Fréttatíminn - 26.08.2011, Side 52
svona verk. Göturnar sem eru lagðar til grundvallar
fyrsta bindinu sýna mikla vídd: Hér koma saman
embættismenn og kaupmenn, iðnaðarmenn og
múgafólk, og í hverri línu við hvert nafn er að finna
örlagasögu sem opnar okkur víddir inn í hina fjöl-
breyttu þjóðleifð sem hér varð til upp úr aldamótun-
um þegar fólkið úr sveitunum tók að flytjast á mölina.
Hér er líka að baki sá háski sem fólk um aldamótin
bjó við: Hvernig bráðapestir gerðu ekki mannamun,
hvernig sjúkdómar lögðu unga sem gamla að velli
og hvernig sjórinn heimtaði sinn toll af sókn á miðin
og til annarra landa. Saga byggðar við þessar götur
opnar líka sýn á þjóðflutninga af þrennum toga: Áður
var nefnt hvernig þjóðin fór úr dreifbýli í þéttbýlið;
hér má líka sjá hvernig landflóttinn var á tímum
vesturferðanna og hvernig síðasti kapítulinn af þeirri
sögu teygði sig fram yfir stríðið seinna. Þá vekur
það undrun lesanda að hingað kemur víða úr danska
konungsríkinu og nálægum löndum ungt fólk, karlar
og konur, til vinnu og sest hér að; sumir til lang-
dvalar, aðrir til skemmri tíma. Reykjavík var á fyrstu
áratugum aldarinnar býsna fjölþjóðleg borg: Danir,
Færeyingar, Norðmenn, Svíar, Englendingar, Skotar
og Þjóðverjar setjast hér að. Margir þeirra eiga hér
afkomendur, hingaðkoma þeirra verður samfélaginu
til góðs á marga vegu, fleytir okkur fram. Af því má
margt læra nú.
Fyrsta bindið af ritröðinni Reykvíkingar er því
afar gleðileg viðbót við flóru bóka um borgina. Hún
er ekki gallalaus frekar en önnur mannanna verk; í
númerað húsakort yfir byggðina rakst ég á að höf-
undar hafa gleymt Amtmannsstíg 6 sem fær þó sinn
kafla í bókinni. Tvítekningar eru á nokkrum stöðum
milli myndatexta og meginmálstexta, jafnvel hlið
við hlið (bls. 162 ). Ekki er getið ef birtur er hluti
úr mynd, sbr. myndir af Eyþóri Felixsyni á síðum
158 og 162. Aldursgreining á myndum mætti vera
nákvæmari, sbr. mynd af Austurstræti frá 1885 á bls.
176 þar sem í bakgrunni gnæfir grindin af Vinaminni
í byggingu fánum skreytt í reisugilli. Eins í myndum
af Grandagarði í byggingu og loks fullbyggðum á bls.
187 og 182/225. Tvítekning á myndum er ljóður þótt
í litlum mæli sé. Býsna langt er seilst í hópmyndum
af afkomendum, lengst af niðjamóti afkomenda Jóns
Björnssonar og Önnu Pálsdóttur í Ánanaustum 1967?
Mikilvægt og merkilegt verk
Í umbroti er bókin býsna þröng, hvergi er gefið
andrúm fyrir augað. Þá eru brotalamir í upplýsingum
um afdrif húsa: Bergstaðastræti 7 var flutt suður með
sjó og stendur þar enn. Þá virðast myndir stundum
birtar án tilefnis og með almennum upplýsingum um
bæjarbrag, svona rétt til að fylla umbrotsstílinn. Svo
nokkur dæmi séu nefnd.
En í heildina er þetta mikilvægt og merkilegt verk
og þegar fram líða stundir og Þorsteini tekst að koma
því heilu til skila með öllum fyrirhuguðum bindum,
þá verður það afrek. Afkomendum þeirra sem
hér eru taldir til sögu á verkið eftir að verða mikil-
vægur vitnisburður og þörf áminning um hvaðan við
komum, úr hvaða garði við erum sprottin. Og með
þeim áfanga hefur Þorteinn lagt enn einn steininn í
endurbyggingu sögu okkar sem við þurfum stöðugt,
hvert og eitt, að vinna að og halda við, svo við vitum
hvað við erum og um leið hvert við erum megnug að
komast.
Bókadómur reykvíkingar – Fólkið sem Breytti reykjavík úr Bæ í Borg Þorsteinn jónsson
38 bækur Helgin 26.-28. ágúst 2011
Bækur
Páll Baldvin Baldvinsson
pbb@frettatiminn.is
Stríð gegn gleymskunni
reykvíkingar
Fólkið sem breytti
reykjavík úr bæ í borg
aðalstræti –
Bergstaðastræti 8.
