Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.08.2011, Blaðsíða 40

Fréttatíminn - 26.08.2011, Blaðsíða 40
4 heilsa Helgin 26.-28. ágúst 2011 L íkamsræktarstöðin Hreyfing býður upp á nýtt námskeið fyrir konur sem kallast „Hot fitness“. Andrúmsloftið í tímunum er rólegt og afslapp- að. Tímarnir eru nokkurs konar andstæða hopps og hamagangs en það eru engu að síður gerðar góðar og fjölbreyttar styrktaræfingar, og í lokin er teygt og slakað á. Námskeiðið er í samstarfi við heilsuvöru- verslunina Maður Lifandi, sem fræðir þátttakendur um hvernig þeir geti tileinkað sér meiri hollustu í mataræði og kennir hvernig matreiða megi góðan mat úr lífrænum hráefnum. „Það er verið að hjálpa fólki að taka þetta skref að heilbrigðu mataræði og góðri hreyfinu,“ segir Ágústa Johnson, framkvæmdastjóri Hreyfingar. Námskeiðið hefst á mánudaginn og er tvisvar í viku, 60 mínútur í senn. Boðið er upp á tíma kl. 6.10, 12 og 16.30. Hot fitness fer fram í 35 stiga heitum sal og er lögð áhersla á að styrkja djúpvöðva líkamans; kvið- og bakvöðva. Alhliða styrktaræfingar eru líka gerðar. En æfingarnar byggjast á eigin líkamsþyngd og lóðabelt- um. „Tímarnir eru krefjandi og eru ætlaðir þeim sem hafa lagt stund á æfingar áður. Í tímunum er svitnað gríðarlega. Það er ákveðin hreinsun sem fylgir því að svitna hressilega og konurnar gera góðar styrkt- aræfingar. Það er því verið að auka grunnbrennslu líkamans, en reglulegar styrktaræfingar auka grunn- brennsluna,“ segir Ágústa. Ekki átaksnámskeið „Þetta er ekki átaksnámskeið þar sem áhersla er á að léttast, heldur fyrir þær sem vilja neyta hollari matar, meira af grænmeti og lífrænum matvælum – í anda þess sem Maður lifandi stendur fyrir,“ segir Ágústa. Eins og fyrr segir er lögð áhersla á fjölbreyttar æfing- ar í Hot fitness. Ágústa segir það skipta sköpum fyrir þá sem vilja ná árangri og bæta líkamlegt atgervi. Hún segir að ef fólk geri alltaf sömu æfingarnar, staðni lík- aminn fljótt og þá næst að sjálfsögðu enginn árangur. Ágústa mælir með því að konur stundi Hot fitness og blandi því saman við þolæfingar, eins og t.d. að fara á göngubrettið eða jafnvel spinningtíma. Með því náist góður alhliða árangur í styrk, þoli og liðleika. Ágústa bendir á að þeim sem eru á námskeiðum hjá Hreyfingu býðst einnig að nota tækjasalinn og fara í opna tíma. Hreyfing býður upp á mikið úrval af fjöl- breyttum námskeiðum fyrir karla og konur. „Úrvalið er gott og því er til eitthvað fyrir alla,“ segir hún. Nám- skeiðið Fanta gott form er t.d. gríðarlega vinsælt. „Þar er mikið fjör og stemning en það byggist á snerpu, og er fyrir fólk sem vill fara alla leið og ná sér í súper topp form. Það er byggt upp svipað og Cross Fit og Boot Camp. Það eru gerðar stuttar, krefjandi æfingar í stuttan tíma í senn og styrktaræfingar á milli,“ segir Ágústa. Hraðferð fyrir þá sem eru í tímaþröng Það er misjafnt hve mikinn tíma fólk getur leyft sér í líkamsrækt. „Hraðferðin er tilvalin fyrir þá sem hafa lítinn tíma. Það eru stuttir tímar, 40 mínútur hver, tvisvar í viku, en gríðarlega áhrifaríkir. Við notum sérstök tæki STRIVE 1.2.3. sem bandaríski herinn notaði til að þjálfa sitt fólk. Tækin gera það að verkum að álagið á vöðvana er á þrjá mismunandi vegu, sem leiðir til skjótari árangurs. Þetta er alveg kjörið fyrir þá sem hafa lítinn tíma en vilja ná góðum árangri,“ segir Ágústa. KYNNING  NámsKEIð hjá hreyfingu Hot fitness fyrir konur sem vilja komast í flott form S nyrtivöruverslunin Signat-ures of nature sérhæfir sig í lífrænum og hreinum snyrtivörum. „Slíkar vörur eru taldar heilsusamlegri fyrir húð- ina,“ segir Anna María Ragnars- dóttir, framkvæmdastjóri fyrir- tækisins. „Við leggjum áherslu á góða þjónustu og að starfs- mennirnir þekki vel vöruna og efnin í henni.