Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.08.1972, Page 38

Læknablaðið - 01.08.1972, Page 38
74 LÆKNABLAÐIÐ rétta það misræmi, sem fyrir hendi er. Einhlít lausn á þess- um vanda er ekki fyrir hendi; til þess skortir lækna, fé og starfsaðstöðu. Það er margra ára átak að bæta úr slíku á- standi. Mikils er vert að vel takist að semja reglugerð um stöður þessar; mistakist það verk, fellur málið um sjálft sig. Þessi lagasetning um stofn- un á nýjum læknisstöðum við ríkisspítalana er einkum at- hyglisverð fyrir tvennt: a) I fyrsta lagi vegna þess, að gerð er lítil en einföld og væntanlega árangursrík til- raun til þess að bægja frá byggðum landsins því ör- yggisleysi og vandræðaá- standi, sem skortur á lækn- jafnframt því, sem reynt er isþjónustu getur skapað, að efla aðra vanrækta þætti heilhrigðisþj ónustunnar og laða unga lækna til þjóð- nýtra starfa. b) 1 öðru lagi vegna þess, að lagasetning þessi felur í sér vaxandi samstarf heilbrigð- isstjórnar og' læknastéttar. Hún sýnir gagnkvæman skilning á því grundvallar- atriði, að sá vandi, sem hér um ræðir, verður aðeins leystur í náinni og stöðugri samvinnu við læknasam- tökin, því að þeir, sem leggja endanlega hönd á lausn hvers einstaks þáttar þessa máls, verða læknar, og' alveg sérstaklega ungir læknar. Arinbjörn Kolbeinsson.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.