Læknablaðið - 01.08.1972, Page 41
LÆKNABLAÐIÐ
77
Kjartan Jóhannsson Ph. D.
ÁÆTLANAGERÐ OG SKIPULAGN-
ING SJÚKRAHÚSASTJÓRNAR
Heilbrigðisþjónustan er flókið kerfi margháttaðra stofnana. Hún
er kerfi á mönnum, tækjum, efni og fjármagni. Lítum á markmið
hennar. í önn dagsins er ekki oft minnzt á markmið heilbrigðisþjón-
ustunnar. Þó er skilgreining forsenda þess, að hægt sé að ræða um
skipan þessara mála.
Heilbrigðisþjónusta er starfsemi, sem innt er af hendi til þess
að viðhalda og bæta heilbrigði þjóðfélagsþegnanna. Fyrir þessa þjón-
ustu er að mestu greitt af almannafé. Markmið heilbrigðisþjónust-
unnar má skilgreina með ýmsum hætti. Tilraun til skilgreiningar
gæti verið þannig:
Markmið heilbrigðisþjónustunnar er, að sem flestir þjóðfélags-
þegnanna njóti tiltekins heilbrigðis innan þeirra marka, sem fjár-
veiting markar.
Hér er gert ráð fyrir, að það sé heilbrigði þegnanna, sem skípti
meginmáli, en ekki hjúkrunin sem slík, þótt hún sé oftast í sviðs-
ljósinu.
Hið eiginlega markmið hlýtur að vera heilbrigðið, og hjúkrunin
er einungis ein leiðanna að því marki. Þá leið má ekki skoða eina
sér, heldur einungis sem hluta af stærri heild. í þessari skilgreiningu
er enn fremur gert ráð fyrir því, að einungis sé yfir takmörkuðum
fjármunum að ráða. Þetta skilyrði er í fullu samræmi við raunveru-
leikann. Þótt menn vilji einskis láta ófreistað til þess að bjarga
mannslífum og vilji þess vegna ógjarnan nefna fé og mannslíf í sömu
andránni, er sannleikurinn þó sá, að geta okkar er sífellt takmörkuð
af ytri aðstæðum og má yfirleitt rekja það til þess, hve mikið fé er til
ráðstöfunar. Þessi skilgreining gerir hins vegar kröfu til þess, að
kleift sé að skilgreina hugtakið heilbrigði á viðunandi hátt.
Á grundvelli þessarar skilgreiningar á heilbrigðisþjónustunni og
markmiði hennar, má draga mynd af þessari þjónustu með eftir-
farandi hætti. Þjóðfélagsþegnunum má skipa í hópa eftir heilbrigðis-
ástandi, aldri, búsetu o. s. frv. Eins eru til mismunandi leiðir, A, B,
C o. s. frv. til þess að ná heilbrigði meðal þegnanna. Ein leið er sjúkra-
húsarekstur, önnur er skólahjúkrun, þriðja berklaeftirlit o. s. frv.
Þessar leiðir eiga einungis við suma hópana og má þá tilgreina, hvað
við á með krossi á svofelldan hátt.