Læknablaðið - 01.02.1966, Blaðsíða 60
:jo
L Æ K N A B L A Ð I Ð
Sænska Sænska læknafélagið er öflugt stéttarfélag. Alls eru
læknafélagið. í landinu um 7500 læknar og af þeim um 90% í félag-
inu. íbúar Svíþjóðar eru nú um 7.5 milljón, svo að
nærri lætur, að einn læknir sé á hverja 1000 íbúa. Um fjórðungur
starfandi lækna vinnur læknisstörf utan sjúkrahúsa, og eru margir
þeirra fastir starfsmenn, héraðslæknar. Ástand í heilbrigðismálum
Svíþjóðar telst yfirleitt gott; sjúkrarúm í öllu landinu eru talin 120
þús. eða um 15 á 1000 íbúa og þar af 10 almenn sjúkrarúm.
Stéttarbarátta sænska læknafélagsins beindist fyrst og fremst
að því að bæta kjör og starfsaðstöðu hins stóra hóps fastráðinna lækna
við sjúkrahús og stofnanir. En árið 1956 gerði félagið merka sam-
þykkt þess efnis að reyna að vinna að því að auka veg þeirra lækna
innan félagsins, sem vinna sjálfstætt að eigin læknisstörfum utan
sjúkrahúsa. Sú leið, sem félagið valdi, var að skipuleggja samvinnu
lækna, aðallega sérfræðinga, í læknahúsum.
í þessu skyni var myndaður sjóður, Sveriges Lákarförbunds Stift-
else för öppen sjukvárd. Hlutverk sjóðsins var að eiga, í nafni lækna-
félagsins, meiri hlutann í tveim hlutafélögum, sem stofnuð voru til
að hrinda þessu máli fram, Lákartjánst A/B og Lákarhus A/B.
Athugun Áður en lengra var haldið, lét læknafélagið fara fram veiga-
á tíðni miklar athuganir á því, hve mikil aðsókn væri að lækn-
viðtala. um á ýmsum stöðum í Svíþjóð og hvernig viðtöl skiptust
milli hinna einstöku sérfræðinga.
Meðalviðtalafjöldi í Stokkhólmi reyndist vera 3.9 á hvern ibúa
á ári, í Norðpr-Svíþjóð 1.9, en fyrir allt landið 2.3. Lága talan í N,-
Svíþjóð er talin stafa af læknaskortinum þar. Gert er ráð fyrir, að
viðtalafjöldi aukist um 3% á ári miðað við óbreytta íbúatölu.
Athuganir á aðsókn sjúklinga til lækna leiddu þessar tölur í
ljós:
Almennir læknar og lyflæknar . .
Skurðlæknar ..................
Háls-, nef- og eyrnalæknar ...
Húðlæknar ....................
Barnalæknar ..................
Augnlæknar....................
Kvensjúkdómalæknar ...........
Geðlæknar ....................
Annað ........................
46.17% af öllum viðtölum
19.60% - — —
11.10% - — —
7.66% - — —
4i50% - — —
4.40% - — —
3.70% - — —
2.10% - — —
0.77% - — —
Sérstaklega var tekið fram, að tölurnar fyrir geðlækna og húð-
lækna væru sennilega allt of lágar vegna þess, hver skortur er á
þessum sérfræðingum í Svíþjóð.
í Svíþjóð er almenn skyldusjúkratrygging, en samningar eru
ekki milli læknasamtaka og trygginga um greiðslur fyrir læknishjálp.
Þeir læknar, sem starfa á almennum móttökum sjúkrahúsanna,
og héraðslæknar starfa eftir gjaldskrá, sem sett er af opinberum að-
ilum. Aðrir læknar geta tekið fyrir störf sín eftir eigin vild, þar eð
læknasamtökin hafa ekki sett sér neinar gjaldskrár.