Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.06.1969, Side 73

Læknablaðið - 01.06.1969, Side 73
LÆKNABLAÐIÐ 113 Helztu rannsóknir eru þessar: a) Myndun kransæða með skuggaefnum (coronarangio- grafia), b) myndun slagæða þess líffæris, sem notað hefur verið við aðgeroina, með skuggaefnum, c) hjartaþræðing og mælingar á blóðþrýstingi í hægri hluta hjartans og lungnablóðrásinni, d) hjartarafrit í hvíld og við áreynslu. Myndun með skuggaefnum hefur leitt það í ljós, að í meira en 50% tilfella hafa myndazt nýjar æðar í hjartavöðvanum eítir aðgerð, en því miður hefur ekki tekizt að finna áreiðanlega að- ferð til að mæla blóðrennslið og þrýstingshlutföllin í æðateng- ingunum (system/kransæðar). Þrýstingsmælingar í hægri hjartahólfum og lungnablóðrás sýna afköst hjartans fyrir og eftir aðgerð. Sennilega er þetta sú rannsókn, sem gefur bezt til kynna árangur aðgerðarinnar. Það gefur auga leið, að þessar tilraunir til að veita nýju blóðstreymi til hjartavöðva, sem þegar hefur orðið fyrir mikl- um bandvefsbreytingum, virðast ekki vænlegar til árangurs. Því er ekki að neita, að í mörgum tilfellum minnka hjartakveisu- köstin að miklum mun, og í einstaka tilfellum hverfa þau jafn- vel með öllu. Ekki er þó enn tímabært að meta, hvort þessar aðgerðir lengi líf sjúklinganna. Það er þó unnt að fullyrða, að aðgerðir þessar eru engin loka- lausn á vandamálinu, og ber framtíðin í skauti sér, hvort hún fæst og hver hún verður. Heberden sagði fyrir 200 árum: „Time and. attention wili undoubtedly discover more helps against this teizing and danger- ous ailment." Ályktun hans stenzt enn í dag. Heimildir: 1. Bailey, C. P., May, A., Lemmon, W. M. (1957): Survival after coron- ary endarterectomy in man. J.A.M.A. 164: 641. 2. Beck, C. S. (1943): Principles underlaying the operative approach to the treatment of myocardial ischemia. Ann. Surg. 118: 788. 3. Ellis, P. R., Jr., Cooley, D. A. (1961): The patch technique as an adjunct lo coronary endarterectomy. J. Tlior. Cardiov. Surg. 42: 236. 4. Heberden, W.: Some account of a disorder of the breast (II). Read at the College, July 21, 1768. Publ. by the College of Pliysicians. London, in Med. Trans. 2: 59, 1772. 5. Longmire, W. P., Cannon, -J. A., Kattus, A. A. (1958): Direct-vision coronary endarterectomy for angina pectoris. New. Engl. J. Med. 259: 993. 6. Malm, A., Ohlsson, N. M., Sjöström, B., Sternby, N. H., Wehlin, L., Johansson, B. (1960): Experimental Coronary Thrombosis. An Elec-

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.