Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.08.1969, Side 29

Læknablaðið - 01.08.1969, Side 29
LÆKNABLAÐIÐ 123 4. tafla Hlutföll magakrabbameins og allra illkynja meina af banameinum karla 35-64 ára. 1931-1960 Cancer ventriculi Neopl. maligna nr. 140-205 %allra % banameina % allra banameina annarra en B26i banameina 1. Bændur o. fl. 2. Sjómenn 3. Verkamenn 4. Iðnaðarmenn 5. „Kyrrsetumenn" 25,0 27,9 44,2 15,5 18,3 28,9 19,0 23,1 36,0 9,9 12,9 26,0 8,4 12,1 26,4 i Kölkunar- og hrörnunarsjúkdómar hjarta (nr. 420-422). 1 efstu aldursflokkunum var lítill munur á hlutfallstíðni la*abba- meins í maga eftir starfshópum, en þar getur flokkun eftir til- greindri atvinnu orðið mjög villandi, og að auki kemur þá til meiri hætta á ósamræmi í ákvörðun aðalbanameins. Hins vegar kom fram áberandi munur á aldrinum 35-64 (4. tafla). Mest var tíðni magakrabba 1 hópi bænda, 25% allra banameina, en minnst meðal „kyrrsetumanna“, 8,4%. Sams konar, en þó miklu minni munur var á tíðni allar illkynja meina. Við santanburð sem þennan er þó á það að líta, að tengsl eru rnilli hlutfallstíðni einstakra banameinaflokka. Hundraðs- tölur kölkunar- og hrörnunarsjúkdóma hjarta (nr. 420-422) voru í öfugu hlutfalli við tölur magakrabba — frá 10,4 í liópi bænda (35-64 ára) til 30,4 meðal „kyrrsetumanna“ —, og er þar vafa- litið einnig allmikill munur á sjálfum dánartölunum. Tíðni magakrabbameins var því einnig miðuð við öll bana- mein að þessum hjartasjúkdómum frátöldum. Reyndist breyti- leikinn þá að sjálfsögðu nokkru minni, en þó svo mikill, að meira en hclmingsmunur er á hæsta og lægsta flokknum, og röðin er óbreytt (4. tafla). Samanburðartala sjómanna er í báðum tilfellum of lág, vegna þess hve slysadauði var algengur meðal þeirra; sé tekið tillit til þess, verður hún sem næst hin sama og tala verkamanna. Hlutfallstölur annarra hanameinaflokka voru lítt breytilegar eftir starfshópum, og þykir einsætt, að krabbamein í maga hafi

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.