Læknablaðið - 01.02.1966, Blaðsíða 47
L Æ K N A B L A Ð IÐ
17
segir, menn með litla eða enga greiðslugetu. Þetta fólk ætti að vera
í A-flokki, en hefur vanrækt að hafa réttindi sín í lagi. í sumum íil-
vikum geta læknar sent sveitarfélögum reikninga fyrir læknishjálp
veitta þessum síðastnefndu aðilum.
Fyrirkomulag Almenn heimilislæknisstörf eru þar greidd með
læknisþjónustu í fastagjaldi fyrir númer, og er númerakerfi hiö
Kaupmannahöfn. sama og hér á landi. Aukagreiðslur fá læknar fyr-
ir vottorð, mæðraeftirlit og ungbarnaeftirlit, en
þessi störf vinna þeir yfirleitt sjálfir fyrir sjúkrasamlagssjúklinga
sína. Einnig koma sérstakar greiðslur fyrir alla vaktþjónustu. í Kaup-
mannahöfn er vaktþjónusta allan sólarhringinn nema á morgnana frá
kl. 7—8. Frá kl. 8—16 er svokölluð neyðarvakt, síðan er skipt niður
í kvöldvakt og næturvakt. Vaktþjónusta er yfirleitt unnin af ungum
læknum á sjúkrahúsum eða stofnunum og einnig af heimilislæknum,
sem eru að hefja störf.
Læknar fá engar númeragreiðslur fyrir fólk, sem er í B-flokki,
enda greiðir það sjálft læknishjálpina að fullu, og eru þær greiðslur
ekki undir neinu beinu eftirliti, hvorki frá læknafélagsins hálfu né
hins opinbera.
Læknafélagið hefur enga gjaldskrá og getur hver læknir í raun-
inni sett upp það, sem honum sýnist. Hins vegar er mjög náin sam-
vinna meðal lækna í þessum efnum, og þeir taka í flestum tilfellum
líkar greiðslur fyrir sömu störf. Yfirleitt má segja, að þetta sé 20—
30% hærra en sú gjaldskrá, sem lögð er til grundvallar við endur-
greiðslu í sjúkrasamlögum.
Talið er, að um 10% af þeirri vinnu, sem læknar veita sjúkling'-
um í B- og C-flokkum, greiðist ekki. Þeir, sem eru í B-flokki, geta að
sjálfsögðu haft heimilislækni, ef þeir óska, en er frjálst að leita til
hvaða læknis sem vera skal.
Kostnaður við almenna læknishjálp var 64 kr. fyrir hvert númer
í A.-flokki árið 1964, en samsvarandi kostnaður var 53 kr. í B-flokki.
Yfirleitt er vinnutími almennra heimilislækna frá kl. 8—16. Tvisv-
ar í viku þurfa þeir að hafa tvo samfellda viðtalstíma frá kl. 17—19.
Hver heimilislæknir má hafa allt að 2200 númer, en flestir eru með
nálega 1500 númer. Læknir með 1500 númer fer að jafnaði í fjórar
vitjanir á dag. Hæfilegt þykir, að læknir afgreiði sex manns á klukku-
stund við heimilislæknisstörf og sé fjórar stundir á dag á stofu. Auk
þessa hafa heimilislæknar sérstaka tíma fyrir ungbörn, mæðraeftirlit
og bólusetningar. Fyrir það fá þeir sérstakar greiðslur, eins og áður
segir.
I Kaupmannahöfn eru engar lækningastöðvar lengur við spítal-
ana aðrar en þær, sem fylgjast með sjúklingum, sem þar hafa verið.
Sérfræði- Heimilislæknir getur vísað fólki í A_-flokki til sérfræði-
þjónusta rannsókna og meðferðar eftir því, sem við á og með þarf.
Einnig fá sjúklingar í þessum flokki ókeypis rannsóknir á
Sygekasselægernes organisations laboratorium. Sama er að segja um
röntgenrannsóknir utan sjúkrahúsa. Þær eru allar framkvæmdar á