera með. Síðan er fullt af öðru fólki með okkur líka og það er enn að bætast í hópinn. Fólk vill sameinast um þetta. Heiðdís Lilja Magnúsdóttir hlm@frettatiminn.is Framhald á næstu opnu 28 viðtal Helgin 26.-28. ágúst 2011
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.