Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.02.1974, Page 76

Læknablaðið - 01.02.1974, Page 76
42 LÆKNABLAÐIÐ TAFLA II Flokkun á hyperlipoproteinemium. I Flokkur. II II III >> >> >> IV V >> >> Chylomicron í fastandi blóði. a) Aukning á LDL eingöngu, þ. e. hækkað kólesteról. b) ásamt minni hækkun á VLDL, þ. e. einnig lítilsháttar hækkun á þrígl. Óeðlilegt breitt beta band í rafdrætti, ásamt hækkun á bæði kólesteróli og þríglyseríðum. Aukning á VLDL eingöngu, þ. e. einkum hækkun á þríglyseríðum. Chylomicron í fastandi blóði ásamt verulegri hækkun á VLDL. ur hafa hærra HDL en karlar, og getnað- arvarnatöflur geta leitt til frekari hækk- unar á þessu lipoproteini. FLOKKUNA HYPERLIPOPROTEINEMIUM Hyperlipoproteinemium hefur verið skipt í 5 aðalflokka sbr. töflu II. (Frederic- son 1967, WHO 197013 5). Byggist sú skipt- ing á kólesteról- og þríglyseríðagildum og rafdrætti á lipoproteinum í serum. Hver flokkur byggist á hækkun á einhverju lipoproteinanna, og er því ekki sjúkdóms- greining í sjálfu sér. Hækkunin getur ver- ið afleiðing af ýmsum sjúkdómum og kall- ast þá seeunder hyperlipoproteinemia, en primer, þegar undirliggjandi orsök er óþekkt, og er þá oft arfbundin. Þessi flokk- un er því ekki nema að litlu leyti byggð á eticlogiu, og því að vænta, að betri flokkun verði möguleg, þegar meira verður vitað um undirliggjandi orsakir. Erfitt er að ákveða mörkin milli eðlilegs gildis á blóðíitu og hækkaðrar, þar sem dreifingin er samfelld svipað og á blóð- þrýstingi og blóðsykri. Margir draga efri mörkin við meðalgildi -j-2 staðal frávik (2 standard deviationir, 2SD), sem lætur nærri, að séu 95% mörkin, þ. e. 5% verða ofan þeirra. Það eru engar sterkar líffræði- legar ástæður fyrir því að draga mörkin þar, og þar eð blóðfita er mjög breytileg milli þjóða, leiða tölfræðileg mörk sem þessi til þess, að það, sem talið er eðlileg blóðfita í Norður-Evrópu yrði talið sjúk- legt í Suður-Evrópu. Önnur leið er sú að bera saman blóðfitu þjóða með litla og mikla áhættu á kransæðasjúkdómum, og samkvæmt því yrði kólesteról yfir 240 mg% talið óæskilegt, og því eðlilegt að ráðleggja meðferð. Slíkt leiddi hins vegar til þess að víða, t. d. hér á landi, þar sem meðalgildi miðaldra fólks er um 250 mg% samkvæmt rannsókn Hjartaverndar, myndi stór hluti þjóðarinnar þarfnast meðferðar, sem nánast væri óframkvæm- anlegt. Kólesteról- og þríglyseríðagildi í blóði hækka með aldri upp að sextugu a. m. k. í vestrænum löndum, og því vilja margir setja mismunandi mörk fyrir ald- ursflokka. Hins vegar er ekki vitað, hvort þessi hækkun með aldri sé physiologisk eða pathologisk. í sumum þjóðarbrotum Afríku, sem lifa á gjörólíku fæði, verður slíkrar hækkunar ekki vart. Því er vel hugsanlegt, að þessi hækkun sé afleiðing af vestrænu mataræði. Þess vegna nota ýmsir aldurshópinn 20-30 ára til viðmið- unar fyrir eðlilegt kól. og þríglyseríða- gildi. í London eru 95% mörkin fyrir kólesteról í þessum aldurshóp 280mg% og fyrir þríglyseríða 160mg%. Hafa ber í huga, að veikindi geta valdið lækkun á kólesteróli í blóði, og eftir kransæðastíflu getur tekið 2-3 mánuði að ná fyrra gildi. Helztu orsakir fyrir „secunder hyper- lipoproteinemium“: Sykursýki Hypothyroidismus Ofnotkun áfengis Þvagsýrugigt Nýrnabilun Nephrotic syndrome Getnaðarvarnatöflur Lifrarsjúkdómar o. fl. Sumt af þessu getur valdið öllum teg- undum af hyperlipoproteinemium. Sykur- sýki er án efa algengasta orsökin, einkan- lega veldur hún hækkun á þríglyseríðum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.