Læknablaðið - 01.08.1969, Side 36
126
LÆKNABLAÐIÐ
um sá, að til hærri dánartölu magakrabbameins svaraði meira
magn aí' 3,4-benzopyrene og öðrum íjölhringa sótefnum i fæð-
unni (Skagafjarðarsýsla). Hér þyrftu þó víðtækari athuganir að
koma til, er næðu til úrtaks af öllu norðvestur-svæðinu til sam-
anburðar við aðra landshluta.
Að svo stöddu verður ekki fullyrt, að meginorsök þess, hve
algengt magakrabbamein hefur verið hér á landi, verði rakin til
fjölhringa kolvatnsefnis-sambanda — og þá fyrst og fremst 3,4-
benzopyrene — í reyktum mat og sviðum. En allur er varinn
góður, og þar eð nokkrar líkur, jafnvel allmiklar, benda i þá
átt, er rétt að forðast mengun af völdum þessara fylgiefna sóts-
ins eftir föngum. Má í því efni hafa leiðsögn af rannsóknum
Þorsteins Þorsteinssonar, sem áður var minnzt á, en samkvæmt
þeim fannst lítið sem ekkert af 3,4-benzopyrene í sviðum, þegar
sviðið var yfir gasloga. Og þótt kjöt væri reykt á þann hátt, sem
tíðkazt hefur um heimareykt hangikjöt, mátti verjast sótmengun
að miklu leyti með því að vefja um það líndúk, en cellophan
veitti nær fullkomna vörn.
Nú þegar mun gas mest notað i Reykjavík til að sviða kindar-
hausa, og heilbrigðisnefndin þar mun hafa í athugun að setja
reglur um, að svo skuli gert einvörðungu. Væri það til eftirbreytni
heilbrigðisnefndum annars staðar. Einnig kæmi til athugunar
að setja reglur um, hvernig reykja skuli kjöt og annan mat,
þótt sótmengun hangikjöts í reykhúsum hafi virzt vera lítil
gagnstætt því, sem oft er um heimareykt kjöt.
SUMMARY
A review of studies on stomach cancer in Iceland initiated by pro-
fessor N. Dungal, under the auspices of the Iceland Cancer Society, and
supported by U. S. Public Health Service research grant CA-06188 from
the National Cancer Institute.
The mortality from stomach cancer in Iceland, still relatively high,
has shoWn a definite downward trend in recent years.7 It was found
to be higher in the north-western part of the country than in Reykja-
vík and in the remaining area, and higher in rural than in urban areas. 8
Comparison of occupation groups indicated that the stomach cancer risk
had been particularly high among farmers as judged from relative
mortality figures.13 There was some indication of an association be-
tween dietary contents of 3,4-benzopyrene and frequency of stomach
cancer.
The main dietary sources of polycyclic hydrocarbons in Iceland are
singed and smoked foods. Appreciable amounts of 3,4-benzopyrene
were found in foods (sheap heads) singed as was customary over coal
or peat fire, but only traces when singed over propane or acetylene-