Þorsteinn Jónsson
Sögusteinn, 320 bls. 2011
Merkilegt og
viðamikið verk
um Reykjavík
1910 er komið út.
Þ orsteinn Jónsson, útgefandi og fræðimaður, hefur átt merkilegan feril frá því hann kom heim frá námi í
Lundi. Hann var einn af stofnendum Ljós-
myndasafns Reykjavíkur og hefur verið
ötull ljósmyndasafnari í áratugi. Hann á að
baki útgáfu aragrúa ættfræðirita, tók saman
mikilvægt rit í tveimur bindum um Flatey á
Breiðafirði og nú sendir hann frá sér fyrsta
bindið af mörgum um íbúa og byggð í Reykja-
vík sem hann hefur haft í undirbúningi á
þriðja áratug.
Reykjavíkursagan er ekki mikil að vöxtum
á bókum; ætli þær megi ekki telja á fingrum
og tám. Þær skiptast í nokkrar deildir, sumar
skrifaðar af embættismönnum á borð við
Klemens Jónsson og Jón Helgason. Aðrar
safnrit greina eða rit byggingarsöulegs eðlis.
Enn smærri undirdeildir eru dreifðar í endur-
minningaþætti og ævisögur. Okkur sem erum
haldin stöðugri forvitni um byggðina hér við
Sundin verður alltaf glatt í sinni þegar við
sjáum vígstöðu tekna gegn gleymskunni um
þessa borg. Fyrsta bindið í stórri ritröð Þor-
steins er mikilvægur áfangi í stríðinu við
gleymskuna.
Þríþætt verk
Þorsteinn byggir rit sitt á manntalinu sem gert
var í Reykjavík 1902 og á uppdrættinum sem
til er af bænum frá 1915. Hugmynd hans var í
upphafi að rekja sögu þess fólks sem bjó í bæn-
um fyrsta áratuginn, rekja ættir til þess og frá
því og hvar það bjó. Við vinnslu verksins komst
hann fljótt að því að frá manntalinu til ársins
1910 tók bærinn stakkaskiptum. Því valdi hann
árið 1910 sem viðmið. Fyrsti akkur bókarinnar
er því kort af öllum húsum í bænum það ár.
Síðan er saga húsanna rakin eftir stafrófsröð
götunafna og eru því til umfjöllunar í fyrsta
bindinu Aðalstræti, sem er reyndar elsta gata
borgarinnar, Amtmannsstígur, Austurstræti,
Ánanaust, Bakkastígur, Baldursgata, Baróns-
stígur og Bergstaðastræti að húsi nr. 8.
Verkið er þríþætt: Hér er að finna ættar-
sögu með knöppum upplýsingum um búsetu
þeirra fyrir og eftir sem bjuggu við göturnar
á þessum tíma, afkomendur eru taldir og í
þessum ættfærslum má sjá og finna búsetu-
sögu, hvernig þjóðin færðist til á hartnær
aldar tímabili. Þá er verkið byggðasaga í þeim
skilningi að hér má sjá hvernig byggðin varð
til frá upphafi og þar til sum húsin voru rifin,
brunnu eða voru flutt; standi þau ekki enn.
Bókin er þannig húsasaga Reykjavíkur og sést
hér hvernig verðmætamat Reykvíkinga, yfir-
valda og almennings, lék byggðina. Loks er
verkið minjasaga í myndum: Þorsteinn birtir í
ritinu bæði eldri og yngri myndir af húsunum
sem koma við sögu, forverum þeirra ef þær
myndir eru til, bæði myndir sem kunnugar eru
og eins myndir sem eru fáséðar eða hafa aldrei
komið á prent. Þá er í verkinu myndarlegt safn
mannamynda af íbúum og afkomendum þeirra.
Snemma fjölþjóðleg borg
Niðurröðun í verkið á götum eftir stafrófs-
röð leysir þann vanda hvernig skipa á niður í
Þorsteinn Jónsson, höfundar bókarinnar Reykvíkingar – Fólkið sem breytti bæ í borg. Ljósmynd/Hari
... hefur Þor-
teinn lagt enn
einn steininn í
endurbyggingu
sögu okkar sem
við þurfum
stöðugt, hvert
og eitt, að
vinna að og
halda við, svo
við vitum hvað
við erum og um
leið hvert við
erum megnug
að komast.
Margar ljósmynda í bókinni eru dýrgripir og minnisvarði um liðna tíma í Reykjavík.
Miðasala 568 8000
borgarleikhus.is
Áskriftar-
kortið okkar
Fjölskyldan Grenimel 42