Læknablaðið - 01.02.1966, Blaðsíða 67
L Æ Iv N A B L A Ð I «
37
skrár eða annað. Hver deild heldur einfalda sjóðbók, annað bókhald
þarf ekki að annast.
Hver eining hefur litla rannsóknarstofu, en sameiginleg rannsókn-
arstofa annast um venjulegar blóð- og þvagrannsóknir auk annarra
venjulegra minni háttar rannsókna.
Salus. í Stokkhólmi var kynnt fyrir okkur önnur starfsemi lækna-
félagsins og heimsóttum við Lakarnas Försakringsanstalt,
Salus. Forstjóri fyrirtækisins, Kjell Brunde, skýrði frá starfseminni.
Tryggingafélag sænskra lækna var stofnað 1922. Þessi starfsemi er
nú tvíþætt undir sama þaki, annars vegar tryggingarstarfsemi, hins
vegar sparisjóður lækna.
Tryggingafélagið hefur með höndum flestar greinar trygginga,
svo sem hóp-slysatryggingar hóp-líftryggingar, hóp-sjúkratryggingar,
ábyrgðartryggingar fyrir lækna, heimilistryggingar og bifreiðatrygg-
ingar.
Hóptryggingar lækna eru mjög almennar, um 80% allra lækna
eru þátttakendur í hóptryggingunum. Allir læknar 60 ára og yngri
geta tekið þátt í hóptryggingunum, en þeir, sem eru yfir 45 ára, njóta
verri kjara en hinir yngri.
í hóp-líftryggingu greiðist full tryggingarupphæð til og með 60.
aldursári, frá 61 árs aldri til 70 ára greiðast lækkandi upphæðir frá
90%til 35%, en eftir 70 ár eru ekki greiddar út bætur. Hæstu bætur
við dauðsfall eru 62.500 kr. fyrir þá, sem eru yngri en 45 ára, en 50
þús. á aldrinum 45—60 ára.
í hópslysatryggingunni eru greiddar 100 þús. við fulla örorku
eða dauðsfall. Fullar greiðslur eru í slysatryggingu til 70 ára.