Fréttatíminn - 26.08.2011, Blaðsíða 68
Plötuhorn Dr. Gunna
leiðin heim
Björgvin og Hjartagosarnir
Björgvin á heiðinni
Nýjasta plata meistara
Björgvins er enn ein
kóverplatan. Mest er
þetta poppað kántrí
en einnig fiftís popp og
þjóðlög. Lögin sem koma
úr óvæntustu áttinni eru
frá Hallbirni og Tom Waits.
Flest lögin eru með nýjum
íslenskum textum, Jóhanna
Guðrún syngur í tveimur
og Krummi í einu. Bó er
þekktur fyrir vandvirkni
og að vanda er umgjörðin
glæsileg; umslagið ítarlegt
og flott, flutningur allur tipp
topp og sándið hunangs-
legið. Innihaldið er þó full
fyrirsjáanlegt. Björgvin er
það frábær listamaður að
maður er mjög til í að heyra
hann taka sénsa, koma á
óvart og vinna með nýju
fólki; fara Þrengslin en ekki
heiðina. Eitthvað í áttina að
því þegar Johnny Cash fór
að vinna með Rick Rubin.
Leiðin heim er þó fín fyrir
sinn gamalkunna hatt.
Greatest hits
Vax
Töff riff
Austfirsku bræðurnir Villi
og Dóri Warén hafa starf-
rækt hljómsveitina Vax
með ýmsum hjálparkokkum
frá árinu 1999. Þeir spila
frumsamda tónlist í anda
sixtís-hljómsveita eins og
Animals, Them og Manfred
Mann, en eru með eigin
áherslur og alla rokksöguna
undir. Vax minnir stundum
á finnska bandið 22 Pistep-
irkko, sem byggir á sama
grunni, og Villi hljómar ekki
ósvipað og PK með sinni
hvínandi röddu og hreiminn
í ensku textunum. Greatest
hitser tvöfaldur pakki, öll
bestu frumsömdu lögin
á einum diski, kóverlög,
sem eflaust nýtast vel á
böllum, á hinum. Þetta er
þéttur pakki og hin besta
skemmtun; strákarnir hitta
oft stuðnaglann á rokkhöf-
uðið og sníða grípandi lög
úr töff riffum. Þá hefur þó
alltaf vantað herslumuninn
til Vinsælalands – kannski
ættu þeir að prófa að
syngja á íslensku?
hversdagsbláminn
Lame Dudes
Eftirkreppublús
Hannes Birgir Hannesson
er innsti koppur í búri Leim
dúdda; spilar á gítar, syngur
og semur. Þeir Snorri Björn
Arnarson gítarleikari hafa
spilað saman síðan 1985
en bandið fór þó ekki
almennilega í gang fyrr en
2008 með auknum mann-
skap. Þetta er fyrsta platan
og innihaldið gítarblús með
íslenskum textum. Eins og
við er að búast fylgja laga-
smíðarnar steingreiptum
lögmálum blússins og menn
krydda með gítarsólóum.
Þetta er allt ágætlega
gert og Hannes er góður
söngvari. Helsta trompið
er textarnir sem fjalla um
hversdagslega hluti eins og
sjónvarpsdagskrána, stöðu
kaupmannsins á horninu og
ýmsar eftir-kreppu-vanga-
veltur. Textarnir nálgast
það að vera „blogglegir“
þótt víða sé einnig sungið
um blúslegri hluti eins og
drabb og doða. Þetta er fín
blúsplata sem blúsjálkar
ættu að kynna sér.
Af því tilefni hefur verið ákveðið að bæta
nýjum röddum í kórinn. Ef þú ert yngri en
45 ára og hefur áhuga á að syngja með
Léttsveitinni getur þú skráð þig í
inntökupróf, sem fara fram 6. september,
á lettsveit@lettsveit.is
Kvennakórinn
Léttsveit Reykjavíkur
heldur aðventutónleika í Hörpu
sunnudaginn 27. nóvember
Upplýsingar um Léttsveit ina
má f inna á lettsveit . is
„Umhverfi og mannkyni stafar
nú mest ógn af miðstýr ingu og
ein okun. Sjálfbærni, rétt læti og
friður fá ekki þrifist fyrr en
fjöl breytni verður grundvöllur
fram leiðsl unnar. Á okkar
dögum er ræktun og viðhald
fjöl breytninnar ekki
munaður heldur for senda
þess að við lifum af. “
Vandana Shiva
Kaffitár
Landvernd
Maður Lifandi
Matvís
Melabúðin
Móðir Jörð
Nattura.is
NLFÍ
Ráðgjafarfyrirtækið Alta
Rúnar Sigurkarlsson og
Hildur Guðmundsdóttir
Sigurður Gísli Pálmason
Skaftholt - Guðfinnur
Jakobsson
Vottunarstofan Tún
Yggdrasill
VANDANA SHIVA
á ÍSLANDI Opinn fyrirlestur í Háskólabíói
(aðgangur ókeypis)
29. ágúst 2011
kl. 17.00
Styrktaraðilar:
Umhverfisráðuneytið, sem er
bakhjarl verkefnisins
Vandana Shiva á Íslandi
Utanríkisráðuneytið
Sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytið
Reykjavíkurborg
Akur - Garðyrkjustöð
Biobú
Brauðhúsið
Félag umhverfisfræðinga
Fjarðarkaup
Gló
Heilsa
Heilsuhúsið
Íslandsbanki
Linda D. Ólafsdóttir myndalistarkona fyrir framan
myndirnar sem eru til sýnis í Ráðhúsinu. Ljósmynd/Hari
MynDlistarsýninG leikanDi lestrarhestar
Myndskreytir lestrarbók
fyrir yngstu nemendurna
M yndlistarkonan Linda D. Ólafs-dóttir stendur fyrir sýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur sem ber
yfirskriftina Lifandi lestrarhestar. Efni
sýningarinnar eru myndskreytingar úr
Lestrarlandinu, nýútkominni lestrarbók
fyrir fyrstu bekki grunnskólanna. Um er
að ræða sýningu á yfir 30 innrömmuðum
myndskreytingum ásamt smámyndum úr
lestrarbókinni en auk þess geta gestir sýn-
ingarinnar skoðað myndferli höfundarins
frá fyrstu skissu að lokamynd.
„Áhugi minn á myndskreytingum kvikn-
aði þegar ég sjálf lærði að lesa; ég lá yfir
myndunum í Við lesum á milli þess sem ég
klóraði mig fram úr orðunum í bókinni.
Ég hef alla tíð stefnt að því að starfa við
list mína, og þá sér í lagi við myndskreyt-
ingar sem ætlaðar eru börnum. Það er mér
því mikill heiður að fá að skapa myndir í
lestrarkennsubók komandi kynslóða,“ segir
Linda í samtali við Fréttatímann en hún út-
skrifaðist með BFA-gráðu frá Listaháskóla
Íslands árið 2001 og MFA-gráðu í mynd-
skreytingum frá Academy of Art University í
San Francisco árið 2009. -óhþ
Ég hef alla tíð stefnt að því að starfa við list mína.
54 menning Helgin 26.-28. ágúst 2011