Læknablaðið - 01.08.1972, Page 14
56
LÆKNABLAÐIÐ
Clinic í Cleveland, Ohio, og eiga þessi skrif rætur að rekja til þeirrar
kynningar.
Rétt er að geta hér í upphafi tveggja uppfinninga, sem hafa
reynzt aðalforsendur þess, að blóðrásarbætandi aðgerðir á hjarta hafa
verið mögulegar, en það eru kransæðamyndataka og hjarta-lungnavél.
KRANSÆÐAMYNDATAKA
(Selective coronary angiography)
Nákvæmar upplýsingar um útbreiðslu kölkunar í kransslagæðum
er aðeins unnt að fá með því að taka röntgenmyndir af æðunum sjálf-
um, en það er gert á þann hátt, að farið er með sérstakan þræðara
(catheter) í gegnum aðgengilega slagæð á handlegg eða í nára (arteria
brachialis eða femoralis) og hann þræddur inn í sjálfar kransslag-
æðarnar.18 25 Síðan er skuggaefnum sprautað í gegnum þræðarann
inn í æðarnar og myndir teknar af þeim, annaðhvort venjulegar
röntgenmyndir eða kvikmyndir (mynd 1-3).
Þessi rannsóknaraðferð hefur þróazt síðan 1958, meðal annars
fyrir brautryðjendastarf F. Mason Sones á Cleveland Clinic.28 Á
deildum, sem hafa þjálfun og reynslu í þessum efnum, er þessi aðferð
Mynd 1
Æðamynd af vinstri kransslagæð. Greining hennar í r. descendens
og r. circumflex kemur vel frain.