Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.08.1972, Page 61

Læknablaðið - 01.08.1972, Page 61
LÆKNABLAÐIÐ 91 Örn Bjarnason STÖÐLUN HEILSUGÆZLUSTÖÐVA OG ÞRÓUN HEILBRIGÐISÞJÓNUSTU FORSPJALL Um árabil hafa læknar rætt um nauðsyn þess að setja staðal fyrir starfsemi og áhaldakost væntanlegra heilsugæzlustöðva; hefur minna orðið úr, að gerðar hafi verið ákveðnar samræmdar tillögur. Þó er rétt að geta þess, að Ólafur Björnsson, héraðslæknir, ritaði grein um þessi mál í Læknablaðið. Nú er fram komið frumvarp til laga um heilbrigðisþjónustu og því þeim mun meiri ástæða en nokkru sinni fyrr, að unnið verði ötul- lega að málinu, þar sem frumvarpið kemur væntanlega til afgreiðslu á næsta Alþingi. Efnið er greint í eftirtalda flokka: 1. Inngangur. Almennt um heilsugæzlustöðvar. 2. Starfsaðstaða: a) áhöld og tæki, b) sérhæft starfsfólk, c) rannsóknaraðstaða, d) húsnæði til heilsugæzlu. 3. Lyfsala. 4. Ferðalög, sjúkraflutningar. 5. íbúðarhúsnæði. 6. Undirbúningsmenntun, viðhaldsmenntun. 7. Launakjör. INNGANGUR Óþarft er að rekja hugmyndir um starfsemi heilsugæzlustöðva. Læknafélag íslands hefur markað stefnu sína i þessum málum, með heilbrigðisráðstefnunum 1967 og 1968 og síðari aðgerðum, sbr. og greinargerð læknamiðstöðvanefndar L.í. frá 17. júní 1970, sem lögð var fram á aðalfundi L.í. í Vestmannaeyjum 1970. f hugum margra táknar hugtakið læknamiðstöð sambýli fleiri lækna á einum stað, enda kemur sá skilningur ráðamanna fram í lög- um nr. 43/1965 og í breytingum við þau lög. Síðar fór læknamiðstöð að tákna ákveðið hús eða stofnun, en læknar hafa allt frá því umræður hófust um þetta mál 1965 notað hugtakið heilsugæzlustöð um stofnun, sem hýsi þjónustu, þar sem allri, eða næstum allri heilbrigðisþjónustu utan sjúkrahúsa sé komið fyrir á einn stað. Smiðshöggið á hugmyndirnar var síðan rekið með sam- þykkt á aðalfundi L.í. í Bifröst 1968, þar sem talið var æskilegt, að læknamiðstöðvar í dreifbýli séu reknar í nánum tengslum við sjúkra-

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.