Læknablaðið - 01.02.1966, Blaðsíða 74
42
LÆKNABLAÐIÐ
og tryggingarnar greiða sérfraeðingi fyrir að fara í vitjun og líta á
einn sjúkling, en sex pund, líti hann á tvo.
Læknarnir keyptu gamalt fjögurra hæða íbúðarhús, þar sem þeir
hafa komið sér fyrir með lækningastörfin, en húsið er að sumu leyti
heldur óhentugt. Viðtalsherbergin eru nokkuð misstór. Biðstofur eru
tvær og ein afgreiðsla, en engin röntgen- eða rannsóknarstofa. í
rauninni er samvinna læknanna eingöngu fólgin í því, að þeir hafa
sameiginlegar afgreiðslustúlkur. Hins vegar hafa þeir ekki sameigin-
lega aðstoð hjúkrunarkvenna. í húsinu er lítið fundarherbergi.
Dr. Gibson lét okkur fá ýmis eyðublöð, þar á meðal fyrir fjar-
vistarvottorð vegna veikinda, bæði opinber eyðublöð og önnur, sem
læknahópurinn hefur látið búa til. Á báðum þessum vottorðum er
gert ráð fyrir, að sjúkdómurinn sé tilgreindur. Taldi dr. Gibson, að
þetta væri á engan hátt brot á trúnaðareiði eða reglum lækna, þar
sem vottorðið færi beint í hendur sjúklingsins sjálfs. Á hinn bóginn
gæti verið vafasamt, hvort senda ætti slík vottorð til annarra aðila
nema þá með samþykki sjúklingsins.
Heilsugæzlu- Þá fórum við til Hythe, sem er 15 þúsund manna
stöðin í Hythe. bær í landbúnaðarhéraði skammt frá Southampton.
Þar hefur ríkið reist heilsugæzlustöð, sem er í
tengslum við gamlan spítala. Stöðin er nýtízkuleg í sniðum, rúmgóð
og björt og öllu vel fyrir komið. Hver læknir hefur viðtalsstofu, sem
er 3X4 metrar og skoðunarherbergi um 2X31/2 metri. Þarna er
röntgendeild til þess að taka myndir af minni háttar beinbrotum og
einnig lítil rannsóknarstofa, og koma þangað meinafræðingur og blóð-
meinafræðingur tvisvar í viku. Þá er í stöðinni lítil skurðstofa, þar
sem hægt er að gera að smáslysum, en meiri háttar slys fara á sjúkra-
hús í Southampton. Spítalinn við stöðina er aðallega fæðingaheim-
ili og almennt sjúkrahús, þar sem heimilislæknarnir vinna sjálfir.
Liggja þar einkum sjúklingar í afturbata, t. d. eftir aðgerðir á öðrum
spítölum. Þarna er mæðravernd og ungbarnaeftirlit og vinna heimilis-
læknarnir einnig allt starf á þeim deildum. Við spítalann er „out-
patients“-deild, þar sem sérfræðingar koma og veita þjónustu stund
úr degi. í stöðinni eru einnig tannlæknastofur. í sambandi við þessa
lækningamiðstöð eru námskeið í afslöppun fyrir vanfærar konur og
einnig rekinn áróður fyrir slysavörnum. í húsinu er aðalbækistöð
Rauða krossins og miðstöð fyrir sjúkrabíla.
Tiu heimilislæknar vinna við stöðina, og er þeim skipt í þrjá
flokka, en tveir þessara lækna hafa einnig viðtalstíma annars staðar.
Flestir læknar þarna sjá um þrjú þúsund sjúklinga og hafa viðtals-
tíma bæði fyrir og eftir hádegi. Allir viðtalstímar eru samkvæmt
beiðnum, og virðist sú tilhögun gefast vel og sjúklingar og læknar
vera ánægðir með hana. Gert er ráð fyrir, að allar vitjanabeiðnir séu
komnar fyrir klukkan tíu. Beiðnir um viðtalstíma eiga að koma milli
kl. tíu og tólf og milli kl. tvö og fjögur. Kvöldtímarnir eru til þess
að taka pantanir fyrir næsta dag. Ef skyndileg sjúkdómstilfelli koma
fyrir, er reynt að sinna þeim þegar í stað, og gerir það sá læknir,
sem því getur bezt við komið.