Læknablaðið - 01.08.1972, Blaðsíða 13
LÆKNABLAÐIÐ
L/EKNAFÉLAG ÍSLANDS OG
LÆKNAFÉLAG REYKJAVÍKUR
Ritstjóri fræðilegs efnis: Páll Ásmundsson
Ritstjóri félagslegs efnis: Arinbjörn Kolbeinsson
58. ÁRG. ÁGÚST 1972 2. HEFTI
Jón G. Hallgrímsson
FRAMFARIR í SKURÐAÐGERÐUM VIÐ
ÆÐAKÖLKUN I HJARTAKRAN SÆÐUM
FORSPJALL
Undanfarin ár hafa skurðaðgerðir til að endurbæta blóðstreymi
(revascularization) til hjartans vegna æðakölkunar í kransslagæðum
aukizt verulega. Ástæðan er einkum sú, að breiðzt hefur út ný að-
ferð við þessar aðgerðir, en hún er fólgin í því, að búið er til hliðar-
streymi (bypass) milli meginslagæðar (aorta), nálægt upptökum, og
yfir í hina sjúku kransslagæð, fjarlægt við lokunina eða þrengslin.
Hliðarstreymi er myndað úr bláæð, sem er venjulega tekin úr læri
sjúklingsins. Á þennan hátt er hægt að auka samstundis blóðstreymið
til hjartans með þeim afleiðingum, að óþægindi sjúklingsins minnka
strax eða hverfa alveg. Árangur þessara aðgerða hefur nýlega verið
birtur af ýmsum hjartaskurðdeildum í Bandaríkjum Norður-Ameríku,
en þar hefur aðferðin þróazt og breiðzt út frá árinu 1967.8 15 Þótt
hér sé enn um skamman reynslutíma að ræða, hefur árangur verið
það iákvæður, að það hefur valdið straumhvörfum á sviði skurðað-
gerða við kölkun í kransslagæðum hjartans, enda nær aðferðin yfir
miklu víðtækara svið og gefur fleiri sjúklingum möguleika á að fá
bót en áður þekktist.i ? 8 ío 'n 12 15 16 20 21 22 23 29 31
Höfundur þessarar greinar fékk tækifæri til að kynna sér ofan-
greinda aðferð á tveimur þekktum hjartaskurðdeildum í Bandaríkj-
unum sl. haust, þ. e. Mayo Clinic í Rochester, Minnesota, og Cleveland