“ Hún segir að í flestum kemískum snyrtivörum séu sterk rotvarnarefni sem geti valdið ofnæmi og jafnvel talin vera krabbameinsvaldandi. Minni líkur séu á ofnæmisvið- brögðum þegar notaðar eru líf- rænar vörur. Þó tekur hún skýrt fram að hver sá sem sé með ofnæmi fyrir ákveðinni fæðu eða náttúrulegum efnum geti líka fengið ofnæmisviðbrögð við lífrænum snyrtivörum. „Viðskiptavinir hafa verið mjög ánægðir með vörurnar okkar og við eigum mjög trygga viðskiptavini því þær hafa reynst þeim vel. Fyrir það erum við afar þakklát og um leið gefur það okkur hugrekki til að halda áfram og gera betur. Vegna þess að varan er lífræn og inniheldur náttúruleg efni sem hafa róandi og græðandi áhrif hafa margir með húðkvilla leitað til okkar, til að mynda með exem og sórí- asis,“ segir Anna María. Hún rökstyður það, hversu vel við- skiptavinir hafa tekið vörunum, með því að benda á að fyrirtækið var stofnað við upphaf fjármála- kreppunnar og í fyrstu seldi það einungis vörur á einum litlum hilluvegg í annarri verslun, en hálfu ári síðar var það komið með versl- un í Smáralind. „Það er svo mikil vakning gagn- vart hreinni snyrtivöru.“ Vinna ná ið með verksmiðj- unni Fyrirtæk- ið vinnur náið með verksmiðjunni sem framleið- ir flestar vörurnar, og getur því stýrt því hvað fer í kremin. „Með þessu móti getum við sérhæft okkur fyrir íslenskan markað,“ segir hún. Vörur fyrirtækisins eru vottaðar af Ecocert, sem er grænn stimpill og þýðir að þær uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til lífrænna snyrtivara. „Við eigum líka í góðu samstarfi við yndislega konu fyrir austan sem sérframleiðir fyrir okkur gæða ilmkerti.“ Signatures of natures leggur áherslu á að fólk geti tekið með sér prufur heim, sem Anna María segir að sé óalgengt eftir að þrengja tók að í efnahagslífinu. „Við viljum endilega leyfa fólki að fara með vöruna svo að það geti verið visst um að hún henti húðinni,“ segir hún og nefnir að húðgerð fólks sé mismunandi. spennandi tímar fram undan „Það eru spennandi tímar fram undan,“ segir Anna María. Frá og með 1. september verður „beauty bar“ opnaður. Þar geta konur keypt þriggja daga heimameð- ferðir. „Þetta er eins og að kaupa meðferð á stofu. Viðskiptavinir fá leiðbeiningar frá okkur fyrir hvert kvöld. Við blöndum græn- meti og ávexti í hreina grunninn okkar, kremið, til að auka virkn- ina. Þetta er því eins og matseðill fyrir húðina!“ Signatures of nature er líka komið í náið samstarf við heilsu- lindina Nordica Spa, en Anna María segir að nýir eigendur þess ætli að vera afskaplega umhverfisvænir og verði senni- lega fyrstir hér á landi með um- hverfisvæna heilsulind. „Við erum búin að hanna grænar meðferðir fyrir líkama og and- lit. En vörurnar koma frá okkur, og svo önnumst við fræðslu fyrir snyrti- fræðinga heilsulindar- innar. Þar verður lögð áhersla á persónulega þjónustu.“ KYNNING  sIGNaturEs of NaturE hefur vaxið hratt Mikil vakning gagnvart hreinum snyrtivörum ágústa Johnson, framkvæmdastjóri Hreyfingar KYNNING  DaNssKólI jónS PéturS og Köru góð hreyfing Fjölbreytt námskeið D ansskóli Jóns Péturs og Köru býður upp á fjölbreytt nám- skeið fyrir alla aldurs- hópa á haustönn og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Skólinn hefur ráðið til sín nýja kennara sem kenna nýjustu dans- stílana. Hinn kunni tónlistarmaður Júlí Heiðar mun kenna hiphop og bræðurnir Danny og Nonni munu sjá um kennslu í break- og street-dansi. Sem fyrr verður boðið upp á námskeið í barnadönsum, suður-amerískum dönsum, ballroom-döns- um, salsa, freestyle og zumba. Dans er frábær leið til að styrkja sál og líkama. Að fara í dansskóla er góð hreyfing en ekki síst góð leið til að auka sjálfstraust og öryggi. Fyrir börn og unglinga er í dansinum að finna mikla hreyfingu og útrás og einnig er lögð mikil áhersla á agaða framkomu. Dans reynir á samhæfingu hreyfinga dansarans og tónlistar og í paradansi bætist við samhæfing við hreyfingar dans- félagans. Í fullorðinshópum eru pör sem dansa saman og á þessum tímum er fólk farið að leita meira inn á við. Í dansinum fá pör góða hreyfingu, skemmtilegan félagsskap og, síðast en ekki síst, samveru. Oft er það svo að pör sækja sér hreyfingu sitt í hvoru lagi en í dans- inum sameinast þau og eiga sinn tíma saman einu sinni í viku. Anna María Ragnarsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.