Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.06.1969, Side 27

Læknablaðið - 01.06.1969, Side 27
LÆKNABLAÐIÐ 81 Meðferð Á síðari tímum hefur meðferð að mestu verið með sterum, testó- steróni eða anabólskum hormónum. Árangur hefur verið frem- ur lélegur, en nokkur lagfæring á blóðmynd hefur fengizt, að minnsta kosti um stundarsakir, hjá börnum um kynþroskaaldur. Þessar breytingar hafa hins vegar ekki verið það miklar, að þær breyttu neitt verulega til batnaðar framtíðarhorfum sjúkling- anna. Umræður Það var ekki tilgangur minn með flutningi þessa efnis að bera fram fyrir ykkur nein ný vísindi, en ég vildi draga fram nokkur dæmi um anemia aplastica, sem ætla mátti, að stöfuðu af klóramfenikóli, til þess að minna á, að við sem aðrar þjóðir fáum þessa fylgikvilla. Það er nú skoðun flestra þeirra, sem um þessi mál hafa hugsað af nokkurri alvöru, að notkun klóramfeni kóls megi takmarka mjög verulega og hana beri að takmarka. Einkum hefur verið á það bent, að tíð notkun klóramfenikóls í vægum og hættulitlum eða hættulausum umgangspestum, sýking- um í efri öndunarfærum, sem oftast stafa af veirum og öðrum minni háttar kvillum, sé á engan hátt réttlætanleg. Huguley bend- ir á þá hörmulegu staðreynd, að flest tilfelli af anemia aplastica í kjölfar klóramfenikóls hafi komið fyrir hjá sjúklingum, sem eins vel hefði mátt meðhöndla með öðru sýklalyfi eða alls enga lyfjameðferð hefðu þurft.7 Vegna fjölda sýklalyfja nú má yfirleitt meðhöndla alvarlegri sýkingar með eins góðum árangri með einhverju öðru en klór- amfenikóli, og má því sniðganga það, nema næmispróf sýni, að það eitt komi til greina. Taugaveiki er nú orðið eini sjúkdómm'- inn, sem réttlætanlegt þykir að nota klóramfenikól við sem fyrsta lyf- Notkun klóramfenikóls hefur gengið í bylgjum. 1 fyrstu var það rnikið notað, en er vitað varð um samband þess og anemia aplastica, minnkaði notkun þess skyndilega mjög mikið. Síðan hefur hún aukizt aftur og er allveruleg þrátt fyrir annmarka þess. Fjöldi lyfja hefur aukizt mjög undanfarandi ár og því hefði mátt ætla, að notkun klóramfenikóls minnkaði að sama skapi. Svo hefur þó ekki reynzt, en seint er betra en aldrei, og því ætti eindregið að stuðla að því, að allri óþarfri notkun lyfsins verði hætt. Tíðni anemia aplastica er ekki mikil og hver einstakur læknir

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.