Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.06.1969, Side 22

Læknablaðið - 01.06.1969, Side 22
78 LÆKNABLAÐIÐ klóramfenikól. Samkvæmt athugun Welch’s kemur anemia aplas- tica fyrir oftar hjá konum en körlum, 1.6 :1, og rúmlega 60% áttu sér stað meðal barna undir 10 ára aldri.9 Blóð- og mergmynd Sjúklingar skiptast í tvo hópa eftir frumufjölda mergsins: 1) þá, sem hafa frumufáan merg (aplasia), 2) þá, sem hafa eðlileg- an frumufjölda. Yunis og Bloomberg 10 fundu frumufáan merg í 61 sjúklingi af 88, er þau fóru yfir áður birt dæmi um tilfelli af klóramfenikól-eiturverkunum. Blóðmyndin var nær alltaf pan- cytopenia. Upphaf einkenna var í 73% þessara tilfella V2—5 mán- uoum eftir síðasta skammt af klóramfenikóli. 90% þessara sjúkl- inga létust. 1 hinum hópnum var algengast blóðleysi eitt eða blóð- leysi og fækkun kyrnikorna, og upphaf breytinganna mátti greina, meðan á klóramfenikólmeðferð stóð. Batahorfur voru góðar. Pathogenesis Þar sem flest dauðsföll verða í hópi þeirra, sem hafa pan- cytopenia og frumufáan merg, væri æskilegt að geta fundið fyrir- fram þá, sem mest eiga á hættu að fá þennan fylgikvilla klór- amfenikólnotkunar. Þrátt fyrir miklar rannsóknir hafa enn engin ráð fundizt til þess, og engin skýring er fyrir hendi á því. hvernig klóramfenikól veldur anemia aplastica. Getgátur, enii sem komið er óstaðfestar, eru uppi um „autoimmune" orsök eða einhvers konar einstaklingsbundið ofnæmi. Nokkru öðru máli gegnir um merghindrun þá, sem lagast, sé notkun klóramfenikóls hætt. Þannig hefur komið í ljós, að klór- amfenikól hindrar erythropoiesis. Sést það m. a. á því, að net- frumum fækkar og alveg tekur fyrir eðlilega netfrumuaukningu, ef klóramfenikól er gefið jafnframt vítamíni B, <, í anemia perni- ciosa eða járni í járnskortsblóðleysi.11 Rubin og samstarfsmeim lians sýndu fram á seinkun á upptöku Fe59 í forstig rauðra blóð- korna, hækkun á serum-járni og mettum transferrins (þ. e. járn- bindandi eggjahvítuefnis í blóðvökva) og seinkun á fjarlægingu Fe59 úr blóðvökva.12 1 beinmerg má sjá holur (vacuolur) í pronormoblöstum og fækkun seinni forfeðra rauðra blóðkorna. Holur finnast einnig í stöku plasmafrumum, megakaryocytum og forstigum kyrni- korna (granulocyta), enda getur þeim fækkað nokkuð við stóra skammta af klóramfenikóli. Allar þessar breytingar hverfa á nokkrum dögum, eftir að notkun lyfsins er hætt, en sé það notað

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.