Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.06.1969, Side 54

Læknablaðið - 01.06.1969, Side 54
100 LÆKNABLAÐIÐ við talningu. Alls gáfu 42 sýni litarsvörun, og reyndust sjö þeirra innihalda > 100.000 sýkla í ml. Svörun fjögurra þessara sjö sýna eru skýrð við IV. töflu, en svörun þriggja þeirra tóksl elcki að skýra, þó að kannaðar væru sjúkraskrár. Þakkir Dr. med. Sigurður Samúelsson prófessor, yfirlæknir lyflækn- ingadeildar Landspítalans, og dr. med. Óskar Þórðarson, yfirlækn- ir hdlækningadeildar Borgarspítalans, veittu góðfúslega leyfi til þvagsýnitöku á sjúklingum deildanna. Eru þeim færðar þakkir fyrir þann stuðning. Þá er dr. med. Ólafi Bjarnasyni prófessor, forstöðumanni Rann- sóknastofu Háskólans, þökkuð fyrirgreiðsla i sambandi við rann- sóknaraðstöðu. Ályktanir Gra,m-jákvœðir sýklar (staphylo- og streptococci) Eins og sjá má á I. og II. töflu, reyndist uriglox ónothæft við þessar tegundir þvagfærasýkingar. BlandaSur sýklagróður Samkvæmt ofanskráðu er ekki við því að búast, að uriglox reymst vel, þegar um blandaðan sýklagróður er að ræða, enda kemur það fram í I. og II. töflu. Gera má ráð fyrir því, að litarhvarf fari ein- göngu eftir fjölda gram-neikvæðra sýkla í ml. Gram-neikvœðir sýklar (B.coli og próteus) Ef rétt er, að litarhvarf fari frá hagnýtu .sjónarmiði eingöngu eftir fjölda gram-neikvæðra sýkla, má nota sýni með hreinum gram-nei- kvæðum gróðri til þess að meta næmi prófsins gagnvart þvagfærasýk- ingu með gram-neikvæðum sýklum. Ef dregin eru frá II. og IV. töflu sýni frá sykursýkissjúklingum, sjúklingum, sem taka C-fjörefni og fúka- lyf, fæst V. tafla.0 í V. töflu reyndist ekki marktækur munur á fjölda rangt neikvæðra sýna frá sjúklingum á sjúkrahúsum og þátttakendum í hóprannsókn. Notuð var Fischers-prófun (p = 0.07). Efniviður þessara tveggja prófa var því lagður saman, áður en næmi (sensitivitet) uriglox-prófsins var metið. Tölfræðilegt mat á næmi prófsins reyndist 93.6% með 82.4%— 98.7% sem 95% vikmörk („95% two ,sided confidence limits“). Bent skal á, að í þessum hópi reyndist aðeins eitt sýni skakkt jákvætt.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.