Læknablaðið - 01.02.1974, Blaðsíða 41
LÆKNABLAÐIÐ
21
Brynjólfur Ingvarsson
INNLAGNINGAR VEGNA GEÐRÆNNA SJÚKDÖMA
Á LYFJADEILD FSA 1954-1972
UM FRAMTÍÐARÞRÓUN GEÐLÆKNINGA Á AKUREYRI
INNGANGUR
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri hefur
að nokkru leyti sérstöðu meðal íslenzkra
sjúkrahúsa, eins og kunnugt er. Lega þess,
stærð og staðall hafa gert það mjög ákjós-
anlegt til að sinna ýmsu því vandasamasta
í heilbrigðisþjónustunni, sem álitið hefur
verið framkvæmanlegt utan Reykjavíkur á
hverjum tíma.
Heilbrigðisyfirvöld hafa lýst yfir því, að
stefnt verði að því að reisa á Akureyri
sjúkrahús í samræmi við fyllstu kröfur
hvers tíma og mundi það þá slaga hátt í
sjúkrastórhýsin þrjú í Reykjavík að mann-
vali og tæknibúnaði.
Tilgangur ritgerðar minnar er annars
vegar að leggja fram smáskerf, sem nota
mætti við áætlanagerð í sambandi við þró-
un núverandi lyfjadeildar F.S.A. og vænt-
anlega þróun fyrirhugaðrar geðdeildar, -—
og hins vegar að tína til mola eða mylsnu
í þágu geðlæknisfræðinnar, sem enn um
hríð á fyrir höndum víðtæka þekkingarleit
eins og reyndar allar fræðigreinar, hverju
nafni sem þær nefnast.
Ritgerð þessi er að langmestu leyti unn-
in upp úr skriflegum gögnum deildarinn-
ar eins og þau liggja fyrir í dag, en mörg
helztu álitamálin voru borin undir yfir-
lækni deildarinnar, sem auk þess að gjör-
þekkja bæjarbúa og nærsveitamenn, heíur
verið yfirlæknir deildarinnar allan tímann,
sem rannsóknin tekur til, og verið mjög
áhugasamur um, að sjúklingar með geð-
sjúkdóma og geðræn vandamál fengju
beztu hugsanlegu meðferð hverju sinni,
ekki síður en aðrir sjúklingar á deildinni.
Eins og fyrirsögnin ber með sér voru
eingöngu taldar saman innlagningar, sem
að sjúkrahúsvist og rannsókn lokinni leiddu
til þeirrar niðurstöðu, að viðkomandi sjúkl-
ingur hefði ákveðinn geðsjúkdóm eða geð-
rænan kvilla, er orsakaði innlagninguna.
Þegar um fleiri en einn sjúkdóm var að
ræða, gat orðið erfitt að tilnefna einn sem
meginorsök, en þó má segja, að þetta hafi
tekizt á viðunandi hátt. Ýmislegt orkar
þó tvímælis, eins og geta má nærri, — en
efniviðurinn (materialið) eða grundvallar-
vinnan liggur fyrir hjá höfundi og getur
hver cg einn fengið að skoða og gagnrýna
að vild.
Rannsókn þessi er unnin sem sjálfstætt
verkefni. Varla hefði ritgerðin orðið til, ef
ekki hefði notið styrks af opinberu fé, sem
hér með er þakkað. Einnig er rétt og skylt
að þakka sérstaklega leiðbeiningar Ólafs
Sigurðssonar, yfirlæknis F.S.A., Akureyri.
RANNSÓKNIR
Á árunum 1954-1972 (að báðum meðtöld-
um) var lagt inn 2453 sinnum vegna geð-
sjúkdóma eða geðrænna kvilla á lyfjadeild
F.S.A. Alls voru innlagningar 11.603 á
tímabilinu og verður því hlutfallið nálægt
21%. Sé litið til einstakra ára má finna
breytilegt hlutfall eða lægst 14,6% (1960)
og hæst 28,8% (1955), og kann ég enga við-
hlítandi skýringu á þessu, en frávik frá
meðaltali eru öll miklu minni á síð-
ari helming rannsóknatímabilsins, þegar
reikna má með, að starfsemi deildarinnar
sé komin í fastari skorður. Hlutfallið milli
karlkyns og kvenkyns var 1049/1404 eða
nálægt 1/1.3. Konur voru í meirihluta öll
árin nema tvö. Skipting eftir búsetu sýndi
hlutfallið milli Akureyringa og utanbæjar-
manna 1:1 í upphafi tímabilsins, en undir
lokin 2:1.
Skipting eftir sjúkdómsgreiningum sést
á töflu 1.
Taflan gefur tilefni til eftirfarandi at-
hugasemda og nánari skýringa á einstökum
liðum hennar: