Læknablaðið - 01.02.1974, Blaðsíða 15
LÆKNABLAÐIÐ
7
TABLE VI11
Number of medical students and basic examined doctors per 100.000 inhab. and
number of capita per active doctors in Iceland and various countries.
Countries Year Inhab. mill. Number of medical stud. Number of examined doctors Number1) capita/doctors
Canada 1970 21,089 23,9 5,1 710
USA 1969 201,921 19,5 4,4 640
Denmark 1970 4,951 136,5 6,1 650
Finland 1971 4,629 48,1 8,3 980
Norway 1970 3,888 51,4 8,7 730
Netherlands 1970 13,032 85,7 6,9 840
Israel 1970 2,889 46,3 3,4 ca. 400
Scotland 1970 5,199 ? 9,3 770
N-Ireland 1970 1,524 42,9 7,8 760
Sweden 1970 8,081 92,5 ? ?
Iceland 1970 0,205 140,0 7,8 664
1) Applies to all licensed doctors. Rules of registration may differ between countries.
taldir læknastúdentar, sem lokið hafa 1.
árs prófum og telja má næsta öruggt að
ljúki læknisprófi. Samkvæmt þessum upp-
lýsingum fjölgar læknislærðum á íslandi
á tímabilinu 1970-1978 úr 493 í ca. 800 eða
um rúm 60%. Hér er tekið tillit til þeirra,
er hverfa úr starfi m. a. vegna elli.
Tafla VIII gefur nokkurn samanburð
á nýliðun í læknastétt hér og í nágranna-
löndunum á undanförnum og komandi ár-
um. Samkvæmt þessari töflu og upplýs-
ingum frá heilbrigðisyfirvöldum ofan-
nefndra landa er ekki reiknað með veru-
legri fjölgun á útskrifuðum læknum næstu
árin, enda hefur orðið fækkun í Svíþjóð
og Noregi. í Danmörku hefur orðið veru-
leg fjölgun á útskrifuðum læknum, en þó
ekki að vænta sambærilegrar fjölgunar og
á íslandi (tafla VII). Samkvæmt upplýs-
ingum frá dönskum heilbrigðisyfirvöldum
eru nú um 200-300 nýútskrifaðir læknar
atvinnulausir, aðallega vegna skorts á
námstöðum.10
Árið 1970 voru a. m. k. 308 læknar með
ótakmarkað lækningaleyfi og 40 kandi-
datar búsettir hér eða um 600 íbúar á
hvem lækni. Miðað við að um 30% allra
læknislærðra eru búsettir erlendis, m. a.
við framhaldsnám, eins og verið hefur sl.
10 ár (meðaltal, sjá mynd I) má reikna
með, að nú séu um 420 íbúar á hvern lækn-
islærðan, en árið 1978 verði búsettir hér
um 560 læknar, þ. e. um 410-420 íbúar á
hvern búsettan lækni, en um 270-280 íbúar
á hvern læknislærðan. Reynt hefur verið
að taka tillit til þeirra, er hverfa munu
úr starfi á næstu árum.
Allflestir læknar, sem dveljast erlendis,
eru ungir menn á aldrinum 30-40 ára.
Óneitanlega hefur slík „blóðtaka“ mikil
áhrif á alla þróun læknisfræðinnar og
þ. á m. heilbrigðisþjónustunnar á íslandi.
Á þessum aldri er helst að vænta nýrra
hugmynda og framtakssemi manna. Ef all-
ir þessir læknar væru á íslandi, væri 1
læknir fyrir 485 íbúa, en það er meiri
læknakostur en gerist í öðrum V.-Evrópu-
löndum.
ÁÆTLUN UM LÆKNAÞÖRF Á
ÍSLANDI
Engar raunhæfar áætlanir hafa verið
gerðar um læknaþörf á Islandi.
Nokkrir kennarar læknadeildar Háskóla
íslands lögðu til fyrir nokkrum árum, að
innritun læknanema væri takmörkuð við
um 24 á ári, þar eð kennsluaðstaða við
deildina leyfði ekki setu stærri hóps. Frá
þessari tillögu var horfið, er stjórnvöld
gáfu vilyrði um aukið kennslurými.
Læknadeildarhús, sem ennþá er ei risið
frá grunni, er hannað fyrir kennslu allt
að 40 nýrra stúdenta á ári. Engin rök hafa
verið færð fyrir því, að sá fjöldi sé hæfi-