Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.02.1974, Side 87

Læknablaðið - 01.02.1974, Side 87
LÆKNABLAÐIÐ 49 Verkunarmátinn er ekki fyllilega ljós. Sumar tilraunir benda til, að það keppi um bindingarsæti við thyroxín á albumín- um, og leiði því til aukningar á óbundnu thyroxíni, a. m. k. í lifur. Aðrar tilraunir benda til minnkaðrar lifrarframleiðslu á lipoproteinum, og enn aðrar til aukins niðurbrots þeirra. Lyfið minnkar einnig samloðun blóðflagna og eykur „fibrinolyt- iska“ verkun plasmans. Nýlegar rannsókn- ir benda og til þess, að Atromid dragi úr dauðsföllum af völdum kransæðastíflu í sjúklingum með hjartakveisu, sem ekki hafa þó fengið kransæðastíflu.12 Þessi verkun reyndist óháð áhrifum lyfsins á kólesteról í blóði, sem voru næsta lítil, en þríglyseríðar voru hins vegar ekki mældir í þessari rannsókn. Sumir hafa borið brigð- ur á þessar niðurstöður, þar sem rannsókn- in var að sumu leyti retrospektiv. Auka- verkanir af völdum þessa lyfs eru fáar og sjaldgæfar. f stöku tilfellum getur það valdið myositis, og því rétt að fylgjast með CPK öðru hverju svo og transaminös- um. Stöku sinnum veldur það óvæntri hækkun á kólesteróli. Aukinni ertingu hjartavöðvans hefur verið lýst ásamt auka- slögum.22 Þegar sjúklingur er iafnframt á blóðþynningarmeðferð, skyldi þess gætt, að hann getur þurft allt að þriðjungi minni skammt af blóðþynningarlyfinu, þar sem Atromid keppir um bindingarsætin á pró- teinum, og leiðir því til hækkunar á óbundnu lyfinu í blóði. Þar sem lyfið er bundið proteinum, þarf minni skammta, þeear protein eru lág í blóði. Lyfið skilst út í þvagi, bundið glucuronidum. Það berst í geenum fylgiuna, en aukaverkanir á fóstrið hafa ekki komið fram, en fram- leiðendur ráðleggja að nota það ekki um meðgöngutímann. Cholestyramine (Questran) er jónaskipt- ir („anion exchange resin“), sem bindur gallsöltin í görnunum og hindrar því end- urunntöku þeirra neðar í smágirninu, og kemur bannig í veg fyrir „enterohenatic circulation“ þeirra. Þetta veldur auknum útskilnaði á kólesteróli, sem útskilst að verulegu levti sem gallsölt. Cholestyra- mine er gefið sem duft í stórum skömmt- um, 16-32 grömm daglega og lækkar oft kól. verulega. Vegna þess hve það er lítt vatnsuppleysanlegt svo og vegna hás sam- eindarþunga, er lyfið lítið tekið upp af görnum. Hins vegar þolist það stundum illa, getur valdið ógleði og hægðatregðu og jafnvel endurvakið gamalt magasár. Það getur og valdið minnkaðri upptöku í görnum á fituuppleysanlegum vítamín- um og vissum lyfjum, t. d. digitalis, thyr- oxín, dicoumaroli o. fl. Jafnframt því, sem kólesteról lækkar í blóði, verður stundum hækkun á þríglyseríðum, og því þarf oft að gefa Atromid samtímis. Nokkur önnur lyf með svipaðan verkunarmáta eru á markaðnum, t. d. Colestipol. Þessi lyf verka bví svipað og resectio ilei, og hafa því leyst þessa aðgerð af hólmi sem lið í kólesteróllækkandi meðferð. Nikótínsýra lækkar bæði kól. og þrígl. verulega.0 Hún minnkar niðurbrot fitu- vefs og með því lækkar hún frjálsar fitu- sýrur í blóðinu, sem ella bærust til lifrar- innar, sem umbreytti þeim í þríglyseríða. En einnig virðist lyfið minnka framleiðslu lifrar á kólesteróli. Það er gefið í smáum byrjunarskömmtum, en smám saman auk- ið og stundum upp í 6-10 grömm á dag. Hætt er við roða- og svimaköstum, ef skammturinn er aukinn of skyndilega. Fylgjast verður með liffrarstarfseminni, þar sem lyfið veldur í einstaka tilfelli transaminasahækkun og jafnvel gulu. Lyf- ið getur og valdið skertu sykurþoli og hækkun á þvagsýru. Þrátt fyrir þessa ókosti má ætla, að réttlætanlegt sé að nota þetta lyf, a. m. k. í svæsnum tilfellum af flokki II, svo og nota margir það við flokk V. Dextro-Thvroxín. Kólesteról er oft hækkað í hypothyroidismus, en verður aftur eðlilegt, ef gefið er thvroxín, sem eykur útskilnað á kólesteróli. Þar sem D-thvroxín hefur talsvert minni verkun á hjartavöðvann en venjulegt L-thyroxín, þá hefur það verið reynt í sjúklingum með hækkað kól. og oft með góðum árangri. Er það gefið í skömmtum upp í 8mg/dag ásamt .,betablokkerandi“ lyfjum t. d. propranolol, til að koma í veg fyrir óæski- leg áhrif á hjartað.21 Þó skvldi það ekki gefið sjúklingum með hjartakveisu. Auka- verkanir í ungu fólki eru sialdséðar, og því unnt að grípa til þessa lyfs, ef chole- stvramine þolist illa. Neomycin er fúkkalyf, sem lækkar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.