Læknablaðið - 01.02.1966, Blaðsíða 62
L Æ KNABLAWI !)
32
og kostnað af bíl, því að
aðrar reglur gilda um frá-
drátt einstaklinga en fé-
laga.
Það starfslið, er nú
sér um rekstur Lakar-
tjánst, er einn hagfræð-
ingur, einn bókhaldari og
tíu skrifstofustúlkur. Tal-
ið er, að lágmarksfjöldi
lækna til að starfrækja
slíkt fyrirtæki sé 100, en
200 sé of lítið til að reka
fyrirtækið með vélabók-
haldi.
í Stokkhólmi starfa
nú um 600 læknar utan
sjúkrahúsa, og eru beir
flestir sérfræðingar. Á
Stokkhólmssvæðinu eru
um 1.3 milljón íbúa.
Pyrsta læknahúsið
tók til starfa í Vellingby
árið 1959, en nú eru starf-
andi sjö hús í Stokkhólmi
og sjö eru tekin til starfa
eða í byggingu annars
staðar í Svíþjóð. Alls
hafa verið gerðar áætl-
anir uni 40 hús víðs veg-
ar um landið. Talið hef- Ur læknahúsinu við Odenplan. Vinkilborð
ur verið heppilegast, að í móttökuherbergi.
10—15 læknar væru sam-
an í húsi, en lágmark 4—5 læknar.
Læknahús í Við skoðuðum tvö læknahús í Stokkhólmi, við Hötorget
Stokkliólmi. og við Odenplan, og eru bæði í leiguhúsnæði.
Starfsemin við Hötorget er í einu af háhýsunum
þar, á 4. hæð. Þar starfa tólf læknar og eru allir sérfræðingar. Þar
er engin röntgendeild, en lítil rannsóknarstofa. Öll viðtöl eru sam-
kvæmt tímapöntun og biðstofur tvær mjög litlar, enda lögð áherzla
á, að bið sé lítil sem engin.
Húsnæðið virtist hentugt og vel nýtt, enda þótt það væri ekki
teiknað til þessara nota. Gangar voru nokkuð þröngir, en allt mjög
snyrtilegt. Eining lyflæknis þarna voru þrjú samliggjandi herbergi,
öll með gluggum; stærð einingar um 38 m2; stærð herbergja á að
gizka tvö 2X5 m og eitt 5X3.5 m. Mikil áherzla var lögð á hljóð-
einangrun veggja og hurða. Tveir símar voru hjá hverjum lækni,
annar gegnum símaborð, hinn óskráður, en auk þess innanhústalkerfi.