Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.08.2011, Page 70

Fréttatíminn - 26.08.2011, Page 70
iPod Touch Lófatölva fyrir dagsins önn Epli.is, Laugavegi 182, sími 512 1300 | Opið 10-18 mánudaga til föstudaga og 12-16 laugardaga | www.epli.is Verð frá 55.990.- Tónlist, vídeó, leikir, forrit, rafbækur, hljóðbækur, podvörp, ljósmyndir, Safari netvafri, póstforrit, kort, FaceTime, HD vídeóupptaka, Nike+iPod stuðningur Aðeins 101 gramm Allt að 40 klst rafhlöðuending Fyrirtæki í hugbúnaðarsölu Kontakt hefur verið falið að annast sölu á fyrirtæki sem selur erlendan hugbúnað til fyrirtækja og stofnana. Meðal viðskiptavina eru mörg af stærri fyrirtækjum landsins. Veltan er um 40 milljónir króna og koma tekjurnar af sölu hugbúnaðar, uppfærslusamningum og námskeiðahaldi. Hentar afar vel fyrir áhugasama einstaklinga sem vilja starfa við eigið fyrirtæki. Einnig sem viðbót við aðra starfsemi. Núverandi starfsemi kallar á tvo starfsmenn Áhugasamir hafi samband við gunnar@kontakt.is eða í síma 414 1200 H au ku r 0 8 b .1 1 S kúlptúrar eftir Steinunni Þórarinsdóttur voru settar upp á Economist Plaza-torg- inu í Mayfair í hjarta Lundúna í síðustu viku. Sýninguna í Lundún- um nefnir Steinunn „Situations“ en verkin eru í nágrenni við Osborne Samuel-galleríið sem hefur höndl- að með verk Steinunnar í fimmtán ár. Peter Osborne er sýningarstjóri og sýningin mun standa yfir í tvo mánuði. Þá setti Steinunn upp sýninguna „Borders“ í New York í mars. Þar eru 26 skúlptúrar á torgi í ná- grenni höfuðstöðva Sameinuðu þjóðanna en sýninguna sérhannaði Steinunn með þetta torg í huga. Hún segir sýninguna hafa fengið ótrúleg viðbrögð. „Ég hef fengið mjög mikið af bréfum frá fólki sem býr þarna í nágrenninu og fólk er mjög ánægt. Auk þess sem borg- aryfirvöld segja þetta vinsælustu sýningu sem sett hefur verið upp á torginu,“ segir Steinunn sem rekur ánægjuna með skúlptúrana ekki síst til þess að fólk „á í svo miklum samskiptum við verkin,“ þar sem þau eru í líkamsstærð. „Þetta torg í New York er mjög fallegt og nærvera Sameinuðu þjóðanna er afar táknræn; sýn- ingin er hönnuð sérstaklega inn í torgið. New York borg bað mig um að senda inn tillögu að útiverkum og hún var samþykkt. Þetta hefur verið mjög ánægjulegt og gaman,“ segir Steinunn um verkið sem fær að standa fram í september og hefur því, þegar yfir lýkur, glatt vegfarendur í um það bil hálft ár. Furðulegt mál kom upp í sam- bandi við eitt verka Steinunnar í sumar þegar 300 kílóa skúlptúr hvarf sporlaust eina nóttina af hafnarbakka í Hull. Steinunn segir þennan þjófnað þó ekki hafa raskað ró sinni; hún sofi róleg um nætur og óttist ekki að verk hennar í New York eða Lundúnum komi til með að hverfa sporlaust. „Verkin hafa fengið svo jákvæðar móttökur að ég hef ekki áhyggjur. Það er líka fylgst vel með þeim og öryggisgæslan við byggingu Sam- einuðu þjóðanna er mikil. Síðan eru nú alltaf einhverjir á ferli, sérstaklega í borginni sem aldrei sefur.“ Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is  Steinunn ÞórarinSdóttir Víðförlar Styttur Skúlptúrar Stein- unnar Þórarins- dóttur vekja jafnan athygli þar sem þeir eru settir upp. Mann- verurnar sem hún skapar úr járni, stáli, gleri og öðrum efnum fara víða og um þessar mundir sýnir hún verk undir berum himni bæði í New York og Lund- únum. New York-búar blanda geði við skúlptúra Skúlptúrum Steinnunnar Þórarinsdóttur hefur verið sérstaklega vel tekið á torginu í nágrenni höfuð- stöðva Sameinuðu þjóðanna í New York enda komast vegfarendur vart hjá því að blanda geði við stytturnar. Ljósmynd/Magnus Arrevad Steinunn setti upp sýningu á Economist Plaza í Lundúnum í síðustu viku og verk hennar setja sinn sterka svip á það torg rétt eins og torgið í New York. Ljósmynd/ Murray Head Dularfulla skúlptúrhvarfið Steinunn gerir það gott með skúlptúrum sínum í útlöndum og sefur róleg þótt 300 kílóa verk hennar hafi horfið í Hull í sumar. Sú ráðgáta er enn óleyst þrátt fyrir að tveir grunaðir hafi verið hand- teknir. Ljósmynd/Bragi Þór Í sumar hvarf verkið „Voyage“, eða „För“, af hafnarbakkanum í Hull. Verkið er í tveimur hlutum. Annar þeirra var í Hull en hinn í Vík í Mýr- dal. Steinunn gerði verkið fyrir Hull til þess að fagna 1.000 ára sambandi Íslands og Bretlands og afkomendum breskra sjómanna sem sigldu frá Hull en fórust í skipssköðum þykir sárt að horfa á eftir verkinu sem þeir tengja minningu látinna ástvina. Lögreglan í Bretlandi telur líklegast að listaverkaþjófarnir hafi ætlað sér að bræða verkið og selja málminn. Steinunn fylgist vel með rann- sókninni og er í miklum samskiptum við yfirvöld í Bretlandi. „Þetta er alveg ótrúlegt mál. Það voru tveir menn handteknir og í bíl annars þeirra fundust bronsleifar en ekki nóku mikið magn til þess að skera úr um hvort þær væru úr verkinu. Og þeir neita öllu. Verkið er því enn ófundið en nú er stefnt að því að taka sílíkonmót af systurverkinu í Vík og það verði endurgert og sett aftur á sinn stað.“ -þþ Námskeiðin hefjast 6. september. Skráning og upplýsingar á asdis@bardusa.is og í síma 777-2383 Haustönn 2011 að hefjast FIMLEIKAFJÓLURNAR Í FOSSVOGINUM Kvennaleikfimi í Fossvogsskóla Þri. og fim. kl. 17 Verð 14.000 kr. YOGA FITNESS Í ÍR HEIMILINU yoga - pilates - teygjur - styrkur - slökun Þri. kl. 20:30 og fim. kl. 19:30 Verð 19.900 kr. www.noatun.isn o a t u n . i s Nammibarinn 50% afsláttur AF NAMMIBARNUM LAUGARDAGA: ALLAN SÓLARHRINGINN SUNNUDAG - FÖSTUDAG: MILLI KL 20 - 24 Getur þú styrkt barn? www.soleyogfelagar.is 56 menning Helgin 26.-28. ágúst 2011

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.