Læknablaðið - 01.02.1974, Blaðsíða 36
Burinex
LEO
EIGINLEIKAR
BURINEX er bvagræsilyf, sem verkar bæöi fljótt og
stutt og hefur meiri virkni með tilliti til heildarútskiln-
aðar á vatni og natrium en bekkist eftir gjöf benzo-
tíadíazíðsambanda. BURINEX er að efnafræðilegri
gerð frábrugðið öllum þvagræsilyfjum, sem notuð
hafa verið til þessa og er, sé tekið tillit til skammta-
stærða, hið virkasta þeirra. I klínískum rannsóknum
má þannig sýna fram á, að BURINEX er a.m.k. 40
sinnum virkara en fúrósemið.
Verkunin stendur i beinu hlutfalli viö gefna skammta.
Við inntöku sést verkun af lyfinu þegar að hálfri
klukkustund liðinni og hámarksverkun sést eftir 1-3
klst. Að 4—6 klst. liðnum er verkunin liðin hjá. Við
gjöf i æð má greina verkun að fáum mln. liðnum,
er varir i um það bil 2 klst.
BURINEX frásogast að fullu frá meltingarvegi og skilst
út i þvagi óumbreytt og i hlutfalli við útskilnað na-
triums. BURINEX er vel fallið til þess að nota hjá
sjúklingum með bjúg á ýmsum stigum og af margs
konar uþþruna, þar á meðal hjá sjúklingum með
bilaða nýrnastarfsemi.
ABENDINGAR
Bjúgur af völdum hjartasjúkdóma, nýrnasjúkdóma,
lifrarsjúkdóma og bjúgur fyrir tíðir. Bjúgur á með-
göngutima og vökvasöfnun af völdum lyfja. Eitranir
af völdum lyfja, þar sem aukinn þvagútskilnaður kemur
að haidi.
V
FRÁBENDINGAR
Dá viö alvarlega lifrarsjúkdóma. Natrium- og kalium-
skortur.
SKAMMTAR
Með tilliti til hinnar fljótu og stuttu verkunar er unnt
að gefa lyfið þannig, að sem minnstar truflanir verði
á svefni og daglegum störfum sjúklinganna.
BURINEX töflur 1 mg
Við minni háttar bjúg er venjulega nægjanlegt að gefa
'h töflu á dag. Annars 1-2 töflur á dag. Auka má
skammta smám saman, ef frekari verkunar er æskt,
en þó skulu líða a.m.k. 6 klst. milli einstakra skammta.
Viðhaldsskammtar eru venjulega 'h tafla á dag, e.t.v.
með nokkurra daga hléum á milli. Við alvarlegan bjúg
eru gefnar 2-4 töflur á dag. Heþpilegast er að skipta
slíkum skammti nokkuð yfir daginn.
BURINEX stungulyf
í þeim tilvikum, þegar æskt er mjög skjótrar verkunar
eða ekki er unnt að gefa lyfið við inntöku, er BURI-
NEX gefið i æð eða í vöðva. Við lungnaþjúg er þannig
gefið í byrjun 0,5-1,0 mg i æð og e.t.v. endurtekiö
eftir um það bil 20 mín. Við bilaða nýrnastarfsemi eru
gefin 2-5 mg í 500 ml innrennslislausn á 30 mín. og
endurtekið, ef nauðsyn er til, nokkrum sinnum á dag.
Við salicýlsýru- og barbítúrsýrueitranir eru fyrst gefin
2 mg í æð og siðan 1 mg á 4 klst. fresti eöa allt að
7 mg á sólarhring.
AUKAVERKANIR OG
VARÚÐARREGLUR
BURINEX veldur yfirleitt fáum aukaverkunum og þær
aukaverkanir, er fyrir koma, má rekja til þvagræsiverk-
unar lyfsins. Viö langvarandi notkun geta hæglega
komið fyrir truflanir á jónajafnvægi likamans, sérstak-
lega kalíumþurrð og bæsing (alkalósa) með klóríðþurrð.
Skal því ævinlega fylgjast með magni jóna í plasma
og gefa kaliumklórið með, ef þörf gerist, t.d. KALE-
ORID (R). þetta á ekki síst við um sjúklinga með
lifrarsjúkdóma og sjúklinga, sem einnig fá digitalis.
—RITGERÐIR UM BURINEX
Asbury, M. J.. P. B. B. Gatenby, S. O'Sullivan and
E. Bourke: Bumetanide: Potent new "loop" diuretic.
Brit. Med. J. 1 : 211-213, 1972.
Olesen, K. H., B. Sigurd, E. Steiness and A. Leth:
Bumetanide, a new potent diuretic. A clinical evalu-
ation in congestive heart failure. Acta Med. Scand.:
Under udgivelse.
Sigurd, B., A. Leth & E. Steiness: Bumetanid, et nyt
diuretikum. I. En klinisk vurdering af den diuretiske
effect hos patienter med kronisk, kongestiv hjerteinsuf-
ficiens. Ugeskr. Læg.: Under udgivelse.
Sigurd, B., A. Leth & E. Steiness: Bumetanid, et nyt
diuretikum. II. En sammenligning mellem den diure-
tiske effekt af bumetanid og furosemid hos patienter
med kronisk, kongestiv hjerteinsufficiens. Ugeskr.
Læg.: Under udgivelse.
L0VENS KEMISKE FABRIK